Sex einkenni um að þú sért í miðaldrakrísu í vinnunni Stundum vantar okkur orð til að lýsa einhverju sem þó er nokkuð algengt að fólk upplifi. Eins og til dæmis það að upplifa miðaldrakrísu í vinnunni. Já, það er til. 22.3.2024 07:01
Plankavinir, kaka fyrir vinnufélaga, leika sér með börnum og hafa gaman Plankavinafélag samstarfsfélaga, kaka fyrir samstarfsfélagana eftir hverja 1000 kílómetra á hjóli og að leika sér með börnum eru allt dæmi um hvernig starfsfólk hjá Reykjavíkurborg hefur virkjað sig í hreyfingu. 21.3.2024 07:00
Spennuþrungin sigling Mottumarssokkana til Íslands dæmi um hvað margt getur komið upp „Mottumarssokkarnir voru framleiddir í þetta skiptið í Asíu og í byrjun desember var þeim lestað þar í skip til að koma til okkar sjóleiðina. Nema að þá lendum við í því Hútarnir í Jemen loka Súesskurðinum í framhaldi af sínum deilum við Bandaríkjamenn með þeim afleiðingum að fjölmörg flutningaskip þurftu að sigla suður með Afríku sem þýddi að sokkarnir voru mun lengur á leiðinni hingað heim,“ segir Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðs- og fjáröflunarmála hjá Krabbameinsfélaginu. 20.3.2024 07:01
„What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ „Jú auðvitað kenndi ég þeim líka að skítamixa stundum. Því í öllum flóknum verkefnum má gera ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti þurfi eitthvað skítamix og þar erum við Íslendingar einfaldlega heimsmeistarar,“ segir Anna Margrét Gunnarsdóttir eigandi Altso samskiptaráðgjafar og hlær. 18.3.2024 07:01
Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Þótt Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventurues, vakni snemma á morgnana, er hann B-maður að eðlisfari, sofnar seint á kvöldin en freistast til að mæta uppsafnaðri svefnþörf á öðrum stöðum, til dæmis í leikhúsi, flugvélum, á tónleikum eða í kirkjum. 16.3.2024 10:01
Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Úff! Það geta auðvitað alls kyns mál komið upp í vinnunni. Sum jafnvel leiðinleg. Eins og það að deila við vinnufélaga. 15.3.2024 07:01
Fögnum fjölbreytileikanum: Pólverjar flestir, síðan Litháar, síðan Íslendingar „Í fyrirtækjum þar sem starfsfólkið er af jafn mörgum mismunandi þjóðernum og hjá okkur skiptir máli að hafa góða yfirsýn yfir þekkinguna og mannauðinn innan okkar veggja. Það er áskorun en á sama tíma gríðarlega spennandi verkefni,“ segir Guðfinna Ingjaldsdóttir, sviðstjóri mannauðs- og sjálbærni hjá Dögum, en þar er starfsfólk 800 talsins frá 41 landi. 14.3.2024 07:00
Eiga ekki bara að vera Íslendingar í betur launuðu störfunum „Við þurfum að reyna að breikka viðmiðin á öllum vinnustöðum því þannig sköpum við tækifæri til starfsþróunar fyrir allt starfsfólk. Í framlínustörfum eins og þjónustu eða ræstingum á ekki bara að vera fólk af erlendu bergi brotið, á meðan Íslendingarnir eru í betur launuðum störfum,“ segir Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur hjá Just Consulting. 13.3.2024 07:01
„Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“ „Við búum á Þórsgötunni í húsi með fjórum íbúðum og erum þar öll nema dóttirin sem býr í Bandaríkjunum. Þar ætlum við að anda í eitt ár en ég skal alveg viðurkenna að það hefur bjargað okkur alveg sálfræðilega að geta verið svona saman fjölskyldan,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík. 10.3.2024 08:01
Nú er hægt að kúra og slappa af á morgnana Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir morgnana nokkuð rólegri nú en þegar börnin voru lítil og læti dagsins hófust við fyrsta hanagal. Í dag nýtur hún þess að horfa út um gluggann og fylgjast með barnabörnunum í leikskólanum. 9.3.2024 10:00