Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Þrettán ára drengur hefur verið kallaður „ofurmenni“ eftir að hann synti fjóra kílómetra í úfnum sjó til að bjarga móður sinni og tveimur systkinum. 3.2.2026 07:31
Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 3.2.2026 07:00
Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður ganga um nakinn í póstnúmerinu 105. Þegar að var komið reyndist viðkomandi verulega ölvaður og gat hann ekki gert grein fyrir sér. Hann var því handtekinn og vistaður í fangageymslu. 3.2.2026 06:40
Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social í gær að Kennedy-menningarmiðstöðinni yrði lokað í tvö ár og ráðist í endurbætur á húsnæði hennar. 2.2.2026 06:45
Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Um það bil 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þar af eru á bilinu 120 til 130 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum. Yngsta barnið er níu ára gamalt. Þá er talið að um 500 börn á Íslandi séu með fitulifur. 2.2.2026 06:29
Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Kevin M. Warsh næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Öldungadeildin þarf að staðfesta valið. 30.1.2026 13:07
Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? „Mér finnst það mjög galið að ætla að stíga inn á sjónarsviðið beint inn í formannssætið í elsta og virtasta flokki landsins,“ segir Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir formannsembættinu í Framsóknarflokknum. 30.1.2026 10:48
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30.1.2026 09:07
Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Maður og kona voru hýdd 140 sinnum í Aceh í Indónesíu í gær, fyrir að hafa neytt áfengis og stundað kynlíf utan hjónabands. Bæði voru lamin í bakið með priki í almenningsgarði á meðan tugir fylgdust með en á endanum leið yfir konuna. 30.1.2026 07:47
Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði heitið því að gera tímabundið hlé á loftárásum sínum á Kænugarð, sem hafa miðað að því að valda skemmdum á orkuinnviðum og svipta íbúa hlýju í vetrarkuldanum. 30.1.2026 06:55