Söngsnillingar léku á als oddi á Öskudeginum Ofurhetjur, risaeðlur og ýmsar furðuverur voru á vappi víða um land í dag. Tilefnið að sjálfsögðu sjálfur öskudagurinn sem var haldinn hátíðlegur víða um land í dag. 14.2.2024 22:13
„Segir okkur að þeir eru ekkert að bulla“ Systir og bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin fyrir fimm árum síðan segjast finna fyrir viðhorfsbreytingu írsku lögreglunnar vegna rannsóknar á hvarfi hans. 14.2.2024 21:32
„Langaði ekki að lifa lengur“ Raunveruleikastjarnan Binni Glee fór í míní hjáveitu fyrir ári síðan. Hann greinir frá á Instagram og segir aðgerðina hafa bjargað lífi sínu. 14.2.2024 20:32
Hætt við að hætta með kartöflusalatið eftir tugi kvartana Rekstraraðilar N1 bensínstöðva hafa hætt við að hætta að bjóða viðskiptavinum upp á pylsu með kartöflusalati eftir að tugir kvartana bárust starfsmönnum. Rekstrarstjóri segir að kartöflusalatið hafi átt að víkja fyrir franskri pylsu, en nú verði bæði í boði. 14.2.2024 19:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fyrirtækjum í Grindavík er að blæða út vegna andvaraleysis stjórnvalda að sögn forsvarsmanna tæplega hundrað og fimmtíu fyrirtækja í bænum. Kallað er eftir auknu aðgengi, skýrarisvörum og samráði. Eigi Grindavík að lifa áfram sem bæjarfélag þurfi að halda atvinnulífinu gangandi. 14.2.2024 18:01
„Þetta er allt á hreyfingu“ Björgunarsveitarmaður sem var á vakt í Grindavík í dag segir jörðina enn á hreyfingu í bænum. Hann segist merkja breytingar í þessari frá þeirri síðustu, hús halli meira og merki um jarðhræringar sjáist á malbiki. 13.2.2024 23:12
Hafi ætlað að hitta einhvern í garðinum Lögregluyfirvöld í Dublin telja nú líklegt að Jón Þröstur Jónsson hafi ætlað sér að hitta einhvern í almenningsgarðinum Santry Demense. Hann hafi látist í kjölfar þess fundar. Þetta herma heimildir írska miðilsins Dublin Live. 13.2.2024 23:11
„Stærsta kakan sem ég er búinn að bíða lengi eftir komin í ofninn“ Einn frægasti veitingamaður landsins Jóhannes Felixsson, betur þekktur sem Jói Fel er að verða afi. Hann greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. 13.2.2024 22:44
Gunnar J. Árnason er látinn Gunnar J. Árnason heimspekingur í listum og fagurfræði lést laugardaginn 10. febrúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. Gunnar var fæddur í Reykjavík 27. nóvember 1959. Foreldrar hans eru Árni Kristinsson læknir (f. 1935) og Erla Cortes ritari (f. 1939 d. 2006). Gunnar ólst upp á Englandi fyrstu ár ævi sinnar en fluttist síðar í vesturbæ Reykjavíkur. 13.2.2024 22:41
Segir Eyjamálið ekki enn komið á sitt borð Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, fjármála- og efnahagsráðherra, segir kröfu ríkisins í hluta Vestmannaeyjar, ekki á sínu borði enn sem komið er. Hún segir um að ræða ferli sem öll önnur svæði á landinu hafi farið í gegnum og hvetur Eyjamenn til að gæta réttar síns. Forseti bæjarstjórnar segir ráðherrann bera ábyrgð. 13.2.2024 20:42