Hvasst á sunnanverðu landinu Búast má við hvassviðri á sunnanverðu landinu fram eftir degi. Skil nálgast landið úr suðaustri og snýst því í norðaustanátt í dag með kalda og stiningskalda víða og dálítilli vætu. Þó mun rofa til um landið suðvestanvert. 1.10.2023 08:36
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. 1.10.2023 08:05
Lokun stofnana vestanhafs virðist óhjákvæmileg Ekkert virðist geta komið í veg fyrir lokun opinberra stofnana í Bandaríkjunum. Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildarinnar, þvertekur fyrir að frumvarp frá öldungadeildinni um fjármögnun ríkisrekstursins verði tekið fyrir í fulltrúadeildinni en harðlínumenn í Repúblikanaflokknum eru sagðir ætla sér að velta McCarthy úr sessi. 29.9.2023 15:59
Dianne Feinstein, elsti öldungadeilarþingmaðurinn, er látin Dianne Feinstein, elsti öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna, er látin. Feinstein ruddi marga múra niður fyrir konur á sínum langa ferli í stjórnmálum en hún var níutíu ára gömul og hafði glímt við veikindi. Hún er sögð hafa dáið á heimili sínu í gærkvöldi. 29.9.2023 14:48
Skólabörn frá Vopnafirði urðu strandaglópar í Amsterdam Skólabörn frá Vopnafjarðarskóla urðu strandaglópar í Amsterdam í dag eftir að yfirbókað var í flugvél frá Play sem flogið var heim til Íslands. Þau verða flutt til Brussel og flogið til Íslands á morgun. 29.9.2023 14:05
Tvær mannskæðar sprengingar í Pakistan Að minnsta kosti 52 eru látnir og nærri því sjötíu særðir eftir sprengjuárás í Pakistan í morgun. Sprengja sprakk þar sem fjöldi fólks hafði komið saman til að fagna afmæli spámannsins Múhameðs en árásin er ein sú mannskæðasta á landinu á undanförnum árum. 29.9.2023 13:10
Höfðu varað við „geðsjúkri hegðun“ byssumannsins Búið var að vara við árásarmanninum í Rotterdam. Saksóknarar höfðu sent háskólasjúkrahúsi þar sem hann var nemandi viðvörun vegna hegðunar hans. Maðurinn, sem er 32 ára gamall, framdi tvær skotárásir í Hollandi í gær þar sem hann skaut þrjá til bana. 29.9.2023 12:03
Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu. 29.9.2023 11:04
Hryllingur í Dælunni Strákarnir í Dælunni ætla að láta reyna á taugarnar í kvöld. Þá munu strákarnir spila hryllingsleikinn Outlast. 28.9.2023 20:31
Vivaldi bítur í Eplið Vafrinn Vivaldi er nú aðgengilegur notendum snjalltækja Apple. Búið er að gera útgáfu af vafranum fyrir iOS stýrikerfið sem hægt er að nálgast í App Store. 28.9.2023 15:13