Fréttamaður

Þórarinn Þórarinsson

Þórarinn er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bóka­markaðnum

„Staðan eftir þennan dag er þannig að seldar bækur eru 103.997 á móti 102.216 í fyrra og enn eru fimm dagar eftir,“ sagði Bryndís Lofts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bóka­markaðar Félags ís­lenskra bókaút­gef­enda, eftir lokun í gær þegar ljóst var að sölu­met síðasta árs verði bætt hressi­lega.

Þúfan veltir þungu flat­böku­hlassi

Þegar hinn rómaði flat­bökustaður La Colina í Borgar­nesi hætti sáu vin­konurnar Rann­veig Rögn Leifs­dóttir og Agnes Hjaltalín Andra­dóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafna­klett. Undir­tektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins.

Fræjum fram­tíðar sáð í gamlar bóka­safns­bækur

„Bókasöfn eru staðir ímyndunar­aflsins en það á sér ekki aðeins stað í bókum heldur einnig í höndum okkar, í því sem við sköpum og við kjósum að gera,“ segir Fanny Sissoko sem ásamt Mar­tynu Daniel heldur utan um Framtíðar­festi­valið á Borgar­bók­s­afninu þetta árið.

Gríðar­legur verð­munur á þyngdarstjórnunarlyfjum

Ríflega tvöfaldur verðmunur, eða allt að 140 prósenta munur, er á á dýrasta og ódýrasta þyngdarstjórnunarlyfinu hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun mega hinsvegar ekki hvaða læknar sem er ávísa ódýrasta lyfinu auk þess sem það er skilgreint sem ávana- og fíknilyf.

Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög

Goðar Ásatrúarfélagsins fordæma um­mæli kanslara kaþólsku kirkjunnar á Ís­landi, um sam­kyn­hneigða. Kjal­nesingagoðinn Jóhanna Harðar­dóttir segir um sjálf­sagt viðbragð að ræða enda séu engir guðir hafnir yfir lands­lög, fyrir utan að mikið er um sam­kyn­hneigt fólk í hópi ís­lenskra heiðingja.

Síminn búinn að glamra í fjóra ára­tugi

Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskars­dóttir og Víglundur Jón Gunnars­son sett mark á bæjar­braginn í Nes­kaups­stað með fjöl­breyti­legum og persónu­legum verslunar­rekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í bygginga­vöru­versluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí.

Flóttinn frá Dúbaí gengur vel

Kærustu­parið Davíð Guðlaugs­son og Lovísa Ósk Davíðs­dóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt út­lit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp.

Sjá meira