Rúnar Alex rólegur yfir ákvörðun Frakka og nýtur fæðingarorlofsins Ekki verður spilaður aftur fótbolti í Frakklandi fyrr en í fyrsta lagi í september, vegna kórónuveirufaraldursins, og tímabilinu er því lokið hjá Rúnari Alex Rúnarssyni, markverði Dijon. 30.4.2020 07:00
Dagskráin í dag: Óli Kristjáns rifjar upp Íslandsmeistaraár Blika, frábærir fótboltaleikir og Birkir Már í FIFA 20 Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. 30.4.2020 06:00
„Þetta gæti pirrað leikmenn“ Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason er á leið úr atvinnumennsku í Ungverjalandi til Vals. Gestir Gumma Ben í Sportinu í kvöld segja slíkt vandmeðfarið í ljósi þess að leikmenn Vals hafi tekið á sig launalækkun vegna kórónuveirukrísunnar, en telja þó að það valdi ekki vandræðum. 29.4.2020 23:00
Lykilatriði að fá börnin á æfingar í maí: „Fundist þetta mjög erfitt“ Pálmar Ragnarsson, körfuboltaþjálfari í yngri flokkum Vals, segir mikilvægt að fá börn í innanhússíþróttum aftur inn á æfingar í maí til að klára tímabilið almennilega og hindra brottfall í sumar. 29.4.2020 22:00
Bein útsending: KR White og Fylkir mætast í Counter-Strike Leikur KR White og Fylkis í Counter-Strike í Vodafone-deildinni er í beinni útsendingu hér á Vísi og á Stöð 2 eSport. 29.4.2020 21:01
Watford fær franskan miðjumann Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur í miðju óvissuástandi vegna kórónuveirufaraldursins tryggt sér krafta franska miðjumannsins Pape Gueye. 29.4.2020 21:00
Willum heldur áfram að spila og komst í bikarúrslit Hvít-Rússar hafa ekkert hlé gert á fótbolta vegna kórónuveirufaraldursins og Willum Þór Willumsson hefur því einn Íslendinga verið að spila alvöru fótbolta síðustu vikurnar. Hann komst í kvöld í bikarúrslit. 29.4.2020 20:31
Fá að standa á heimaleikjum Man. Utd Manchester United hefur fengið leyfi fyrir því að hafa svæði á Old Trafford þar sem 1.500 stuðningsmenn geta staðið á leikjum liðsins í stað þess að sitja. 29.4.2020 20:01
Óli Stef og þýska landsliðið heiðra Guðjón: „Einn af bestu handboltamönnum heimsins“ Ólafur Stefánsson fer afar fögrum orðum um félaga sinn til margra ára úr íslenska landsliðinu, Guðjón Val Sigurðsson, eftir að Guðjón tilkynnti í dag að handboltaskórnir væru komnir í hilluna. Andstæðingar hans í þýska landsliðinu þakka fyrir marga góða leiki. 29.4.2020 19:30
Umfangsmikil rannsókn á líkamlegu atgervi ungs knattspyrnufólks: „Gríðarlega gott verkfæri fyrir iðkendur og þjálfara“ „Þetta er gríðarlega gott verkfæri fyrir iðkendur, þjálfara og KSÍ,“ segja knattspyrnukonurnar Lára Hafliðadóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir sem í meistaranámi sínu í íþróttafræði við HR hafa kannað líkamlegt atgervi 15-16 ára knattspyrnufólks á Íslandi. 29.4.2020 19:00