Ástin á götunni
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Laudrup skoraði gegn Íslandi U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag fyrir Danmörku, 4-0, á KR-velli í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu sem hófst í dag. Mads Thunø Laudrup, sonur dönsku goðsagnarinnar Michael Laudrup, skoraði eitt marka danska landsliðsins í dag. Næsti leikur Íslands verður gegn Írum á morgun klukkan 14.30 á Keflavíkurvelli. Sport 13.10.2005 19:37
Newcastle á eftir Owen Komið hefur upp úr krafsinu að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle Utd þykir líklegast til þess að hreppa landsliðsmanninn Michael Owen hjá Real Madrid. Hefur Manchester United oftast verið nefnt í því samhengi en BBC hefur öruggar heimildir fyrir því að Man Utd hafi ekki falast eftir Owen. Sport 13.10.2005 19:37
Helsingborg - Djurgarden Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Sport 13.10.2005 19:37
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Chelsea - AC Milan Í gærkvöldi áttust við Chelsea og AC Milan. Didier Drogba kom Chelsea yfir en Portúgalinn snjalli Rui Costa jafnaði metin á 79. mín. Lokastaðan því 1-1. Eiður Smári var í byrjunarliði Chelsea en var tekinn útaf um miðjan seinni hálfleik. Sport 13.10.2005 19:36
Owen til United? Michael Owen, leikmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni, til Manchester United eftir að Madrídarliðið keyti brasilísku framherjana Baptista og Robinho. Kaupverðið á Owen er talið vera um 12 milljónir punda. Glazer feðgar hafa fulllvissað stjórnarformann United, David Gill að nægt fjármagn sé til staðar til að styrkja liðið. Sport 13.10.2005 19:36
Walter Samuel til Inter Argentínski varnarmaðurinn Walter Samuel, er genginn til liðs við ítölsku bikarmeistaranna í Inter Milan frá spænska risanum Real Madrid. Samuel er 27 ára gamall og lék afleitlega með Real á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:36
Góð byrjun hjá Glasgow Rangers Glasgow Rangers byrjuðu vel í skoska fótboltanum í gær. Þeir unnu Livingstone sannfærandi 3-0. Dado Prso skoraði fyrsta markið á 23 mín. Hinn nýi leikmaður Rangers Pierre-FanFan bætti við öðru marki á 53. mín. Það var svo Daninn Peter Lovendkrands sem innsiglaði góðan sigur Rangers manna. Rétt rúmlega 50 þús manns sáu leikinn á Ibrox. Sport 13.10.2005 19:36
Start enn efst í norska boltanum Start frá Noregi sem Jóhannes Harðarson leikur með, er enn efst í norska fótboltanum. Start sigraði Molde 1-0 en Jóhannes var varamaður í leiknum og fékk ekki að spreyta sig. Start er með 33 stig. Sport 13.10.2005 19:36
Start áfram á toppnum Start í Kristiansand sigraði Molde 1-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og heldur þriggja stiga forystu í deildinni. Skagamaðurinn, Jóhannes Harðarson var varamaður í liði Start, en kom ekki við sögu í leiknum. Sport 13.10.2005 19:36
Arsenal vann Amsterdam mótið Arsenal sigraði á Amsterdam-mótinu í knattspyrnu í dag, þegar liðið lagði Porto frá Portúgal 2-1 í úrslitaleik. Svíinn Fredrik Ljungberg , sem nýlega skrifaði undir fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við liðið, kom inn á sem varamaður í síðari hálfleiks og skoraði bæði mörk Arsenal. Sport 13.10.2005 19:36
Sigur hjá Räikkönen Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen á McLaren vann sigur í Ungverjalandskappakstrinum í Formúlu eitt í dag. Í öðru sæti varð heimsmeistarinn Michael Schumacher á Ferrari og bróðir hans Ralf varð þriðji á Toyota. Efsti maður stigakeppninnar, Spánverjinn Fernando Alonso á Renault, varð í 11. sæti og lauk keppni án stiga. Sport 13.10.2005 19:36
Rooney gerði tvö í sigri Wayne Rooney gerði bæði mörk Manchester United sem sigraði Urawa Red Diamonds 2-0 í Japan í morgun. Þar með er Asíutúr Manchester United lokið. Næsti æfingaleikur United er gegn belgíska liðinu Antwerpen á miðvikudag. Sport 13.10.2005 19:36
Sögunni endalausu að ljúka? Sögunni endalausu um hvort Brasilíumaðurinn Robinho gangi til liðs við Real Madrid virðist nú loks að ljúka. Á vefsíðu Real segir að að Robinho muni ganga til liðs við hið stjörnuprýdda lið þeirra þann 25. ágúst. Það er vegna þess að lið hans Santos vill að hann spili tvo leiki til að geta hvatt aðdáendur sína í Brasilíu. Sport 13.10.2005 19:36
Baptista til Real Brasilíski sóknarmiðjumaðurinn Julio Baptista, er genginn til liðs við Real Madrid frá Sevilla. Fyrr í dag samþykkti Sevilla 13,8 milljóna punda tilboð Real í leikmanninn. Þar með er sögunni endalusu um framtíð Baptista lokið en lengi vel leit allt útlit fyrir það að leikmaðurinn væri á leið til ensku bikarmeistaranna í Arsenal Sport 13.10.2005 19:36
Keflavík dróst gegn þýsku liði Keflavík mætir þýska liðinu Mainz í 2. umferð forkeppni UEFA-bikarsins en dregið var nú rétt áðan. Keflavík átti möguleika á að mæta sænska liðinu Djurgårdens IF eða dönsku liðunum Esbjerg fB eða FC København en er þess í stað á leiðinni til Þýskalands. Sport 13.10.2005 19:36
Hislop aftur til West Ham Shaka Hislop, sem staðið hefur á milli stanganna hjá Portsmouth undanfarin ár, er kominn aftur til West Ham og verður að öllum líkindum varamarkvörður hjá félaginu fyrir Roy Carroll. Sport 13.10.2005 19:36
Baros er alltof dýr fyrir Schalke Milan Baros er ekki á leiðinni til þýska liðsins Schalke 04 eins og allt stefndi í þar sem Þjóðverjunum þykir verðmiði Liverpool á tékkneska framherjanum vera alltof hár. Evrópumeistarar Liverpool vilja fá 7 milljónir punda eða um 800 milljónir íslenskra króna fyrir Baros. Sport 13.10.2005 19:36
Góð innkoma hjá Eiði Smára Eiður Smári Guðjohnson byrjaði á varamannabekknum en átti fína innkomu þegar Chelsea sigraði bandaríska liðið DC United í æfingaleik í Bandaríkjunum í fyrrinótt, 2-1. Eiður kom inn á þegar rúmur hálftími var eftir af leiknum og samkvæmt leikskýrslu á opinberri heimasíðu Chelsea batnaði leikur ensku meistarana til mikilla muna með innkomu Eiðs. Sport 13.10.2005 19:36
Slag Liverpool-liðanna frestað Þeim sem vildu að Liverpool og Everton drægjust saman í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu varð ekki að ósk sinni þó svo að möguleikinn hafi vissulega verið fyrir hendi. Þess í stað fékk Everton það erfiða verkefni að mæta spænska liðinu Villareal og Liverpool mætir sigurvegaranum úr viðureignum Tirana KF og CSKA Sofia. Sport 13.10.2005 19:36
Liverpool-liðin mætast ekki Liverpool-liðin, Liverpool og Everton, mætast ekki í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í dag. Vinni Liverpool Kaunas frá Litháen mætir liðið sigurvegurum úr leik Tirana og CSKA Sofia en Everton mætir spænska liðinu Villarreal. Manchester United er líklega á leiðinni til Ungverjalands. Sport 13.10.2005 19:36
Baros vill til Schalke Milan Baros hefur að undanförnu verið orðaður við för frá Liverpool en tilboðum í leikmanninn hingað til hefur verið neitað. Sport 13.10.2005 19:36
Það er erfitt að eyða Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir það vera erfiðasta starf í heimi að þurfa að eyða pening frá Roman Abramovich í nýja leikmenn. Sport 13.10.2005 19:35
Landsbankadeildin tekin út í kvöld Klukkan 20:30 í kvöld verður klukkustundarlangur þáttur á Sýn þar sem fjallað verður um Landsbankadeildina í knattspyrnu. Fjallað verður um umferðir 7-12, rætt við þjálfara, leikmenn og bestu stuðningsmennina. Sport 13.10.2005 19:35
Vilja reka Strachan Stuðningsmenn skoska knattspyrnuliðsins Glasgow Celtic heimta að nýi knattspyrnustjórinn Gordon Strachan verði rekinn. Strachan stýrði Celtic í fyrsta alvöru keppnisleiknum í gærkvöldi en þá tapaði Celtic 5-0 fyrir Artmedia Petrzalka frá Slóvakíu í forkeppni meistaradeildarinnar. Sport 13.10.2005 19:35
Keflavík áfram Keflvíkingar sigruðu Etzella frá Lúxemburg 2-0 í kvöld á Laugardalsvelli í fyrstu umferð forkeppni UEFA keppninnar og eru þar með komir áfram. Hörður Sveinsson gerði fyrra markið en hann gerði einnig öll fjögur mörk Keflvíkinga í fyrri leiknum sem Suðurnesjamenn sigruðu 4-0. Seinna mark Keflavíkur gerði Gunnar Hilmar Kristinsson. Sport 13.10.2005 19:35
Mótlæti hjá ÍBV í Færeyjum Eyjamenn eru úr leik eftir 2-1 tap fyrir færeyska liðinu B36 í Þórshöfn í gær en liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum. Ísland tapaði því fyrstu viðureign sinni gegn Færeyjum í Evrópukeppni félagsliða en Ísland hefur aldrei tapað fyrir Færeyjum í A-landsleik. Sport 13.10.2005 19:35
Saviola vill svör Javier Saviola, argentínski sóknarmaðurinn sem er til mála hjá Barcelona sem vill ekkert með hann hafa, vill fá skorið úr um hvort framtíð hans liggi hjá félaginu. Sport 13.10.2005 19:35
Ballack kóngurinn í Þýskalandi Þýskir íþróttafréttamenn völdu í gær knattspyrnumann ársins í Þýskalandi. Michael Ballack, miðjumaður Bayern Munchen, varð fyrir valinu en hann fékk alls 516 atkvæði. Hann hlaut yfirburðarkosningu því sá sem var á eftir honum fékk 103 atkvæði, það var Lukas Podolski sóknarmaður hjá Köln. Sport 13.10.2005 19:35
Baros til Schalke? Þýska liðið Schalke hefur bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá sóknarmanninn Milan Baros frá Liverpool og viðræður milli félagana tveggja eru komnar í gang. Schalke hefur nýlega selt sinn helsta sóknarmann, brasilíumanninn Ailton, til Besiktas og hugsa Baros sem eftirmann hans Sport 13.10.2005 19:35