
Besta deild karla

„Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“
Davíð Ingvarsson skoraði bæði mörk Breiðabliks er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Val í 25. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Úrslitin þýða að Breiðablik og Víkingur eru enn jöfn að stigum á toppi deildarinnar.

Rúnar Páll hættir eftir tímabilið: „Mun kveðja Fylki með söknuði“
Fylkir gerði 2-2 jafntefli gegn HK í Kórnum og eru fallnir úr efstu deild. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var virkilega ósáttur með jöfnunarmark HK og staðfesti einnig að hann verði ekki með liðið á næsta tímabili.

Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var allt annað en ánægður þegar HK jafnaði undir lok leiks liðanna í kvöld. Hann fékk að launum reisupassann og hans menn fallnir niður um deild.

„Þú ert skilgreindur af nútíðinni“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var eðlilega ánægður að leik loknum á Akureyri í dag þar sem hans menn unnu 4-0 sigur á KA í Bestu deild karla. KR nú unnið tvo leiki í röð og með markatöluna 11-1 í leikjunum tveimur.

Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking
Víkingur og Stjarnan skildu jöfn, 2-2, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 25. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Óskar Örn Hauksson jafnaði metin fyrir Víking á lokamínútunni í uppbórtartíma seinni hálfleiks.

Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki
HK og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í spennutrylli. Allt benti til þess að Fylkir myndi klára þetta en Brynjar Snær Pálsson jafnaði í uppbótartíma og Fylkir er fallið. Uppgjör og viðtöl væntnaleg.

Uppgjörið: Breiðablik - Valur 2-2 | Óbreytt staða á toppnum eftir jafntefli á Kópavogsvelli
Breiðablik gerði 2-2 jafntefli við Val líkt og Víkingur gerði 2-2 jafntefli við Stjörnuna svo staðan er óbreytt á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu þegar það eru tvær umferðir eftir.

„Ég verð bara að setja fleiri í vegginn næst og standa í nærhorninu“
„Þetta var mjög sætt, sérstaklega í ljósi þess að við fengum á okkur svona heldur slæmt mark í byrjun. Gott að koma til baka og vinna þetta örugglega,“ sagði Árni Marínó, markmaður ÍA, eftir 4-1 endurkomusigur Skagamanna gegn FH.

Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið
ÍA lenti undir á fyrstu mínútu gegn FH en sneri leiknum sér í hag með glæsibrag og vann 4-1 sigur. Skagamenn eru nú aðeins tveimur stigum frá þriðja sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram
KA tók á móti KR á Akureyri í dag en fyrir leik voru gestirnir enn í fallhættu á meðan Akureyringar sátu í efsta sæti neðri helmings Bestu deildarinnar. KR-ingar mættu fullir sjálfstrausts inn í leikinn og unnu sannfærandi 0-4 sigur gegn lúnum KA-mönnum.

Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars
Viðar Örn Kjartansson hefur tekið betri vítaspyrnur á ferli sínum en hann gerði í leik KA og KR í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis í dag.

Vaknar Árbærinn aftur?
Fylkir berst fyrir tilverurétti sínum í Bestu deild karla er liðið sækir HK heim í Kórinn seinni partinn í dag.

Sækja innblástur til kvennaliðsins: „Frábært að fylgjast með þessu“
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks, segir sína menn klára í slaginn fyrir stórleik kvöldsins við Val á Kópavogsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Kvennalið sömu félaga mættust í gær þar sem Breiðablik stóð uppi sem Íslandsmeistari.

Sjáðu Andra Rúnar skjóta Fram í kaf
Vestri steig stórt skref í átt að því að halda sæti sínu í Bestu deild karla með 2-4 sigri á Fram í Úlfarsárdalnum í gær. Andri Rúnar Bjarnason skoraði þrjú mörk fyrir Vestramenn og lagði upp eitt.

„Ef Andri hefði náð að haldast heill þá værum við ekki að berjast fyrir lífi okkar“
Vestri vann 2-4 útisigur gegn Fram. Þetta var annar sigur Vestra í röð og Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra var ánægður með sigurinn og þá staðreynd að þetta var hans fyrsti sigur gegn Fram.

Uppgjörið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra
Vestri vann 2-4 útisigur gegn Fram. Andri Rúnar Bjarnason fór á kostum og gerði þrennu. Framarar voru langt frá því að svara fyrir 7-1 tap í síðustu umferð og liðið hefur fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum. Uppgjör og viðtöl væntanleg

KR sækir tvo frá Fjölni
KR hefur samið við tvo leikmenn Lengjudeildarliðs Fjölnis um að leika með næstu árin. Um er að ræða markvörðinn Halldór Snæ Georgsson og miðvörðinn Júlíus Mar Júlíusson.

Íslenskur HM-fari í Stjörnuna
Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári Friðjónsson hefur ákveðið að snúa heim til Íslands, 28 ára gamall, eftir langa veru í atvinnumennsku erlendis. Hann hefur skrifað undir samning til fjögurra ára við Stjörnuna.

Snýr aftur heim í KR
Miðjumaðurinn Óliver Dagur Thorlacius er snúinn aftur í KR og hefur skrifaði undir samningu við félagið sem gildir til næstu þriggja ára.

Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna
Tarik Ibrahimagic, leikmaður Víkings, var í dag dæmdur í eins leiks bann vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Hann missir af næsta leik Víkinga um komandi helgi.

Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn
Stjarnan vann öruggan 3-0 sigur gegn ÍA og kom sér af fullum þunga í baráttuna um Evrópusæti í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Mörkin má nú sjá á Vísi.

Hilmar Árni: Þurftum að vinna, gerðum það og svo bara næsti leikur
Besti maður vallarins í sigri Stjörnunnar á ÍA fyrr í kvöld gat verið ánægður með dagsverkið. Hilmar Árni Halldórsson átti tvær stoðsendingar og skotið sem varð til þess að Johannes Vall skoraði sjálfsmark í 3-0 sigri Stjörnunnar.

Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu
Stjarnan fór með sigur af hólmi þegar ÍA kom í heimsókn í annarri umferð efri helmings Bestu deildar karla. Stjarnan stýrði leiknum lengst af þó Skagamenn hafi þjarmað að þeim. Leiknum lauk með 3-0 sigri Stjörnunnar sem kom sér í stöðu til að gera atlögu að þriðja sæti deildarinnar.

Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram
Gærdagurinn í Bestu deild karla í fótbolta var áhugaverður og bauð upp á margar mismunandi sögulínur. Ekki vantaði mörkin í leikina fjóra og þá var dramatíkin allsráðandi í slag Vals og Víkings Reykjavíkur

Fær Njarðvík frekar stimpilinn?
Þrátt fyrir að Njarðvík sé ekki sérstaklega tilgreind í tölum Hagstofunnar um mannfjölda í byggðakjörnum landsins, heldur skilgreind sem hluti af Reykjanesbæ, þá er vel hægt að nota aðra skilgreiningu en Hagstofan og segja að Njarðvík sé stærsti byggðakjarni Íslands sem aldrei hefur átt lið í efstu deild karla í fótbolta.

„Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku”
„Jesús almáttugur, ég þarf að fara á bráðavaktina núna sko,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, eftir hádramatískan 3-2 sigur sinna manna gegn Val.

Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu
Bikarmeistararnir unnu 1-3 sigur gegn Fylki sem situr í neðsta sæti deildarinnar. Staðan var jöfn í hálfleik en KA gerði tvö mörk í seinni hálfleik og gestirnir fögnuðu sigri. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“
KA vann 1-3 sigur gegn Fylki á Würth-vellinum. Viðar Örn Kjartansson, leikmaður KA, var á skotskónum en fagnaði ekki markinu þar sem hann spilaði með Fylki árið 2013.

Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn
Víkingur endurheimti efsta sæti Bestu deildar karla með dramatískum endurkomusigri gegn Val á Hlíðarenda. Lokatölur 2-3, sigurmarkið skoraði galdramaðurinn Tarik á lokamínútu uppbótartíma.

Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu
Breiðablik tyllti sér á topp Bestu deildar karla í fótbolta með því að leggja FH að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í 24. umferð deildarinnar á Kaplakrikavelli í dag.