Anna Björk til Inter Landsliðskonan Anna Björk Kristjánsdóttir er gengin í raðir Inter á Ítalíu. Hún skrifaði undir eins árs samning við félagið. 5.8.2021 09:03
Sagði frammistöðu bandarísku boðhlaupssveitarinnar vandræðalega lélega Bandaríkin komust ekki í úrslit í 4x100 boðhlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Ólympíugoðsögnin Carl Lewis sagði frammistöðu bandarísku sveitarinnar vandræðalega lélega. 5.8.2021 07:30
Bandaríkjamenn búnir að finna fjölina sína og aðeins einum sigri frá fjórða gullinu í röð Bandaríska karlalandsliðið í körfubolta er komið í úrslit á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Ástralíu, 97-78. 5.8.2021 06:58
Sjáðu markið sem Kristian Nökkvi skoraði fyrir Ajax gegn Leeds Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fyrir aðallið Ajax í 3-1 sigri á Leeds United í æfingaleik í dag. 4.8.2021 16:30
Fluttur af vellinum í hjólastól eftir að hafa meiðst illa í langstökki Belgíski tugþrautakappinn Thomas Van der Plaetsen var fluttur burt af frjálsíþróttavellinum í Tókýó eftir að hafa orðið fyrir slæmum meiðslum. 4.8.2021 15:00
Kristín og sænsku stöllur hennar í fyrsta sinn í undanúrslit á Ólympíuleikum Svíþjóð er komið í undanúrslit handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í fyrsta sinn eftir sigur á Suður-Kóreu, 39-30. Í undanúrslitunum mæta Svíar Frökkum sem völtuðu yfir heimsmeistara Hollendinga, 32-22. 4.8.2021 13:20
Grealish færist sífellt nær City Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Jack Grealish gangi í raðir Englandsmeistara Manchester City. 4.8.2021 12:00
Þórsarar orðlausir þegar Alusevski ákvað að slá til Margir ráku eflaust upp stór augu þegar Þór tilkynnti um ráðningu á nýjum þjálfara karlaliðs félagsins í handbolta í fyrradag. Sá heitir Stevce Alusevski og var síðast þjálfari norður-makedónska stórliðsins Vardar. 4.8.2021 11:01
Fór yfir tvær stórar ákvarðanir í Árbænum: „Stend fast á því að þetta er aldrei víti“ Egill Arnar Sigurþórsson mætti í viðtal eftir leik Fylkis og Leiknis í Pepsi Max-deild karla í gær og fór yfir tvær ákvarðanir sínar í leiknum, rauða spjaldið sem Daði Ólafsson fékk og vítaspyrnuna sem Fylkismenn vildu fá. Egill stendur við þær báðar. 4.8.2021 10:01
Hollendingar hóa í Van Gaal í þriðja sinn Louis van Gaal hefur verið ráðinn þjálfari hollenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann gerði samning við hollenska knattspyrnusambandið fram yfir HM í Katar á næsta ári. 4.8.2021 09:22