Dagskráin í dag: Tudor byrjar á Norður-Lundúnaslag Af nægu verður að taka á sportrásum Sýnar í dag. Fjórir leikir í ensku úrvalsdeildinni verða á dagskrá, meðal annars Norður-Lundúnaslagur Tottenham og Arsenal, og farið verður yfir leiki helgarinnar í Messunni. 22.2.2026 06:00
Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Pólska skautakonan Kamila Sellier hefur gengist undir aðgerð eftir að hafa skorist á auga á Vetrarólympíuleikunum í gær. 21.2.2026 23:16
Enn lengist rúmlega aldar bið Breta eftir krullugulli Bretland laut í lægra haldi fyrir Kanada í úrslitaleik í krullu karla á Vetrarólympíuleikunum í kvöld. Bretar hafa ekki unnið gullverðlaun í greininni síðan 1924. 21.2.2026 22:32
O'Reilly með tvennu og City andar ofan í hálsmál Arsenal Manchester City minnkaði forskot á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í tvö stig með 2-1 sigri á Newcastle United á Etihad í kvöld. Nico O'Reilly skoraði bæði mörk heimamanna. 21.2.2026 21:55
Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Mosfellingurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði fjögur mörk þegar Porto bar sigurorð af Aguas Santas, 22-28, í portúgölsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 21.2.2026 21:28
Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Íslendingaliðin Erlangen og Göppingen riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. 21.2.2026 20:44
Madrídingar fengu á sig sigurmark í uppbótartíma Real Madrid varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 tap fyrir Osasuna í kvöld. 21.2.2026 19:43
Bournemouth nálgast Evrópusætin Ekkert mark var skorað þegar West Ham United tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var fyrsta markalausa jafntefli Hamranna á tímabilinu. 21.2.2026 19:25
Hornspyrnur Dimarcos gerðu gæfumuninn í sjöunda sigri Inter í röð Eftir erfitt tap í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn náði Inter vopnum sínum á ný með 0-2 sigri á Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. 21.2.2026 19:00
Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Víkingur er með fullt hús stiga á toppi riðils 2 í Lengjubikar kvenna í fótbolta eftir 1-0 sigur á Val í dag. Þróttur kom til baka og vann FH, 3-2, í riðli 1. 21.2.2026 18:38