Kyssti KA-merkið og Arnar og sannfærði sérfræðingana um breytta tíma „Þetta er herra KA,“ sagði Stefán Árni Pálsson í Seinni bylgjunni og birti myndskeið af ástríðufullum Jóni Heiðari Sigurðssyni í jafntefli KA við ÍBV í Olís-deildinni í handbolta í gærkvöld. 25.2.2022 16:00
Ólafur Kristjáns ráðinn til Breiðabliks Ólafur Kristjánsson, sem stýrði karlaliði Breiðabliks þegar það varð Íslandsmeistari í fótbolta í fyrsta og eina sinn árið 2010, hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. 25.2.2022 14:12
Upphitun Seinni bylgjunnar: Uppgjör tveggja liða sem þurfa að gefa í Strákarnir í Seinni bylgjunni hituðu vandlega upp fyrir 16. umferðina í Olís-deild karla í handbolta og þáttinn má sjá hér á Vísi. 25.2.2022 14:01
Stórleikir í undanúrslitum bikarsins Það verða sannkallaðir stórleikir á dagskrá í undanúrslitum Coca Cola-bikars kvenna og karla í handbolta í mars en dregið var í dag. 25.2.2022 13:28
Hollenskir og belgískir mótherjar bíða Íslendinganna Þrjú Íslendingalið voru í skálinni þegar dregið var í 16-liða úrslit Sambandsdeildar UEFA í fótbolta í dag. 25.2.2022 12:46
Arnar frá Færeyjum í Kórinn Arnar Gunnarsson hefur verið ráðinn til starfa hjá HK og mun stýra kvennaliði félagsins í handbolta út leiktíðina. 25.2.2022 12:32
Meistararnir kynntu Ekroth til leiks Sænski miðvörðurinn Oliver Ekroth verður í vörn Íslands- og bikarmeistara Víkings í sumar en hann var í dag formlega kynntur til leiks í Víkinni. 25.2.2022 12:16
Hamrarnir til Spánar og Barcelona mætir Galatasaray Austurríska liðið RB Leipzig dróst gegn Spartak Moskvu í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og bíður þess því að vita hvar útileikurinn verður spilaður því UEFA hefur ákveðið að loka fyrir leiki í Rússlandi og Úkraínu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. 25.2.2022 11:30
Harri ætlaði að hætta í sumar en var rekinn Eftir að hafa sagt frá því í viðtali í byrjun vikunnar að hann myndi hætta sem þjálfari kvennaliðs HK í handbolta í sumar hefur Halldór Harri Kristjánsson nú verið rekinn frá félaginu. 25.2.2022 10:46
Jón Axel búinn að græja veitingastað í Bologna Jón Axel Guðmundsson er á leið til Bologna á Ítalíu, þar sem hann spilaði fyrri hluta leiktíðar, til að mæta Ítölum öðru sinni í undankeppni HM í körfubolta. Ísland vann þegar liðin mættust í Ólafssal í gær í tvíframlengdum trylli. 25.2.2022 10:01