Fréttamaður

Hólmfríður Gísladóttir

Hólmfríður er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein

„Persónulega, þá er það erfitt fyrir mig þegar þessi smáatriði koma í ljós, skilurðu? Því þá vakna minningar um afar erfiða tíma í hjónabandinu mínu,“ sagði Melinda French Gates, fyrrverandi eiginkona Bill Gates, þegar hún var spurð út í tölvupósta sem hafa vakið athygli í Epstein-skjölunum.

Játaði nokkrum á­kæru­liðum en neitaði nauðgununum

Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, játaði fyrir dómi í gær að hafa rofið skilorð, að hafa brotið gegn fíkniefnalöggjöfinni og ýmis umferðarbrot. Hann neitaði hins vegar sök í fjórum ákæruliðum er vörðuðu nauðgun, brot í nánu sambandi og að hafa myndað kynfæri kvenna án vitundar þeirra.

Rússar gera á­rásir á orkuinnviði í Úkraínu

Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 

Nakinn á rölti og hrækt í hár öku­manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður ganga um nakinn í póstnúmerinu 105. Þegar að var komið reyndist viðkomandi verulega ölvaður og gat hann ekki gert grein fyrir sér. Hann var því handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Um 125 börn á þyngdar­stjórnunar­lyfjum og 500 með fitu­lifur

Um það bil 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þar af eru á bilinu 120 til 130 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum. Yngsta barnið er níu ára gamalt. Þá er talið að um 500 börn á Íslandi séu með fitulifur.

Fífl­djarft að fara í for­manninn en varaformannsembættið...?

„Mér finnst það mjög galið að ætla að stíga inn á sjónarsviðið beint inn í formannssætið í elsta og virtasta flokki landsins,“ segir Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir formannsembættinu í Framsóknarflokknum.

Sjá meira