Fundað um hvort leika ætti golf Framkvæmdastjórn Golfsambands Íslands fundar nú fyrir hádegi með Víði Reynisson yfirlögregluþjóni og Guðrúnu Aspelund, yfirlækni á sóttvarnasviði, um stöðu golfíþróttarinnar á höfuðborgarsvæðinu. 9.10.2020 09:53
Umfjöllun: Ísland - Rúmenía 2-1 | Gylfi kom Íslandi skrefi nær þriðja stórmótinu í röð Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í 2-1 sigri á Rúmeníu í umspili um sæti á EM á Laugardalsvellinum í kvöld. 8.10.2020 23:00
Aron fær að vera áfram Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður áfram í íslenska hópnum fram yfir leikinn við Danmörku í Þjóðadeildinni á sunnudaginn. 8.10.2020 21:43
Engar afsakanir hjá þjálfara Rúmena Þrátt fyrir spurningar fjölmiðlamanna um dómgæslu og vallaraðstæður hafði Mirel Radoi, þjálfari Rúmeníu, engan áhuga á að nota annað en spilamennsku sinna manna sem ástæðu fyrir tapinu gegn Íslandi. 8.10.2020 21:18
„Við erum öll öskrandi fólk“ „Þetta er bara geggjað fyrir okkur og ótrúlega mikill heiður,“ segir Hilmar Jökull Stefánsson, einn af 60 Tólfumeðlimum sem munu hvetja Ísland til dáða gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli í kvöld. 8.10.2020 15:30
Sekt vegna ummæla í hlaðvarpi: Brenni Laugardalinn ef hann fær ekki tveggja leikja bann Mikael Nikulásson, þjálfari Njarðvíkur, rýrði álit almennings á fótbolta og starfi knattspyrnuhreyfingarinnar með ummælum í hlaðvarpsþætti. Knattspyrnudeild Njarðvíkur var því sektuð um 50 þúsund krónur. 8.10.2020 15:03
Ísland með þaulvanar skyttur ráðist úrslitin í vítakeppni Íslenska karlalandsliðið í fótbolta gæti þurft að fara í sína fyrstu vítaspyrnukeppni í kvöld, fari svo að jafnt verði gegn Rúmeníu að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. 8.10.2020 13:01
Stöðva allt íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu ættu að gera hlé á öllum æfingum og keppni til og með 19. október samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. 8.10.2020 12:05
Afturhvarf til EM í Frakklandi í kvöld? Ekki er útilokað að Ísland stilli upp nákvæmlega sama byrjunarliði og í leikjum sínum á EM 2016, þegar liðið freistar þess að komast nær næsta Evrópumóti með sigri á Rúmeníu í kvöld. 8.10.2020 10:46
Skoruðu fjögur mörk í síðasta leiknum fyrir Íslandsför Danmörk og Færeyjar mætast í beinni útsendingu kl. 16 hér á Vísi í vináttulandsleik karla í fótbolta. Danir eiga svo að mæta Íslendingum á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni á sunnudag. 7.10.2020 17:49