Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Fimm kærur hafa verið lagðar fram vegna fyrirhugaðs flutnings Kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Íbúar lýsa yfir áhyggjum af því að starfsemi verði hafin í húsinu áður en niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála liggur fyrir. Undirskriftasöfnun stendur yfir á island.is og hópur íbúa krafði framboðin um svör fyrir borgarstjórnarkosningar. 7.6.2026 17:25
Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum sem treystu sér ekki til að halda för áfram. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni. 7.6.2026 15:11
Flugmenn og Icelandair funda á morgun Fundað verður í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan 16 á morgun. Í samtali við fréttastofu segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, að ekki sé vitað hvort deiluaðilar færist nær hvor öðrum. Skýrari mynd fáist á það á fundinum. 7.6.2026 14:46
Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er undir eftirliti Landhelgisgæslu Íslands en skipið er þessa stundina á siglingu vestur af landinu. Það sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun en er með takmarkaðan vopnabúnað. Engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu. 7.6.2026 11:11
Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Ingveldur Anna Sigurðardóttir mun á næstu dögum taka sæti á Alþingi Íslendinga. Hún er tuttugu og níu ára gömul og verður yngst í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ingveldur vill láta til sín taka og segir að það nægi ekki að sitja heima við eldhúsborðið og nöldra. „Ég held þau hafi bara gott af því að fá eina skvettu inn í þingflokkinn,“ segir Ingveldur. 6.6.2026 19:01
Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) hélt í dag flokksráðsfund sinn. Áherslumál voru málefni vinnumarkaðarins og umhverfismál. Rósa Björk Brynjólfsdóttir flutti ræðu í upphafi fundar. 6.6.2026 16:29
Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun. 6.6.2026 15:40
Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Ásta Stefánsdóttir hefur verið endurráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Ásta hefur gegnt stöðunni síðastliðin átta ár. Ný sveitarstjórn kom í vikunni saman á sínum fyrsta fundi. 6.6.2026 14:29
Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út í morgun eftir tilkynningu um umferðarslys í Öræfum. Fyrstar á vettvang voru björgunarsveitir. 6.6.2026 14:05
Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6.6.2026 12:49