Fréttamaður

Svava Marín Óskarsdóttir

Svava Marín er fréttamaður á Lífinu á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Benni Boga og Úlla selja einbýlið við Freyju­götu

Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar og eiginkona hans, Úlla Káradóttir, hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt við Freyjugötu 37 á sölu. Húsið var teiknað af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingarmeistara árið 1933.

Biggi lögga og Sísi gengin í hnapp­helduna

Birgir Örn Guðjónsson, þekktur sem Biggi lögga, og Sísí Ingólfsdóttir listakona gengu í hnapphelduna liðna helgi í Fríkirkjunni í Reykjavík. Bjarni Sæmundsson, leikari og athafnastjóri hjá Siðmennt, gaf parið saman í návist þeirra nánustu fjölskyldu og vina.

Sonur Birgis Steins og Rakelar kominn með nafn

Sonur Birgis Steins Stefánssonar, tónlistarmanns og flugþjóns, og unnustu hans Rakelar Sigurðardóttur var skírður um helgina. Drengurinn fékk nafnið Emanúel Dagur.

„Nafnið Verona hefur sterka þýðingu í hugum okkar eig­enda“

Verslun fjölmiðlakonunnar, Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hauks Inga Guðnasonar og vinahjónanna, Martinu Vigdísar Nardini og Jóns Helga Erlendssonar, hefur fengið nafnið Verona. Í Verona sameinast tvær rótgrónar verslanir; Duxiana og Gegnum glerið sem voru áður í Ármúla 10 um árabil. Ný verslun opnar í dag við Ármúla 17.

Berg­steinn og Vig­dís selja í Vogunum

Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV, og Vigdís Másdóttir, nýráðin kynningar- og markaðsstjóri menningarmála í Kópavogi hafa sett íbúð sína við Karfavog í Reykjavík á sölu.

Hönnunarperla úr smiðju HAF-hjóna til sölu

Við Sólvallagötu í Reykjavík stendur yfirmáta sjarmerandi íbúð í húsi sem byggt var árið 1944. Íbúðin var endurhönnuð af fyrri eigendum, Haf-hjónunum Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni, árið 2018 á afar glæsilegan máta.

Dóttir Haf­þórs Júlíusar og Kelsey fæddist and­vana

Dóttir kraftajötunsins Hafþórs Júlíusar Björnssonar og eiginkonu hans Kelsey Henson fæddist andvana eftir rúmlega 21. vikna meðgöngu í vikunni. Hjónin greina frá þessu í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

„Mig vantar hjálp en hún er ekki í boði“

„Mig vantar hjálp en hún er ekki í boði,“ segir viðmælandi Gunnars Inga Valgeirssonar, í viðtalsþættinum Lífið á biðlista. Viðmælandinn er karlmaður sem kýs að vera nafnlaus. Hann er heimilislaus í virki neyslu en dreymir um betra líf til að geta verið til staðar fyrir fjölskyldu sína og vini. 

Töfrandi endur­fundir Lindu Pé í London

Linda Pétursdóttir, fegurðardrottning og athafnakona, átti töfrandi kvöldstund með fjölskyldu sinni og vinum úr fegurðarsamkeppninni Ungfrú heimur á glæsihótelinu The Sa­voy í Lund­ún­um í vikunni. 

Sjá meira