Stinga upp á einkavæðingu ÍSOR til að varðveita tækifæri í jarðhitageiranum Jarðboranir vara við afleiðingum þess að ríkisstofnunin Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) verði tekin af samkeppnismarkaði ef stórfelld áform umhverfisráðherra um sameiningar stofnana ná fram að ganga. Ákjósanlegra sé að stofna sérstakt félag utan um starfsemi ÍSOR, og jafnvel hleypa einkafjárfestum inn í hluthafahópinn, til að koma í veg fyrir að tækifæri Íslendinga til þátttöku í jarðhitaverkefnum glatist. 14.6.2023 14:03
Stjórn VÍS reynir að útskýra verðmiða Fossa fyrir hluthöfum Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur komið því á framfæri við hluthafa að verðmatið á Fossum fjárfestingabanka taki hvorki tillit til samlegðaráhrifa né þess að hlutirnir sem eigendur Fossa í sínar hendur séu óframseljanlegir í 36 mánuði frá afhendingu. 13.6.2023 12:47
Ísfélagið metið á minnst 80 milljarða króna eftir samruna Ísfélagið, sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, er verðmetið á liðlega 80 milljarða króna samkvæmt tillögu að heimild til endurkaupa sem verður lögð fram á hluthafafundi félagsins í vikunni. Hluthafar Ramma munu fara með tæplega þriðjungshlut í Ísfélaginu. 12.6.2023 15:56
Matsbreytingar hífðu upp afkomu leigufélagsins Bjargs Bjarg íbúðafélag, eitt stærsta leigufélag landsins, hagnaðist um nærri 6,9 milljarða króna á síðasta ári vegna umtalsverðrar matsbreytinga á fasteignasafni félagsins. Afkoma fyrir matsbreytingar var hins vegar neikvæð um ríflega 800 milljónir og versnaði verulega milli ára. 12.6.2023 09:49
„Fýsilegasti kosturinn“ að Kvika selji TM til Íslandsbanka Jakobsson Capital telur líklegt að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku ljúki þannig að tryggingafélagið TM og Kvika eignastýring, sem greiningarfyrirtækið verðmetur á samtals 57 milljarða króna, verði seld til Íslandsbanka. Á meðan markaðsvirði Kviku er svona lágt þykir greinandanum sala eigna fýsilegasti kosturinn í stöðunni en eftir stæði mjög arðsamt lánasafn. 9.6.2023 12:16
Fjögur fyrirtæki í hinsegin vottunarferli og vonir bundnar við fleiri Samtökin 78 vinna nú þegar með fjórum fyrirtækjum að vottun þeirra sem hinsegin vinnustaðir. Framkvæmdastjóri samtakanna segir óskandi að vottunin, sem felur í sér rýni í allar stefnur, ráðningaferli og útgefið efni með hinsegin gleraugum, verði umtalsverð tekjulind þegar fram í sækir en fyrir stærri fyrirtæki nemur kostnaðurinn milljónum króna. 8.6.2023 08:41
Innlend markaðsfjármögnun bankanna of „einhæf“ Innlend markaðsfjármögnun bankanna er of einhæf að mati Seðlabanka Ísland og mikilvægt er að breikka kaupendahóp að óveðtryggðum skuldabréfum bankanna. 7.6.2023 10:01
Slóvakískt félag sem tryggði þúsundir Íslendinga svipt starfsleyfi Seðlabanki Slóvakíu hefur svipt líftryggingafélagið NOVIS starfsleyfinu en fyrirtækið hefur á síðustu árum tryggt þúsundir Íslendinga í gegnum miðlunina Tryggingar og ráðgjöf ehf., sem hefur haft drjúgar tekjur af samstarfinu. 6.6.2023 10:02
Halda örvandi úrræðum til streitu þrátt fyrir varnarorð Seðlabankans Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur ekki tilefni til að bregðast við umsögn Seðlabankans Íslands um framlengingu á úrræðum sem gerir fólki kleift að nýta séreignarsparnað til innborgunar á húsnæðislán. Seðlabankinn telur úrræðin „fremur óheppileg“ á tímum eftirspurnarþenslu. 5.6.2023 11:30
Stækkun flotans lyftir Play upp úr botnsæti listans yfir framlegð í flugi Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að framvegis muni flugfélagið ekki verma botnsætið á listanum yfir rekstrarframlegð á fyrsta ársfjórðungi. Eftir að hafa stækkað flotann upp í tíu vélar sé stærðarhagkvæmnin farin að skila sér í eðlilegra jafnvægi milli kostnaðar og tekna. 2.6.2023 08:58
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent