
Ástin á götunni

U19 ára landslið Íslands
Guðni Kjartansson, þjálfari U19 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem mætir Hollendingum í vináttulandsleik í Hollandi 2. september. Í hópnum eru fimm leikmenn sem eru á mála hjá erlendum liðum.

Blikar og KR leika til úrslita
Breiðablik og KR mætast í úrslitaleik bikarkeppni kvenna. Breiðablik vann Val 4-0, en þetta er þriðji sigur Blika á Val í sumar. Í hinum undanúrlitaleiknum sigruðu KR stúlkur 1.deildarlið Fjölnis 6-2. Bikarúrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli 10 september n.k.

Sigurvin að ná sér
Sigurvin Ólafsson, miðvallarleikmaður KR í Landsankadeild karla er allur að ná sér af meiðslum í kálfa sem hafa ollið því að hann hefur ekki getað leikið með félögum sínum í síðustu tveimur leikjum KR.
Tilboð Newcastle í Owen samþykkt
Real Madrid hefur samþykkt tilboð Newcastle í framherjann Michael Owen, sem er talið vera 15,5 milljónir punda, eða metfé í sögu Newcastle. Nú er boltinn hjá Michael Owen, sem mun væntanlega gera upp hug sinn fljótlega.
Bangoura til Stoke
Sóknarmaðurinn Sambegou Bangoura er á leið til Stoke City frá Standard Liege í Belgíu. Bangoura sem er landsliðsmaður Gíneu er 23 ára og hefur gert 22 mörk í 50 deildarleikjum með Liege.

Landsliðshópur Króata
Zlatko Kranjcar landsliðsþjálfari Króata í knattspyrnu tilkynnti í dag 22 manna landsliðshóp fyrir leikinn gegn Íslendingum og Möltumönnum í undankeppni HM sem fara í Reykjavík og í Valetta á Möltu 3. og 7. september.

Sannfærandi sigur United manna
Manchester United sigraði Debrechen frá Ungverjalandi 3-0 ytra í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. United eru því komnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Gabriel Heinze gerði fyrri tvö mörk United og Kieran Richardson það þriðja. Sjá úrslit og stöðu í öðrum leikjum...
Hamburg sló Valencia út
Í úrslitum um laust sæti í Evrópukeppni félagsliða vann Lenz Cluj frá Rúmeníu 3-1 og samanlagt 4-2. Marseille burstaði Deportivo 5-1 og samanlagt 5-3 og Valencia og Hamburger gerðu markalaust jafntefli, en Hamburg vann fyrri leikinn 1-0.

Árni Gautur tapaði í vítakeppni
Árna Gauti Arasyni, landsliðsmarkverði tóks ekki að tryggja norska félagi sínu Välerenga hundruðir milljóna króna í kvöld þegar lið hans tapaði fyrir belgíska liðinu Club Brugge í vítaspyrnukeppni í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn sjálfur fór 1-0 fyrir Club Brugge en Välerenga vann fyrri leikinn 1-0 í Osló.

Eiður ekki í leikmannahópi Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea sem er að vinna WBA 2-0 í hálfleik í ensku úrvalsdeildinni. Mörk Chelsea gerðu Frank Lampard og Joe Cole.

O´Leary æfur út af rauða spjaldinu
David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, var ekki kátur með rauða spjaldið sem Nolberto Solano fékk gegn Portsmouth í gærkvöldi og ætlar að áfrýja dómnum.
Kóreumaður til Tottenham
Suður-Kóreumaðurinn Lee Young-Pyo hjá PSV Eindhoven í Hollandi er sagður vera á leið til Tottenham Hotspurs á Englandi fljótlega, en Pyo er öflugur vinstri bakvörður og er fasta maður í landsliði Kóreu.
Undanúrslit í bikarkeppni kvenna
Í kvöld verður leikið í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Efstu liðin í Landsbankadeildinni, Breiðablik og Valur, eigst við í Kópavogi klukkan 17.30 og KR tekur á móti Fjölni.

Fowler vill spila gegn United
Framherjinn Robbie Fowler hefur einsett sér að snúa aftur með liði Manchester City í grannaslagnum við Manchester United í næsta mánuði, en hann hefur verið í erfiðum meiðslum á síðustu vikum
Egill dæmir í UEFA keppninni
Egill Már Markússon verður dómari í síðari viðureign pólska liðsins Wisla Plock og Grasshoppers frá Sviss í UEFA-bikarnum, en liðin mætast á Gorskiego-leikvanginum í Plock á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Gunnar Gylfason og Ingvar Guðfinnsson, og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson.

Landsliðshópur Þjóðverja
Jürgen Klinsmann. landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspyrnu hefur valið landsliðshóp Þjóðverja sem mætir Slóvakíu og Suður Afrík í næsta mánuði. Athygli vekur að Oliver Kahn, markvörður og Dietmar Hamann leikamður Liverpool eru hvíldir.

Soffía sigraði Evrópumeistarana
CSKA Soffía sigraði Liverpool 1-0 á Anfield í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool fer þó áfram því liðið vann fyrri viðureign liðanna 3-1. Þetta eru mjög óvænt úrslit því afar fáheyrt er að Evrópumeistarar tapi fyrir liði eins og CSKA Soffíu, en KA sem nú er í íslensku 1. deildinni sigraði CSKA á heimavelli fyrir 15 árum.

Tiago til Lyon
Frakklandsmeistarar Lyon í knattspyrnu hefur fest kaup á portúgalska landsliðsmanninum Tiago hjá Chelsea fyrir 6.5 miljónir punda og boðið honum 5 ára samning
Liverpool undir í hálfleik
CSKA frá Soffíu er að vinna Liverpool 1-0 í hálfleik á Anfield í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stuðningsmenn Liverpool geta þó andað léttar því liðið vann fyrri leik liðanna 3-1 í Soffíu.
Luque fer ekki til Newcastle
Lið Deportivo la Corunia á Spáni hefur neitað lokatilboði Newcastle í sóknarmanninn Albert Luque og því er ljóst að ekkert verður af för hans til Englands eins og til stóð.

Vonar að Gerrard fái verðlaun
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vona að Steven Gerrard verði valinn verðmætasti leikmaðurinn af UEFA á næstu dögum, en hefur meiri áhyggjur af því að fyrirliðinn nái heilsu fyrir leikinn við CSKA Moskvu um titilinn meistarar meistaranna á föstudag.
Danskur dómari í 1.deild
Dómari í viðureign HK og KA í 1. deild karla í knattspyrnu föstudaginn 26. ágúst næstkomandi verður Henrik N. Kragh frá Danmörku. Aðstoðadómarar verða íslenskir. Er þetta seinni leikurinn af tveimur sem erlendur dómari dæmir í 1. deild karla á Íslandi í ár. Þetta er liður í samstarfi knattspyrnusambanda á Norðurlöndum um skipti á dómurum.

Arsenal er búið að vera
Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea segir að tíð Arsenal sem topplið á Englandi sé liðin og að liðið sé búið að vera í baráttunni um meistaratitilinn.

David James með tvö markmið
David James, markvörður Manchester City og enska landsliðsins, segist hafa sett sér tvö skýr markmið fyrir keppnistímabilið í vetur, að komast í Evrópukeppnina með Manchester City og að vinna sér fast sæti í enska landsliðinu á ný.

Fyrsti leikur Brynjars Björns
Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik fyrir Reading í kvöld þegar hann kom inná í 3-1 sigri Reading á Swansea í framlengdum leik í ensku deildabikarkeppninni. Brynjar kom inná á 71. mínúnu og krækti sér í gult spjald á 73 mínútu.

Jóhannes Karl á skotskónum
Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester skoraði þriðja mark Leicester úr vítaspyrnu sem sigraði Bury 3-0 á útivelli í kvöld í ensku deildabikarkeppninni. Sjá úrslit leikja í deildabikarkeppninni..
Man. City enn taplausir
Manchester City sigraði Sunderland á útivelli í kvöld 2-1 í ensku úrvalsdeildinni og eru ósigraðir í deildinni eftir þrjá leiki með 7 stig. Middlesbrough gerði góða ferð til Birmingham og sigraði samnefnt lið 3-0. Aston Villa, sem einnig er úr Birminghamborg gerði jafntefli við Portsmouth á útivelli 1-1. Sjá markaskorara..

Beckham hrósað í hástert
Hæstráðendur hjá spænska stórliðinu Real Madrid eru mjög ósáttir við leikmenn liðsins að David Beckham undanskildnum. " Leikmenn félagsins verða að læra að vera fulltrúar klúbbsins líkt og Beckham," sagði fjölmiðlafulltrúi félagsins.

Robben er ekki í hundakofanum
Jose Mourinho hefur gefið það út að þó Arjen Robben verði ekki í byrjunarliði Chelsea gegn West Brom á miðvikudaginn, sé það ekki vegna þess að hann sé í hundakofanum vegna yfirlýsinga í fjölmiðlum um helgina.

Marseille með augastað á Cisse
Djibril Cisse, franski framherjinn hjá Liverpool, er undir smásjá Marseille í heimalandi sínu, en talið er að forráðamenn Liverpool séu reiðbúnir að selja leikmanninn fari svo að Michael Owen snúi aftur á heimaslóðir.