Viðskipti
Vill fleiri hluti í GM Viðskipti erlent 29.9.2006 15:32 Ryanair spáir auknum hagnaði Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair spáir því að hagnaður félagsins á yfirstandandi rekstrarári, sem lýkur í mars á næsta ári, muni nema 335 milljónum evra, jafnvirði tæpra 30 milljarða króna. Þetta er 11 prósenta hækkun á milli ára. Viðskipti erlent 29.9.2006 14:35 2,5 prósenta verðbólga í Bandaríkjunum Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósent í Bandaríkjunum í ágúst. Þetta jafngildir 2,5 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli ef undan er skilin hækkun á matvöru- og raforkuverði, samkvæmt útreikningum viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. Verðbólga hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum í rúm 11 ár. Viðskipti erlent 29.9.2006 12:58 « ‹ 119 120 121 122 123 124 125 126 127 … 223 ›
Tæp tvöföldun á veltu Heildarvelta Kauphallar Íslands það sem af er ári nam 3.082 milljörðum króna. Lítið vantar upp á að þetta sé tvöfalt meiri velta en á sama tíma í fyrra því heildarvelta á fyrstu níu mánuðum síðasta árs nam 1.630 milljörðum króna og nemur munurinn 89 prósentum. Þá jók skráning Exista í Kauphöllina í september heildarvirði skráðra félaga um tíu prósent. Viðskipti innlent 3.10.2006 20:16
Ker gekk frá samningaborði Ker, sem er að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar í Samskipum, tilkynnti í gærmorgun að félagið hefði slitið viðræðum við FL Group um kaup á Icelandair Group. Viðskipti innlent 3.10.2006 20:17
Rafhlöður innkallaðar Lenovo og IBM hafa ákveðið að innkalla tilteknar rafhlöður framleiddar af Sony Corporation sem seldar voru með ThinkPad-fartölvum á tímabilinu febrúar 2005 til september 2006. Þetta er gert þar sem einstaka rafhlöður geta í undantekningartilvikum ofhitnað. Þó er einungis vitað um eitt tilfelli þar sem rafhlaða í ThinkPad-fartölvu hefur bilað af rúmlega 500.000 sem eru í notkun. Verður þessum rafhlöðum skipt út viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:16
Styttist í sveigjanlega tölvuskjái Hópur verkfræðinga við Cambridge-háskóla í Bretlandi hefur búið til sveigjanlegar og þunnar plötur úr málmblöndu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að búa til örþunnan tölvuskjá úr sveigjanlegu efni úr málmblöndunni, sem hægt verður að rúlla upp líkt og blaði. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:17
Hulunni svipt af andlitinu á Mars Sérfræðingar Evrópsku geimvísindastofnunarinnar (ESA) hafa svipt hulunni af bungunni leyndardómsfullu á Mars. Um er að ræða hæð eða lítið fjall á yfirborði plánetunnar. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:17
Microsoft ætlar gegn YouTube Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft ætlar að setja á laggirnar þjónustu við myndskrárhluta MSN Video, sem gerir netverjum kleift að setja myndskrár af öllum toga á netið. Með þessu er fyrirtækið að demba sér í samkeppni við vefsetrið YouTube, Google og MySpace. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:17
Nissan flytur framleiðslu til Japans Japanski bílaframleiðandinn Nissan Motors ætlar að flytja framleiðslu á einni gerð fjölskyldubíla frá Bandaríkjunum til Japans. Ákvörðunin er sögð í hagræðingarskyni, auk þess sem fyrirtækið vill rýma fyrir framleiðslu á nýrri gerð bíla frá Nissan í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:16
Tilboð í bandaríska spilavítakeðju Tveir bandarískir fjárfestingarsjóðir, Apollo Management og Texas Pacific Group, hafa gert yfirtökutilboð í bandarísku hótel- og spilavítakeðjuna Harrahs Entertainment. Tilboðið hljóðar upp á 15,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði 1.000 milljarða íslenskra króna. Ef boðið gengur eftir munu þetta verða fjórðu stærstu fyrirtækjakaup sem gerð hafa verið í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:17
Yfirtöku TM á NEMI lokið TM hefur lokið við yfirtöku á norska tryggingafélaginu NEMI. Á hluthafafundi var Óskar Magnússon kjörinn stjórnarformaður en auk þess tók Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar TM, sæti í stjórn auk Anne Gro Sundby, Erling Christiansen og Bjørn Mæhlum. Ivar S. Williksen hefur verið ráðinn forstjóri. Viðskipti erlent 3.10.2006 20:17
Stefnt að skráningu Icelandair fyrir áramót FL Group og Glitnir hafa gert með sér samkomulag sem felur í sér að Glitnir sölutryggir 51 prósents hlut í Icelandair Group. Þetta þýðir að Icelandair Group hverfur úr samstæðu FL Group þegar áreiðanleikakönnun lýkur. Stefnt er að því að henni ljúki um miðjan október og verður Icelandair Group skráð á hlutabréfamarkað fyrir áramót. Viðskipti innlent 3.10.2006 10:50
Næstmesta verðbólgan á Íslandi Verðbólga mældist 3 prósent á ársgrundvelli innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í ágúst. Þetta er 0,1 prósentustigi minni verðbólga en mældist fyrir mánuði. Verðbólgan er líkt og fyrri mánuði næstmest hér á landi en mest í Tyrklandi. Viðskipti innlent 3.10.2006 10:33
Viðræðum um sölu á Icelandair slitið Slitnað hefur upp úr viðræðum FL Group og Kaupþings um kaup bankans á Icelandair, dótturfélagi FL Group, fyrir hönd fjárfestingarfélagsins Kers hf. Ker er í eigu Ólafs Ólafssonar, eiganda Samskipa. Viðskipti innlent 3.10.2006 10:17
Viðskipti stöðvuð með bréf í FL Group Viðskipti voru stöðvuð með bréf FL Group í Kauphöll Íslands í morgun. Ekki liggur fyrir hver ástæðan er á þessari stundu en í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að fréttar sé að vænta. Viðskipti innlent 3.10.2006 09:55
Olíuverðið aftur niður Heimsmarkaðsverð á hráolíu hélt áfram að lækka í dag, annan daginn í röð, á helstu fjármálamörkuðum eftir nokkrar verðhækkanir í síðustu viku. Ástæðan fyrir lækkuninni er bjartsýni fjárfesta um auknar olíubirgðir í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 3.10.2006 09:42
Hvetur til umræðu um krónuna Kostnaður við krónuna sem gjaldmiðil er meiri en nemur ávinningnum af því að halda henni, segir Michael E. Porter, prófessor við Harvard Business School, sem af mörgum er talinn einhver áhrifamesti viðskiptahugsuður vorra tíma. Viðskipti innlent 2.10.2006 21:18
Greiðir út nítján milljarða í arð Arðgreiðslan lokaliður í því að slíta á eignatengsl KB banka við Existu. KB banki hefur boðað til hluthafafundar þann 16. október þar sem stjórn bankans leggur til að bankinn greiði hluthöfum sínum aukaarð í formi hlutabréfa í Existu. Viðskipti innlent 2.10.2006 21:17
Atorka í mál við Kauphöll Íslands Kauphöll Íslands sektaði í gær Atorku Group um 2,5 milljónir króna fyrir villandi upplýsingagjöf í tilkynningu. Atorka mótmælir ákvörðuninni harðlega og kveðst standa vel að upplýsingagjöf og vera það félag Kauphallarinnar sem birti ítarlegust uppgjör um starfsemi sína. Viðskipti innlent 2.10.2006 21:17
Kauphöllin áminnir Atorku Kauphöll Íslands áminnti Atorku Group opinberlega í dag vegna brota á reglum Kauphallarinnar vegna birtingar á uppgjöri félagsins á fyrri hluta ársins. Beitti Kauphöllin félagið 2,5 milljóna króna févíti. Viðskipti innlent 2.10.2006 17:14
Spá hækkun stýrivaxta Greiningardeild Glitnis telur líklegt að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína um 25 punkta 2. nóvember næstkomandi og að vextirnir fari í 14,25 prósent. Þá telur deildin líkur á að bankinn byrji að lækka vexti eftir mars á næsta ári og verði þeir komnir niður í 10 prósent fyrir lok ársins. Viðskipti innlent 2.10.2006 11:21
Sigrún til Evrópuskrifstofu SA Sigrún Kristjánsdóttir hefur hafið störf á Evrópuskrifstofu Samtaka atvinnulífsins í Brussel. Hún tekur við af Evu Margréti Ævarsdóttur sem lætur innan skamms af störfum á Evrópuskrifstofunni. Viðskipti innlent 2.10.2006 10:42
KB banki greiðir arð með bréfum í Exista KB banki hefur boðað til hluthafafundar þann 16. október þar sem stjórn bankans leggur til að bankinn greiði hluthöfum sínum arð í formi hlutabréf í Existu. Arðgreiðslan nemur 19,2 milljörðum króna. Viðskipti innlent 2.10.2006 09:59
Olíuverð hækkar Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að Nígería og Venesúela, sem eru aðildarríki samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, ákváðu að draga úr útflutningi til að bregðast við talsverðum verðlækkunum síðustu vikurnar og draga úr framboð á olíu. Viðskipti erlent 2.10.2006 09:15
SAS sýnir Icelandair áhuga Flugrisinn SAS hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sýnt áhuga á að kanna kaup á Icelandair. Forsvarsmenn SAS hafa sett sig í samband við FL Group og lýst áhuga á að skoða kaup á félaginu. Viðskipti innlent 1.10.2006 22:06
Dótturfélag Eimskips kaupir breskt flutningafyrirtæki Innovate Holdings Limited, dótturfélag Eimskips, hefur fest kaup á Corby Chilled Distribution Limited sem er leiðandi í dreifingu á hitastýrðum matvælum í Bretlandi. Viðskipti innlent 30.9.2006 13:57
Samskip undir nýju merki Á morgun verða tímamót í sögu Samskipa en þá sameinast öll starfsemi félagsins sameinast undir einu nafni og nýju merki. Breytingunum er ætlað að styrkja enn frekar ímynd Samskipa á alþjóðlegum flutningamarkaði. Velta Samskipa hefur þrefaldast er búist við að hún nemi 60 milljörðum króna á yfirstandandi rekstrarári. Viðskipti innlent 29.9.2006 17:10
Samskip undir einu merki Á morgun verða tímamót í sögu Samskipa en þá sameinast öll starfsemi félagsins sameinast undir einu nafni og nýju merki. Breytingunum er ætlað að styrkja enn frekar ímynd Samskipa á alþjóðlegum flutningamarkaði. Velta Samskipa þrefaldast og nema 60 milljörðum króna á yfirstandandi rekstrarári. Viðskipti innlent 29.9.2006 16:59
Nýtt verðmat á Alfesca Greiningardeild Landsbankans hefur gefið út nýtt verðmat á Alfesca. Í verðmatinu segir að umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir Alfesca undanfarið hafi borið árangur. Reksturinn sé á réttri leið og er gert ráð fyrir rekstrarbata næstuárin. Greiningardeildin mælir því með að fjárfestar haldi í bréf sín í félaginu. Viðskipti innlent 29.9.2006 16:04
Ryanair spáir auknum hagnaði Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair spáir því að hagnaður félagsins á yfirstandandi rekstrarári, sem lýkur í mars á næsta ári, muni nema 335 milljónum evra, jafnvirði tæpra 30 milljarða króna. Þetta er 11 prósenta hækkun á milli ára. Viðskipti erlent 29.9.2006 14:35
2,5 prósenta verðbólga í Bandaríkjunum Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósent í Bandaríkjunum í ágúst. Þetta jafngildir 2,5 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli ef undan er skilin hækkun á matvöru- og raforkuverði, samkvæmt útreikningum viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. Verðbólga hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum í rúm 11 ár. Viðskipti erlent 29.9.2006 12:58