Erlendar

Ætlar ekki í máli við Mourinho
Knattspyrnustjórinn Arsene Wenger hjá Arsenal hefur dregið í land með hótanir sínar um að höfða meiðyrðamál á hendur portúgölskum kollega sínum hjá Chelsea, Jose Mourinho, fyrir að kalla sig "gluggagægir" á dögunum.

Ferguson ætlar ekki að kaupa Ballack
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist ekki ætla að reyna að kaupa Þjóðverjann Michael Ballack frá Bayern Munchen og segir lið sitt þegar hafa á að skipa sterkum leikmönnum sem spila sömu stöðu.

Indiana stöðvaði sigurgöngu Cleveland
Tveir leikir voru á dagskrá að kvöldi þakkargjörðardagsins í NBA deildinni í körfubolta í gær. Indiana stöðvaði átta leikja sigurhrinu Cleveland og Los Angeles Lakers unnu góðan sigur á Seattle á heimavelli sínum.

Feginn að sleppa við ákæru
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United segist feginn því að nauðgunarákæra á hendur honum hafi verið látin niður falla.

George Best er dáinn
Knattspyrnukappinn George Best er dáinn. Hann lést á spítala í London nú í morgun. Norður-Írinn Best, sem var 59 ára, gerði garðinn frægann með Manchester United en átti við áfengisvanda að stríða og þurfti að fá ígrædda lifur fyrir rúmum þremur árum.

George Best er látinn
Norður-írska knattspyrnugoðsögnin George Best er látinn á Cromwell sjúkrahúsinu í London. Hann hafði barist fyrir lífi sínu undanfarna daga með alvarlega sýkingu í lungum og var í öndunarvél. Hann hafði ekki komist til meðvitundar í nokkurn tíma og voru vinir hans og ættingjar við hlið hans á spítalanum í gær, þegar læknar gáfu það út að hann ætti skammt eftir.

Indiana - Cleveland í beinni
Það verður sannkallaður Austurdeildarslagur á dagskrá í NBA deildinni í nótt, en það er viðureign Indiana Pacers og Cleveland Cavaliers. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan eitt eftir miðnætti, en þar má gera ráð fyrir hörkurimmu.

Stórt tap hjá Valerenga
Árni Gautur Arason og félagar í Valerenga töpuðu 4-0 fyrir Midtjylland í Royal League, eða Skandinavíudeildinni í kvöld. Start, lið Jóhannesar Harðarsonar töpuðu sömuleiðis 4-2 fyrir sænska liðinu Hammarby, þar sem Jóhannes lék 70 mínútur í liði Start.

Jafnt hjá Alkmaar og Boro
Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough í Evrópukeppni félagsliða. Boro er á toppi riðilsins og er komið áfram í keppninni. Grunnt var á því góða milli Grétars og George Boateng í leiknum og þeir fengu báðir að líta gult spjald fyrir grófar tæklingar hvor á annan.

Ashley Cole spilar ekki á árinu
Arsenal hefur gefið það út að varnarmaðurinn Ashley Cole geti ekki leikið með liðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót. Cole er fótbrotinn, en vonast var til um að hann yrði klár í slaginn í desember.

Reyndi að kaupa Crouch
Stuart Pearce, stjóri Manchester City hefur viðurkennt að hann hafi reynt að kaupa framherjann Peter Crouch frá Southampton á sínum tíma, en hinn langi framherji endaði sem kunnugt er í herbúðum Liverpool. Crouch hefur ekki enn náð að skora í nítján leikjum í vetur, en Pearce telur hann þó vera mjög góðan leikmann.

Bobby Robson hefur áhuga á Portsmouth
Gamla kempan Bobby Robson er sagður koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri Portsmouth, en hann hefur lýst því yfir að hann sé heitur fyrir því að halda áfram að vinna sem knattspyrnustjóri þrátt fyrir að vera kominn vel á áttræðisaldur.

Dagar hans eru taldir að mati lækna
Læknar á Cromwell-sjúkrahúsinu í London segjast óttast að knattspyrnuhetjan George Best látist af veikindum sínum á næsta sólarhring, en hann hefur verið þungt haldinn undanfarið vegna sýkingar í lungum. "Ástandið er orðið það alvarlegt að við erum hræddir um að hann eigi stutt eftir. Það er lítið sem við getum gert núna," sagði talsmaður lækna sem annast Best.

Perrin látinn fara frá Portsmouth
Knattspyrnustjórinn Alain Perrin var í dag látinn taka pokann sinn hjá úrvalsdeildarliði Portsmouth eftir aðeins átta mánuði í starfi. Undir stjórn Perrin náði liðið aðeins fjórum sigrum í tuttugu leikjum og þó Perrin hefði stuðning leikmanna, var í dag ákveðið að láta hann fara. Joe Jordan, þjálfari, tekur við liðinu þangað til eftirmaður Perrin verður fundinn.

Fyrsti sigur Atlanta Hawks
Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA í nótt sem leið og þar bar hæst að Atlanta Hawks vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu þegar það skellti Boston. Detroit og San Antonio héldu sínu striki og burstuðu andstæðinga sína.

Houston - Phoenix í beinni
Leikur Houston Rockets og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan hálf eitt í nótt. Bæði þessi lið hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar vegna meiðsla lykilmanna, en Houston mun í nótt reyna að afstýra fimmta tapi sínu í röð.

Ensku liðin áfram - Shevchenko skoraði fjögur
Ensku liðin Liverpool og Chelsea eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir leiki kvöldsins og úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan undirstrikaði enn og aftur að hann er einn besti markaskorari heimsins þegar hann afgreiddi Fenerbahce með fjórum mörkum.

Eiður getur slegið met Árna í kvöld
Átta leikir verða á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld og leikur Liverpool og Betis verður sýndur klukkan 19:30 á Sýn. Viðureign Anderlecht og Chelsea verður í beinni á Sýn Extra á sama tíma, en þar getur Eiður Smári Guðjohnsen slegið met Árna Gauts Arasonar yfir flesta Evrópuleiki ef hann fær að spila í kvöld.

Taylor er bara "gervimeistari"
Hnefaleikarinn Bernard Hopkins, eða "Böðullinn" eins og hann er jafnan kallaður, segir að andstæðingur sinn Jermain Taylor sé ekkert annað en gervimeistari og ætlar að gersigra hann þegar þeir mætast í hringnum þann 3. desember næstkomandi.

Leikmenn Portsmouth vilja halda í Perrin
Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth, segir að leikmenn liðsins séu allir á einu máli um að Alain Perrin knattspyrnustjóri liðsins eigi að fá frekari tækifæri með liðið þó gengið hafi ekki verið upp á marga fiska undanfarið.

Dæmdur í 18 mánaða keppnisbann
Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough var í dag dæmdur í eins og hálfs árs keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi eftir Evrópuleik Middlesbrough og Xanthi þann 29. september síðastliðinn. Xavier var fundinn sekur um að hafa neitt anabólískra stera og er fyrsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur verið fundinn sekur um brot af þessu tagi.

Ísland niður um eitt sæti
Í dag var birtur nýr styrkleikalisti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, en þar hefur íslenska landsliðið fallið um eitt sæti frá því listinn var birtur síðast og situr í 93. sæti listans. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, Tékkar í öðru og Hollendingar í því þriðja. Þar á eftir koma Argentína, Frakkland, Spánn, Mexíkó, Bandaríkin og Englendingar eru loks í níunda sætinu.

Sítur sambandi við Vodafone á næsta ári
Manchester United hefur borið auglýsingar símafyrirtækisins Vodafone síðan árið 2000, en nú er ljóst að samstarfið nær aðeins út sumarið 2006, þegar knattspyrnufélagið mun leita á önnur mið. Talsmenn símafyrirtækisins segja það ætla að einbeita sér að Meistaradeild Evrópu í framtíðinni.

Áttundi sigur Cleveland í röð
Cleveland Cavaliers vann nokkuð átakalítinn sigur á Boston Celtics í NBA deildinni í nótt, þar sem LeBron James fór á kostum og Dallas Mavericks er einnig á sigurbraut og vann sjötta leikinn í röð.

Ívar og félagar á toppinn
Reading, lið Ívars Ingimarssonar í ensku fyrstu deildinni, komst í gærkvöld á toppinn þegar það vann góðan 3-0 sigur á Ipswich á útivelli. Ívar var að venju í byrjunarliði Reading og átti stóran þátt í einu marka sinna manna.

LeBron James sýnir listir sínar
Leikur Cleveland Cavaliers og Boston Celtics verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í kvöld. Cleveland er heitasta liðið í NBA í dag og hefur unnið sjö leiki í röð og hefur enn ekki tapað á heimavelli sínum. Þarna gefst körfuboltaunnendum gott tækifæri á að sjá sjálfan LeBron James hjá Cleveland sýna listir sínar, en hann hefur verið sjóðandi heitur undanfarið.

Markalaust á Old Trafford
Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin.

Íhugar að fella niður þjóðsöngva á landsleikjum
Sepp Blatter, forseti FIFA, segist vera að hugsa um að leggja fyrir stjórn sambandsins tillögu um að leggja niður þann sið að flytja þjóðsöngva fyrir landsleiki í knattspyrnu vegna þeirrar vanvirðingar sem þjóðir séu farnar að sýna hvor annari við flutning söngvanna í dag.

Ricky Hatton í besta formi á ferlinum
Hnefaleikarinn Ricky Hatton segist vera í besta formi sem hann hafi verið í á ævi sinni og hlakkar til að verja IBF titil sinn gegn Carlos Maussa á laugardagskvöldið, en sá bardagi verður í beinni útsendingu á Sýn.

Stórleikir á Sýn í kvöld
Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen.