Fréttir af flugi
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 144 ›
Fá ekki bætur vegna flugferðar sem seinkaði vegna farþega sem ældi blóði Samgöngustofna hefur hafnað því að bandaríska flugfélagið United Airlines þurfi að greiða tveimur farþegum bætur fyrir seinkun á flugi félagsins frá Íslandi New York í Bandaríkjunum. Seinkunin varð vegna þess að snúa þurfti flugvél félagsins við á leið til Íslands eftir að farþegi ældi blóði skömmu eftir brottför. Innlent 31.1.2022 22:49
Rask á innanlandsflugi vegna hvassviðris og éljagangs Veturinn hefur látið rækilega til sín taka á norðurhveli jarðar um helgina, með tilheyrandi óþægindum. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum vegna veðurofsa á landinu í dag en gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu vestanverðu landinu. Veðurfræðingur varar fólk við því að stunda útivist vegna hvassviðris og éljagangs. Veður 30.1.2022 11:26
Bandaríkjamenn reyna að bjarga herþotu úr sjó Bandaríkjamenn leita nú ráða til að bjarga F-35C herþotu úr Suður-Kínahafi eftir óhapp við lendingu á flugmóðurskipi. Flugmanninum tókst að skjóta sér út úr vélinni áður en hún hrapaði í hafið. Erlent 28.1.2022 23:55
Skiptar skoðanir netverja eftir laumumynd af Icelandair-þotu í nýja búningnum Óhætt er að segja að skiptar skoðanir séu á meðal netverja sem svöruðu tísti belgísks flugáhugamanns þar sem sjá mátti eina af flugvélum Icelandair í nýjum einkennislitum flugfélagsins. Viðskipti innlent 27.1.2022 10:01
Akureyrarvél Icelandair snúið við á miðri leið vegna „tæknilegs atriðis“ Flugvél Icelandair, sem var á leið frá Reykjavíkurflugvelli til Akureyrar í morgun, var snúið við og flogið aftur til Reykjavíkur þegar vélin var rúmlega hálfnuð á leið sinni norður. Innlent 26.1.2022 12:10
Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag. Innlent 25.1.2022 13:11
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. Innlent 25.1.2022 07:36
Mikilvægt að tryggja eðlilega samkeppni á flugvellinum, segir innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, fagnar áliti Samkeppniseftirlitsins um Isavia og mun taka tilmæli eftirlitsstofnunarinnar, sem miða að því að hafa hemil á háttsemi ríkisfyrirtækisins, til ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í skriflegu svari Sigurðs Inga við fyrirspurn Innherja. Innherji 24.1.2022 16:30
Laumufarþegi lifði af langt ferðalag í lendingarbúnaði Lögreglan í Hollandi fann í gær laumufarþega um borð í flutningaþotu frá Cargolux sem hafði flogið frá Suður-Afríku til Schiphol flugvallar í Amsterdam með millilendingu í Nairóbí í Kenýa. Erlent 24.1.2022 07:00
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. Erlent 21.1.2022 19:09
Góð útkoma Boeing Max frestar kaupum á langdrægari þotum Icelandair hyggst bíða með ákvörðun um kaup á stærri þotum þar sem Boeing Max-þoturnar hafa reynst henta leiðakerfi félagsins betur en búist var við. Breiðþotur af gerðinni Boeing Dreamliner og Airbus-þotur eru meðal þeirra sem Icelandair skoðar til að sinna fjarlægari áfangastöðum. Viðskipti innlent 20.1.2022 22:45
Tókst ætlunarverkið: Yngsta kona sögunnar til að fljúga umhverfis hnöttinn Hin nítján ára gamla Zara Rutherford lenti í Belgíu, heimalandi sínu, í dag og er þar með yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina. Erlent 20.1.2022 17:29
Icelandair bætir við sig Boeing 737 MAX 8 farþegaþotum Icelandair hefur komist að samkomulagi við Dubai Aerospace Enterprise (DAE) um langtímaleigu á tveimur nýjum Boeing 737 MAX 8 flugvélum. Gert er ráð fyrir að Boeing afhendi flugvélarnar vorið 2022. Viðskipti innlent 18.1.2022 19:12
Flugfélög vara við óreiðu vegna 5G Forsvarsmenn bandarískra flugfélaga segja að ætlanir samskiptafyrirtækjanna Verizon og AT&T um að kveikja á 5G kerfi þeirra í vikunni muni valda gífurlegri óreiðu. Hætta þurfi við þúsundir flugferða og hagkerfi Bandaríkjanna muni bíða mikla hnekki. Erlent 18.1.2022 15:28
Bandarísk flugfélög ósátt við Kúbuflug Icelandair Þrjú bandarísk flugfélög sem stunda áætlunarflug á milli Bandaríkjanna og Kúbu mótmæltu því að að Icelandair yrði heimilað að fljúga á milli Orlando í Bandaríkjunum og Havana í Kúbu. Bandarísk yfirvöld sögðu engin rök hníga að því að taka mótmæli flugfélagana til greina. Viðskipti innlent 18.1.2022 14:53
Fæddi „kraftaverkabarn“ í háloftunum Kona fæddi barn í flugi flugfélagsins Qatar á leið frá höfuðborginni Doha til Úganda í vikunni. Blessunarlega var læknir um borð sem tók á móti barninu. Móður og barni heilsast vel. Erlent 15.1.2022 10:35
„Aðstæður hverju sinni eru grandskoðaðar til þess að finna lausn“ Isavia hefur fjölgað veðurmælum sem mæla vindhraða á Keflavíkurflugvelli. Þetta er gert til þess að skapa þann möguleika að í einhverjum tilfellum sé hægt sé að hleypa fólki frá borði í vonskuveðri með því að færa flugvélar um stæði. Innlent 12.1.2022 12:21
Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. Viðskipti innlent 12.1.2022 09:23
Vindurinn veldur vandræðum á Keflavíkurflugvelli Ferðalangar, sem lentu á Keflavíkurflugvelli á leiðinni frá Tenerife með flugvél Play í kvöld, munu þurfa að bíða eitthvað eftir að komast heim en svo mikið rok er á flugvellinum að ekki er hægt að hleypa farþegum inn á Leifsstöð. Innlent 11.1.2022 23:45
Eftirlitið segir stjórnvöldum að hafa hemil á Isavia Samkeppniseftirlitið segir háttsemi Isavia á síðustu árum vekja áleitnar spurningar um það hvernig ríkisfyrirtækið nálgast samkeppni og samkeppnismál. Eftirlitið hefur beint tilmælum til ráðherra málaflokksins sem miða að því að skapa heilbrigða umgjörð um starfsemi á Keflavíkurflugvelli, draga úr óhagkvæmni í rekstri hans og efla ferðaþjónustu. Innherji 10.1.2022 14:02
Drógu flugmann úr brakinu andartökum áður en lest keyrði yfir það Lögreglumönnum í Los Angeles í Bandaríkjunum tókst að bjarga flugmanni úr braki lítillar Cessnu-flugvélar sem hrapað hafði á lestarteina, örfáum sekúndum áður en að afvífandi lest keyrði yfir brakið á miklum hraða. Erlent 10.1.2022 13:01
Farþegar sátu fastir í vélinni í einn og hálfan tíma Farþegar frá Kaupmannahöfn sátu fastir í flugvél Play þar sem ekki var hægt að nota landganga. Farþegar fá ekki töskur sínar fyrr en á morgun. Icelandair aflýsti tveimur flugferðum í kvöld vegna veðurs. Innlent 10.1.2022 00:53
Isavia og Íslandsbanki voru oftast í fréttum á árinu 2021 Ríkisfyrirtækið Isavia kom oftast fyrir í fréttum á árinu 2021 samkvæmt úttekt Creditinfo á fjölmiðlaumfjöllun um fyrirtæki. Innherji 9.1.2022 16:08
Ekki þurft að fljúga tómum vélum vegna reglna ESB Nýverið greindi Lufthansa Group frá því að samstæðan sæi fram á fljúga minnst átján þúsund flugferðir í vetur sem það myndi undir eðlilegum kringumstæðum vilja fella niður vegna fárra farþega. Viðskipti innlent 8.1.2022 23:53
Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair Group. Einnig hefur Rakel Óttarsdóttir verið ráðin í starf framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá félaginu. Viðskipti innlent 7.1.2022 14:14
Smit greindist hjá áhöfn Icelandair eftir flug frá Washington D.C. milli jóla og nýárs Smit kom upp hjá áhöfn Icelandair sem flaug hingað til lands frá Washington D.C. 27. desember síðastliðinn. Heimildir Vísis herma að öll áhöfnin hafi reynst smituð af Covid-19 utan flugstjórans en þetta hefur ekki fengist staðfest hjá Icelandair. Innlent 5.1.2022 06:28
Fella niður flug á fimmtudag Vegna þess vonskuveðurs sem spáð er í Keflavík næstkomandi fimmtudag mun Icelandair seinka eða aflýsa tilteknum flugferðum þann daginn. Farþegar munu fá nákvæmar leiðbeiningar um breytingarnar og næstu skref. Innlent 4.1.2022 20:52
Stærsti hluthafinn selt í Play fyrir um milljarð en keypt í Icelandair Akta sjóðir, sem voru á meðal þeirra fjárfesta sem leiddu fjármögnun Play á árinu 2021, hafa á síðustu þremur mánuðum selt yfir þriðjung allra bréfa sinna í flugfélaginu. Innherji 4.1.2022 13:00
Nýfætt barn fannst í ruslatunnu flugvélarsalernis Starfsfólk flugvallar á Máritíus fann nýfætt barn í ruslatunnu inni á salerni flugvélar sem var nýlent á vellinum á nýársdag. Erlent 3.1.2022 23:39
Segir nýtt íbúðahverfi skerða rekstraröryggi flugvallarins Óvíst er hvort Isavia muni afhenda Reykjavíkurborg svæði í Skerjafirði í vor til byggingar nýs íbúðahverfis án frekari rannsókna. Framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia segir húsbyggingar þar hafa umtalsverð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Innlent 3.1.2022 21:53