Nemendahópur frá Þýskalandi fékk að fljóta með „Við erum svo þakklát,“ sagði Clarissa Duvigneau, nýr sendiherra Þýskalands, á Keflavíkurflugvelli í morgun, þegar hún tók á móti hópi þýskra ríkisborgara sem flugu hingað til lands frá Ísrael. 10.10.2023 07:17
„Ekki spurning. Jesús minn, já“ Það urðu fagnaðarfundir í Leifsstöð í morgun þegar hópur Íslendinga lenti sem var staddur í Ísrael þegar Hamas-liðar gerðu árásir sínar á laugardag. Hópurinn ferðaðist til Amman í Jórdaníu og þaðan heim, með millilendingu í Róm. 10.10.2023 06:55
„Algjör kúvending“ bara á þessu ári Byggja þarf allt að fimm þúsund íbúðir árlega næstu árin á sama tíma og uppbygging hefur dregist verulega saman. Fjöldi nýrra, fullbúinna íbúða sem standa auðar hefur sexfaldast milli ára. Verktaki segir algjöra kúvendingu hafa orðið í bransanum á árinu. 9.10.2023 21:25
„Það er alveg ljóst að fólk vill hafa þessa stöð hérna“ Lagt er til að fjórar bensínstöðvar í Reykjavík verði verndaðar, samkvæmt nýrri skýrslu Borgarsögusafns - sem gæti haft áhrif á fyrirhugaða uppbyggingu á lóðunum. Stöðvarstjóri á Ægisíðu, einni af stöðvunum fjórum, segir ljóst að Vesturbæingar vilji halda bensínstöðinni á sínum stað. 5.10.2023 22:15
Misstu aldrei vonina þegar stelpurnar veiktust Margrét Finney Jónsdóttir og Ástrós Pétursdóttir, nýbakaðar þríburamæður, segjast hiklaust hafa óttast um dætur sínar fyrstu vikurnar eftir fæðinguna í vor. Stelpurnar braggast þó ótrúlega vel eftir fyrirburaáskoranirnar sem þær glímdu við fyrst um sinn. Við heimsóttum Margréti, Ástrós og trillurnar þrjár í Íslandi í dag í fyrradag. 5.10.2023 09:00
Tólfti bruninn á árinu þar sem rafhlaupahjól kemur við sögu Stórtjón varð á íbúð í Hafnarfirði þegar eldur kviknaði út frá rafhlaupahjóli í hleðslu í nótt. Sviðsstjóri forvarnarsviðs SHS segir bruna þar sem rafhlaupahjól koma við sögu vera að færast í aukana. 4.10.2023 21:50
Tímamót í Vesturbænum: Hræðilega sárt að selja „barnið hans Þóris“ Elsta starfandi blómabúð landsins, sem hefur verið rekin af sömu fjölskyldunni frá stofnun, er komin á sölu. Eigandi segir það skelfilega sárt að selja búðina en ekkert annað sé í stöðunni. 4.10.2023 19:29
Vill frekar deyja en að fara aftur til Venesúela Tugir komu saman við Hallgrímskirkju í morgun til að mótmæla ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja megi hælisleitendum frá Venesúela um alþjóðlega vernd. Mótmælendur, bæði Venesúelamenn og stuðningsfólk, lýstu reiði og ótta við framtíðina. 4.10.2023 11:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra segist treysta niðurstöðu kærunefndar útlendingamála um ástandið í Venesúela, þrátt fyrir þveröfuga niðurstöðu Bandaríkjamanna í sama málefni fyrir skömmu. Dómsmálaráðherra segir það vera hluta af kerfinu að fólkið snúi til síns heima. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og fáum til okkar stjórnmálafræðing, sérfræðing í málum Venesúela, til að ræða stöðuna í beinni útsendingu. 1.10.2023 18:08
Íslendingur lýsir ástandinu í New York sem súrrealísku Neyðarástandi var lýst yfir í New York-borg og víðar í gær vegna mestu rigninga á svæðinu í sjötíu ár. Íslendingur sem búsettur hefur verið í borginni í áratug segir ástandið súrrealískt. Götur breyttust í straumþungar ár og samgöngur lömuðust. 30.9.2023 20:52