Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tyra Banks kærir Netflix fyrir æru­meiðingar

Tyra Banks hefur kært Netflix fyrir ærumeiðingar vegna heimildarþátta sem þau gerðu um America‘s Next Top Model. Þættirnir voru frumsýndir fyrr á árinu og vöktu mikla athygli. Í málsókn sinni segir Tyra að framleiðendur hafi klippt margra klukkustunda viðtal við hana niður í nokkra stutta búta til að búa til „falska frásögn“.

Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs

Ársyfirlit CERT-IS fyrir árið 2025 sýnir að innbrot og innbrotstilraunir á Íslandi jukust um 388 prósent milli ára. Arnars S. Gunnarssonar, öryggisstjóra OK, segir að aukninguna megi rekja til hnitmiðaðra herferða þar sem óprúttnir aðilar nota vefveiðar til að komast inn á net fyrirtækja og þegar þeir eru komnir inn er næsta skref oft að ná tækjum og gögnum.

Stað­festa synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn Jóns Atla Magnússonar um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Jón Atli Magnússon greindist í desember með eitt banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst. Eiginkona hans segir baráttu þeirra þó ekki lokið. Um sé að ræða réttlætismál fyrir alla sem greinast með þetta banvæna krabbamein. 

Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun leggur aftur til hækkun á loðnuráðgjöf í nýrri úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu. Ráðgjöf ýsu, ufsa og þorsks lækkar en veruleg hækkun er á loðnuráðgjöf.

Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meiri­hluta

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að skipa stýrihóp um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. 

Sjá meira