Gísli óttaðist um ferilinn en stuðningur mömmu hjálpaði Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, óttaðist að handboltaferlinum væri lokið þegar hann fór úr axlarlið í síðasta mánuði. Áfallið var mikið en Gísli fékk uppörvandi skilaboð frá lækninum sem sér um aðgerð á öxlinni. 7.4.2021 10:01
Aðstoðardómari fékk eiginhandaráritun Haalands eftir leik Stuðningsmenn Manchester City vonast til þess að Erling Braut Haaland skrifi undir samning hjá félaginu í sumar. Hann var vissulega með penna á lofti á Etihad-leikvanginum í gærkvöld en það var þó í öðrum og undarlegri tilgangi. 7.4.2021 08:30
„Lét eins og að Mané stundaði dýfingar“ Jürgen Klopp sagði Liverpool-menn ekki hafa átt meira skilið en 3-1 tap gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Hann furðaði sig þó á störfum dómarans Felix Brych og sagði hann hljóta að hafa eitthvað perónulegt á móti Sadio Mané. 7.4.2021 08:02
Curry kreisti fram mikilvægan sigur „Við vitum allir hversu mikið við þurftum á þessu að halda,“ sagði Stephen Curry eftir að hafa leitt Golden State Warriors til eins stigs sigurs á Milwaukee Bucks, 122-121, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 7.4.2021 07:31
„Fullkomin lausn“ fyrir Willum sem var samt svekktur Willum Þór Willumsson varð að gera sér að góðu að standa utan hóps í gærkvöld, eftir að hafa ferðast frá EM í Ungverjalandi til móts við A-landsliðið vegna leiksins í Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta. 1.4.2021 09:00
Segir mikla pressu á Sveini vegna nafnsins en að hann höndli hana vel „Það er pressa á drengnum en það er ótrúlegt hvað hann höndlar það vel. Hann er bara svo vel gerður. Það hlýtur að koma úr móðurætt,“ sagði Arnar Þór Viðarsson léttur í bragði þegar hann ræddi um Svein Aron Guðjohnsen eftir sigurinn á Liechtenstein í kvöld. 31.3.2021 22:39
Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 1-4 | Kærkominn sigur í Vaduz Ísland vann kærkominn sigur á Liechtenstein, 1-4, þegar liðin áttust við á Rheinpark Stadion í Vaduz í kvöld. Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson (víti) skoruðu mörk Íslendinga. Yanik Frick skoraði mark Liechtensteina beint úr hornspyrnu. 31.3.2021 20:30
Barcelona bíður Söru Barcelona tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með því að slá út Manchester City. City vann 2-1 í Englandi í dag en Barcelona hafði unnið fyrri leikinn 3-0 og vann því einvígið 4-2. 31.3.2021 16:52
Þrír miðverðir í byrjunarliðinu gegn Frökkum í dag Davíð Snorri Jónasson hefur tilkynnt byrjunarlið U21-landsliðsins fyrir síðasta leik þess í Györ, í riðlakeppni EM í fótbolta. 31.3.2021 14:38
Chelsea sló út silfurliðið og kvað Wolfsburggrýluna í kútinn Chelsea komst í dag í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna þegar liðið vann 3-0 sigur gegn Wolfsburg í Búdapest. Chelsea vann einvígi liðanna samtals 5-1. 31.3.2021 14:04
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti