Fagnaðarlæti í flugstöðinni í meistaramyndbandi KA/Þórs Leikmenn KA/Þórs skráðu sig í sögubækurnar með því að vinna Olís-deildina í handbolta í fyrsta sinn, nú þegar deildin hefur líklega aldrei verið sterkari. Liðið fékk frábærar móttökur við komuna til Akureyrar eftir að hafa tryggt sér titilinn. 11.5.2021 12:31
„Skurðlæknirinn“ Logi mun áfram skera upp andstæðingana „Þetta verður 25. tímabilið mitt í röð í meistaraflokki og það er mikið afrek fyrir íþróttamann. Ég hef lagt mikið á mig til þess,“ segir körfuboltagoðsögnin Logi Gunnarsson sem mun spila 40 ára að aldri í Dominos-deildinni á næstu leiktíð. 11.5.2021 12:00
„Allir á Íslandi vissu þetta á undan okkur“ Sveindís Jane Jónsdóttir er á góðum batavegi eftir að hafa meiðst í hné í leik með Kristianstad á dögunum. Liðsfélagar hennar fögnuðu líkt og þeir hefðu unnið HM þegar í ljós kom að hún hefði ekki slitið krossband, eins og óttast var, en þeir fengu reyndar fréttirnar á eftir Íslendingum. 10.5.2021 15:31
Birkir með naumindum í umspilið þar sem tvö Íslendingalið spila Salernitana vann sér í dag sæti í ítölsku A-deildinni í fótbolta með. Íslendingaliðin Venezia og Brescia leika í umspili sex liða um að komast upp. 10.5.2021 14:24
Flestallt lokað á Króknum en leikur við Stjörnuna í kvöld: „Mér finnst það svolítið skrýtið“ Þrátt fyrir að skólum, fyrirtækjum, sundlaugum og skíðasvæði hafi verið lokað í Skagafirði vegna kórónuveirusmita þá verður spilað þar í kvöld í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta. 10.5.2021 13:32
Hatrið ekki slíkt að menn vilji láta Njarðvík falla Keflvíkingar gætu komist í þá stöðu í kvöld að geta sent erkifjendur sína í Njarðvík niður í 1. deild, með því að tapa gegn Hetti á Egilsstöðum. Þeir hafa hins vegar meiri áhuga á því Njarðvík haldi sér uppi og að liðin mætist í úrslitakeppninni. 10.5.2021 11:31
Risar mætast í Krikanum þar sem titilbaráttan réðst síðast Þegar líður að lokum Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í haust eru ágætis líkur á því að úrslitin í stórleik FH og Vals, í Kaplakrika í kvöld, hafi áhrif á það hvaða lið landar Íslandsmeistaratitlinum. 9.5.2021 11:00
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir - Breiðablik 3-3 | Jason Daði bjargaði stigi fyrir Blika Breiðablik rétt slapp með 3-3 jafntefli úr Breiðholti eftir leik sinn við Leikni í 2. umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. 8.5.2021 22:15
Óskar Hrafn: Gjafmildir, mjúkir og grófum okkur holu „Ég er bara sáttur með stigið,“ voru fyrstu viðbrögð Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks, eftir 3-3 jafntefli við nýliða Leiknis í Breiðholti í kvöld, í 2. umferð Pepsi Max deildar karla. 8.5.2021 21:45
Guðmundur Andri tikkar í réttu boxin og losnar úr sóttkví í dag „Við fögnum alltaf þegar við fáum góða leikmenn,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, um komu knattspyrnumannsins Guðmundar Andra Tryggvasonar á Hlíðarenda. 7.5.2021 17:01