Ísland upp fyrir Kína og sænska silfurliðið á flugi Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er það tíunda besta í Evrópu og það sextánda besta í heimi samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag. 20.8.2021 16:30
Cecilía hjá Everton til 2024 og segir liðið á leið að verða eitt það besta í Evrópu Cecilía Rán Rúnarsdóttir gengur í raðir Everton í janúar og hefur skrifað undir samning við enska knattspyrnufélagið sem gildir fram í júní 2024. 20.8.2021 15:50
Strákarnir endurnýja kynnin við Svía eftir tap gegn Portúgal Íslenska U19-landsliðið í handbolta karla varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 33-30, á Evrópumótinu í Króatíu í dag. Ísland leikur því um 7. sæti á mótinu. 20.8.2021 14:56
„Afreksíþróttamiðstöð ein og sér er ekki bara lausnin“ Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, segir íþróttahreyfinguna þurfa að gera upp við sig hvernig áherslur eigi að vera í afreksíþróttastarfinu, svo sem hvort það sé forgangsverkefni að koma á fót miðlægri afreksíþróttamiðstöð og hversu umfangsmikil hún eigi að vera. 20.8.2021 14:31
Búin undir að fá þúsundir á Laugardalsvöll ef Svandís gefur grænt ljós Eins og staðan er núna gætu 2.300 áhorfendur mætt á hvern af leikjum Íslands við Þýskaland, Rúmeníu og Norður-Makedóníu, í undankeppni HM karla í fótbolta. Vonir standa hins vegar til þess að fleiri fái að mæta á Laugardalsvöll. 20.8.2021 13:01
Auglýsingar og sjónvarpspallur taka 500 sæti á Laugardalsvelli Gera þarf talsverðar breytingar á Laugardalsvelli og fórna 500 sætum vegna stórrar útsendingar þýskrar sjónvarpsstöðvar frá leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM karla í fótbolta í næsta mánuði. 20.8.2021 11:40
Blikakonur nær tugum milljóna og desemberleikjum Íslandsmeistarar Breiðabliks í fótbolta kvenna eiga ágæta möguleika á því að verða í hópi 16 bestu liða Evrópu sem leika í nýrri riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu frá október fram í desember. Það myndi skila félaginu tugmilljónum króna í kassann. 20.8.2021 10:00
Sjáðu Brennuþrennuna og mörk systranna Brenna Lovera skoraði þrennu fyrir Selfoss í 4-3 sigrinum gegn Fylki í Árbæ í gærkvöld og er markahæst í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta. Mörkin úr leiknum má nú sjá á Vísi. 19.8.2021 17:31
KR-ingar skikkaðir í sóttkví fram yfir helgi Leikmenn, þjálfarar og aðrir úr starfsliði KR í 1-0 sigrinum gegn HK í Kórnum á mánudag eru komnir í sóttkví. Ástæðan er sú að leikmaður úr byrjunarliði KR greindist með kórónuveirusmit. 19.8.2021 13:00
Alfreð hættir á Selfossi Alfreð Elías Jóhannsson hættir sem þjálfari kvennaliðs Selfoss í fótbolta í haust. Hann greindi frá þessu sjálfur á Facebook. 19.8.2021 11:55