Ánægður eftir „alvöru bikarleik“ í Nottingham Jürgen Klopp var óhemju ánægður eftir nauman eins marks sigur sinna manna í Liverpool gegn B-deildarliði Nottingham Forest í átta liða úrslitum enska FA-bikarsins í kvöld. Klopp hrósaði Nottingham fyrir að gera þetta að „alvöru bikarleik.“ 20.3.2022 21:00
Duplantis bætti eigið heimsmet enn á ný Hinn sænski Armand Gustav Duplantis bætti eigið heimsmet í stangarstökki enn á ný en aðeins eru 13 dagar síðan hann bætti það síðast. 20.3.2022 20:31
Jota skaut Liverpool í undanúrslit FA-bikarsins: Mæta Man City Liverpool er komið í undanúrslit FA-bikarsins í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á B-deildarliði Nottingham Forest. Liverpool er síðasta liðið inn í undanúrslitin, þar mætir liðið Manchester City á meðan Chelsea og Crystal Palace mætast í hinum leiknum. 20.3.2022 20:00
Rojas stórbætti eigið heimsmet Yulimar Rojas frá Venesúela gerði sér lítið fyrir og stórbætti eigið heimsmet í þrístökki kvenna á heimsmeistaramótinu innanhúss í frjálsum íþróttum. Mótið fer fram í Belgrad í Serbíu. 20.3.2022 19:46
Roma pakkaði Lazio saman í borgarslagnum um Róm Roma vann frábæran 3-0 sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í Lazio er liðin mættust í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 20.3.2022 19:15
Tottenham upp fyrir Man Utd með sigri á West Ham Tottenham Hotspur er komið upp í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á West Ham United. 20.3.2022 18:35
Martin hafði naumlega betur gegn Tryggva Landsliðsmennirnir Martin Hermannsson og Tryggvi Snær Hlinason mættust í ACB-deildinni í körfubolta í dag er Valencia vann nauman tveggja stiga sigur á Basket Zaragoza, lokatölur 81-79. 20.3.2022 18:16
Hafþór Júlíus eftir sigurinn gegn Eddie Hall: „Tæknin vann í kvöld“ Hafþór Júlíus Björnsson vann Eddie Hall í því sem hefur verið kallað þyngsti boxbardagi sögunnar. Bardagi þeirra félaga endaði á dómaraborðinu en þar dæmdu allir Hafþóri í vil. Hann hrósaði Hall eftir bardagann og sagði jafnframt að sér liði eins og tæknin hefði unnið. 20.3.2022 18:00
Leclerc vann í Barein | Verstappen þurfti að hætta keppni Ferrari byrjar nýtt tímabil í Formúlu 1 af miklum krafti en fyrsti kappakstur ársins fór fram í Barein í dag. Charles Leclerc og Carlos Sainz komu fyrstir í mark en þar á eftir kom Lewis Hamilton hjá Mercedes eftir erfiðan hring. Ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen lauk ekki keppni. 20.3.2022 17:21
Man City í undanúrslit eftir stórsigur á Southampton Manchester City vann 4-1 sigur á Southampton í átta liða úrslitum FA bikarsins í knattspyrnu. Man City er þar með komið í undanúrslit ásamt Chelsea og Crystal Palace. Síðar í kvöld kemur í ljós hvort Liverpool eða Nottingham Forest verði síðasta liðið inn í undanúrslit. 20.3.2022 17:00