Erlent
265 266 267 268 269 270 271 272 273 … 334 ›
Schüssel viðurkennir ósigur í þingkosningum Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis, viðurkenndi í dag að hægri flokkur hans hefði „líklega" tapað í þingkosningunum sem þar fóru fram í dag. Sagði hann niðurstöður talningar benda til þess að sósíaldemókratar undir forystu Alfreds Gusenbauers hefðu farið með sigur af hólmi og óskaði hann Gusenbauer til hamingju með sigurinn. Erlent 1.10.2006 18:51
Meintir talibanar handteknir í Pakistan Pakistönsk lögregla handtók í dag sex meinta uppreisnarmenn úr röðum talibana. Mennirnir voru gripnir á einkasjúkrahúsi í borginni Quetta þangað sem þeir höfðu leitað aðstoðar eftir að hafa særst í átökum í suðurhluta Afganistans. Erlent 1.10.2006 17:57
Átök milli Hamas-liða og manna hliðhollum Abbas Fimm Palestínumenn hafa fallið og að minnsta kosti 60 særst í bardögum á milli byssumanna hliðhollum Hamas-samtökunum og lögreglu og opinberum starfsmönnum sem styðja Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, í Gasaborg í dag. Erlent 1.10.2006 16:43
Fimm létust þegar hraðbraut hrundi í Kanada Fimm manns létust þegar hraðbraut í Montreal í Kanada hrundi í gær. Fólkið var allt í tveimur bílum á vegi undir hraðbrautinni sem krömdust þegar brautin hrundi. Björgunarmenn voru að störfum í alla nótt til þess að ná bílunum undan rústunum en auk þeirra fimm sem létust slösuðust sex, þar af þrír alvarlega. Erlent 1.10.2006 16:17
Útlit fyrir að stjórn Schüssels sé fallin Svo virðist sem stjórn Wolfgangs Schüssels, kanslara Austurríkis, sé fallin í þingkosningum sem fram fóru í landinu í dag. Kjörfundi lauk í landinu nú klukkan þrjú að íslenskum tíma og fyrstu spár benda til þess að sósíaldemókratar undir forystu Alfreds Gusenbaurs hafi naumt forskot á hægri flokk Schüssels, 36 prósent atkvæða á móti 35 prósentum. Erlent 1.10.2006 16:01
September sá heitasti í Bretlandi frá upphafi Útlit er fyrir að nýliðinn september verði sá heitasti í Bretlandi frá því að veðurmælingar hófust, eða 15,4 gráður. Er það 0,7 gráðum heitara en í september árið 1949. Veðurstofa Bretlands mun á morgun staðfesta metið sem er rúmum þremur gráðum hærra en langtímameðaltal. Erlent 1.10.2006 15:09
Fellibylurinn Xangsane veldur usla í Víetnam Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir að fellibylurinn Xangsane gekk á land í Mið-Víetnam í morgun. Húsþök fuku, tré rifnuðu upp með rótum og rafmagnslínur slitnuðu þegar fellibylurinn kom að landi en yfirvöld í Víetnam höfðu gert töluverðar ráðstafanir og flutt burt um tvö hundruð þúsund manns. Erlent 1.10.2006 14:46
Þriggja daga þjóðarsorg í Brasilíu í kjölfar flugslyss Luis Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu eftir að farþegaflugvél með 155 manns innanborðs hrapaði í skógum Amason í fyrradag. Erlent 1.10.2006 14:28
Birti myndband með Mohammed Atta í fyrsta sinn Myndband af Mohammed Atta, manninum sem flaug vél inn í annan turnanna í World Trade Center 11. september 2001, hefur verið birt á Netinu í fyrsta sinn. Erlent 1.10.2006 14:02
Nýr forsætisráðherra svarinn í embætti í Taílandi Fyrrverandi hershöfðinginn Surayud Chulanont var í dag svarinn í embætti forsætisráðherra Taílands, tæpum tveimur vikum eftir valdarán hersins þar í landi. Erlent 1.10.2006 13:16
Fjörtíu taldir látnir eftir að stífla brast í N-Nígeríu Óttast er að fjörutíu manns hafi látist þegar stífla gaf sig nærri þorpi í Norður-Nígeríu í gær. Fram kemur í nígerískum fjölmiðlum að starfsfólki við stífluna hafi ekki tekist að opna fyrir hjáleið fyrir vatnið á bak við stífluna eftir gríðarlegar rigningar á svæðinu að undanförnu og því hafi stíflan brostið. Erlent 1.10.2006 13:40
Segir Georgíumenn ögra Rússum í skjóli vestrænna ríkja Vladímír Pútín, forseti Rússlands, segir Georgíumenn reyna að ögra Rússum í skjóli verndar frá vestræðunum ríkjum í tenglsum við njósnadeilu landanna. Erlent 1.10.2006 13:05
Ísraelsher farinn frá Líbanon Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Líbanon seint í gærkvöldi. Þar með hefur einu grundvallarskilyrðinu fyrir vopnahléi milli Hizbollah og Ísraels, verið fullnægt. Erlent 1.10.2006 11:27
Kosið víða um heim í dag Kosningar verða víða um heim í dag. Í Brasilíu eru forsetakosningar og er búist við að núverandi forseti, Luis Ignacio "Lula" da Silva, beri sigur úr býtum. Í Bosníu og Austurríki eru þingkosningar. Í Austurríki sýna skoðanakannanir hnífjafnt fylgi hægri flokks Wolfgangs Schussels og vinstri flokks Alfreds Gusenbauers. Erlent 1.10.2006 10:00
Hermenn komnir að flaki farþegaflugvélar í Amazon Hermenn eru komnir að flaki farþegavélarinnar sem hrapaði í regnskógum Amazon á föstudag. 155 manns voru um borð og þótt björgunarsveit sé komin á staðinn, hefur ekki verið staðfest enn hvort einhverjir eftirlifendur séu. Það er þó talið ólíklegt. Erlent 1.10.2006 09:54
PKK boðar einhliða vopnahlé á morgun Kúrdíski Verkamannaflokkurinn PKK í Tyrklandi, sem barist hefur fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda í suðausturhluta landsins, hefur lýst yfir einhliða vopnahléi sem hefst á morgun. Tilkynning þar að lútandi var gefin út í dag og er svar við ákalli leiðtoga samtakanna, Abdullah Öcalans, sem nú situr í fangelsi. Erlent 30.9.2006 16:30
Fellibylurinn Xangsane nálgast Víetnam Á annað hundrað þúsund manna hefur verið fluttur af heimilum sínum við strendur Mið-Víetnams vegna komu fellibyljarins Xangsane. Búist er við að hann taki land í kvöld eða snemma í fyrramálið og hefur innanlandsflugi einnig verið frestað af þeim sökum. Erlent 30.9.2006 14:40
Fresta því að kalla lið sitt heim vegna njósnadeilu Stjórnvöld í Rússlandi hafa frestað því að kalla herlið sitt heim frá nágrannaríkinu Georgíu í kjölfar deilna þjóðanna um meintar njósnir Rússa í landinu. Erlent 30.9.2006 14:23
Fundu flak farþegavélar í Brasilíu Björgunarvélar hafa fundið flak Boeing 737 farþegaflugvélarinnar sem leitað hefur verið að í regnskógum Amason í Brasilíu síðan í gær. Um borð voru 155 farþegar en ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi komist af. Erlent 30.9.2006 13:45
Tólf látnir eftir sjálfsmorðsárás í Kabúl Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan innanríkisráðuneyti Afganistans í höfuðborginni Kabúl í morgun. Haft er eftir talsmanni ráðuneytisins að 42 hafi slasast í árásinni, þar af tveir lögreglumenn. Erlent 30.9.2006 13:01
Borat vekur athygli á Kasakstan Forseti Kasakstans, Nursultan Nazarbayev er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Heimsóknin hefur vakið meiri athygli en venja er, vegna kvikmyndar breska leikarans Sacha Baron Cohen - sem er betur þekktur sem Ali G - um persónuna Borat, sem á að vera frá Kasakstan. Erlent 30.9.2006 12:31
Sakar Pakistana um að standa á bak við árásir Lögregla í Mumbai á Indlandi segir að pakistanska leyniþjónustan hafi staðið á bak við hryðjuverkaárásir á lestarkerfið í Mumbai þann ellefta júlí síðastliðinni. Erlent 30.9.2006 11:57
Farþegaþotu saknað á Amason-svæðinu Leit er hafin að Boeing 737 farþegaflugvél með að minnsta kosti 150 farþega innanborðs sem hvarf af ratsjám yfir regnskógum Amason í Brasilíu í gær. Vélin, sem var á vegum brasilíska flugfélagsins, Gol átti að lenda í borginni Brasilíu um sexleytið að staðartíma í gær en samband við hana rofnaði um hálffimm. Erlent 30.9.2006 11:55
Reiðhjólin víkja fyrir bílum í Peking Peking, höfuðborg Kína, hefur verið paradís hjólreiðamanna um áratugaskeið. Nú hafa tímarnir hins vegar breyst og tveggja hjóla fákar þurfa að víkja úr vegi fyrir fjögurra hjóla spúandi drekum. Erlent 30.9.2006 10:38
Algjört útgöngubann í Bagdad Stjórnvöld í Írak hafa sett á algjört útgöngubann í höfuðborginni Bagdad í dag. Í yfirlýsingu sem Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, gaf út segir að útgöngubannið gildi til klukkan 18. Fólki er gert að halda sig innan dyra og öll umferð á götum borgarinnar er bönnuð. Erlent 30.9.2006 10:50
Kjósendur hvattir til að refsa Gyurcsany í sveitarstjórnakosningum Sveitarstjórnarkosningar verða í Ungverjalandi um helgina. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa hvatt kjósendur til að nýta tækifærið og láta í ljósi skoðun sína á Gyurcsany forsætisráðherra, en hann viðurkenndi á dögunum að hafa logið blákalt að þjóðinni um stöðu efnahagsmála til að sigra í þingkosningunum í apríl. Erlent 30.9.2006 10:04
Segir Bush hafa tapað hryðjuverkastríðinu Bush Bandaríkjaforseta er lyginn og honum hefur mistekist að sigra í stríðinu við al-Qaida. Þetta sagði Ayman al-Zawahri, næst æðsti maður al-Qaida samtakanna í myndbandsupptöku sem birt var í gær. Erlent 30.9.2006 09:58
Útgöngubann í Írak Stjórnvöld í Írak hafa ætla að setja á útgöngubann í Bagdad höfuðborg landsins á morgun. Í yfirlýsingu sem Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, gaf út segir að útgöngubannið gildi frá miðnætti til klukkan 18:00 á morgun. Erlent 29.9.2006 23:39
Börn ekki undanþegin dauðarefsingu Börn undir átján ára aldri eiga alltaf að vera undanþegin dauðarefsingu að mati mannréttindasérfræðings Sameinuðu þjóðanna sem rannsakað hefur ofbeldi gegn börnum. Einnig eiga þeir sem frömdu glæp þegar þeir voru undir átján ára aldri að vera undanþegnir dauðarefsingu. Kína, Pakistan og Íran hafa á síðstu þremur árum tekið dæmda glæpamenn yngri en átján ára af lífi. Erlent 29.9.2006 22:07
Verðbólga í evrulöndunum lækkar Verðbólga í evrulöndunum tólf lækkaði í september. Hún mældist 1,8% á síðust tólf mánuðum en þetta er minnsti verðbólguhraði á evrusvæðinu frá því í mars 2004. Vegvísir Landsbankans greinir frá þessu og jafnframt að verðbólgan sé nú komin undir 2% viðmiðunarmörk Seðlabanka Evrópu. Erlent 29.9.2006 21:52