Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. 11.12.2023 11:45
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. 8.12.2023 12:07
Orkustofnun „brestur hæfi“ til að ráðstafa forgangsraforku, að mati SI Fyrirhugað frumvarp um breytingar á raforkulögum, sem veitir Orkustofnun heimild til að veita öðrum en stórnotendum forgang að kaupum á raforku, er gagnrýnt harðlega af Samtökum iðnaðarins sem segja að með því verði samkeppnismarkaður með raforku afnuminn og miðstýring innleidd. Þá fer SI hörðum orðum um Orkustofnun, sem að mati samtakanna brestur hæfi til að fara með þau verkefni sem henni er falin í frumvarpinu, en starfshættir stofnunarinnar eru sagðir hafa „tafið verulega alla uppbyggingu í raforkukerfinu.“ 7.12.2023 09:42
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. 6.12.2023 09:10
Beiðni Árna Odds um framlengingu á greiðslustöðvun hafnað Beiðni Árna Odds Þórðarsonar, fyrrverandi forstjóra Marels til tíu ára og einn stærsti hluthafinn í Eyri Invest, um heimild til framlengingar á greiðslustöðvun hefur verið hafnað af dómstólum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en Landsbankinn hafði mótmælt því að hann fengi að vera áfram í slíku skjóli gagnvart kröfuhöfum. Óvissa er núna um mögulegar fullnustuaðgerðir kröfuhafa á hendur Árna Oddi en hlutur hans í fjárfestingafélaginu Eyri er meðal annars veðsettur gagnvart láni frá Landsbankanum. 5.12.2023 18:14
Lífeyrissjóðir með augun á enn meiri fjárfestingum erlendis á komandi ári Margir af stærri lífeyrissjóðum landsins setja stefnuna á að auka áfram nokkuð við hlutfall erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum á komandi ári samhliða því að nýjar breytingar taka þá gildi sem hækkar hámarksvægi gjaldeyriseigna hjá sjóðunum. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni flestir hverjir ekki auka vægi sitt í innlendum hlutabréfum á næstunni þrátt fyrir að sá eignaflokkur hafi lækkað mikið síðustu ár. 4.12.2023 13:52
Verðandi stjórnarformaður Controlant fjárfesti í útboði félagsins Þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu inn sem nýir beinir hluthafar í Controlant þegar þeir lögðu til félaginu meginþorra þess fjármagns sem það sótti sér í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Daninn Søren Skou, verðandi stjórnarformaður Controlant og fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók sömuleiðis þátt í útboðinu en í bréfi til fjárfesta boðar tæknifyrirtækið tíðari upplýsingagjöf til hluthafa. 1.12.2023 12:22
Tugmilljarða tilfærsla lífeyrisréttinda milli kynslóða dæmd ólögleg Fordæmalausar breytingar um síðustu áramót á samþykktum lífeyrissjóða um tilfærslu lífeyrisréttinda milli kynslóða sjóðsfélaga, sem var staðfest af fjármálaráðuneytinu þrátt fyrir neikvæða umsögn fjármálaeftirlits Seðlabankans, hafa núna verið dæmdar ólöglegar samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Fjármálaeftirlitið hafði varað við því að ekki væri lagaheimild fyrir skerðingu réttinda hjá sjóðum sem búa við góðan fjárhag og tryggingastærðfræðingur gagnrýndi ráðstöfunina harðlega og sagði þær brjóta „gróflega á eignarrétti yngri sjóðsfélaga.“ 30.11.2023 16:05
Búast við talsverðum greiðslum á næstu vikum vegna nýrra samstarfsamninga Stjórnendur Alvotech, sem sá lausafé sitt minnka um meira en 110 milljónir dala á þriðja fjórðungi samhliða miklum fjárfestingum, segjast vera í viðræðum við lyfjafyrirtæki um samstarfssamning vegna líftæknilyfjahliðstæðna í þróun hjá félaginu sem geti skilað sér í talsverðum greiðslum undir lok árs. Dræmar sölutekjur ollu vonbrigðum en Alvotech fullyrðir að þær muni taka við sér á yfirstandandi ársfjórðungi þegar lyfin eru hlutfallslega seld meira á mörkuðum þar sem verðlagningin á þeim er hærri. 30.11.2023 11:00
Yfirtökuboðinu var ætlað að hagnast á veikri stjórn Marels og erfiðleikum Eyris Evrópski vogunarsjóðurinn Teleios Capital Partners, einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels með 3,3 prósenta hlut, gagnrýnir harðlega stjórn fyrirtækisins fyrir að hafa ekki gætt að umboðsskyldu sinni gagnvart öllum hluthöfum og segir vanhugsaðar ákvarðanir þáverandi stjórnenda Eyris valda því að fjárfestingafélagið rambi nú á barmi gjaldþrots. Sjóðurinn styður ákvörðun stjórnar að hafna mögulegu tilboði John Bean Technologies en segir þörf á skýrleika um eignarhald Marels, sem hafi ekki reynst farsælt með Eyri sem aðaleigenda, til framtíðar litið. 29.11.2023 14:34