Eldgosið áberandi frá höfuðborgarsvæðinu í kvöld Stór og rauðbjartur gufustrókur frá eldgosinu við Fagradalsfjall sást vel frá höfuðborgarsvæðinu í kvöld líkt og sjá má á þessari mynd sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis tók í kvöld. 26.4.2021 23:13
Fékk sýkingu eftir sýnatöku á landamærum og neyddist til að sæta tveggja vikna sóttkví Íslendingur sem kom til landsins fyrir tæpum tveimur vikum segist hafa fengið sýkingu í nefkok vegna sýnatökupinna eftir skimun á landamærum. Hann hafnaði í kjölfarið að gangast undir seinni sýnatöku og gagnrýnir að það hafi ekki verið fyrr en málinu var skotið til dómstóla sem sóttvarnayfirvöld féllust á að taka mætti sýni úr hálskoki. Hann sætir enn sóttkví ásamt maka sínum á sóttvarnahótelinu við Rauðarárstíg sem lýkur í fyrramálið. 26.4.2021 23:01
Aldrei fleiri tekið þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna Lið undir nafninu : ) úr Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og Menntaskólanum í Reykjavík bar sigur úr Býtum í Forritunarkeppni framhaldsskólanna sem fram fór um helgina. Alls voru skráð til leiks 58 lið skipuð 135 úr þrettán framhaldsskólum að þessu sinni en keppnin fór alfarið fram á netinu í ár. 26.4.2021 22:38
„Í guðanabænum þiggið björgina og látið bólusetja ykkur“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vera næstum hættulaust og hvetur hann fólk „í guðanabænum“ til að þiggja bóluefni AstraZeneca. Sjálfur hafi hann fengið bóluefnið fyrir nokkrum vikum og hafi ekki hlotið nokkurn skaða af. 26.4.2021 19:19
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Marek Moszczynski, pólskur karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrra, hélt fram sakleysi sínu við aðalmeðferð málsins í dag. Kristín Ólafsdóttir, fréttamaður, hefur fylgst með í dómsal síðan í morgun og mun reifa málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 26.4.2021 18:00
Opnar djassbúlluna Skuggabaldur við Austurvöll í sumar Framkvæmdir eru hafnar við undirbúning opnunar nýs bars, veitinga- og tónleikastaðar við Austurvöll sem til stendur að opna í sumar. Það er enginn nýgræðingur í veitinga- og skemmtistaðabransanum sem stendur að opnun staðarins en Jón Mýrdal hefur til að mynda rekið skemmtistaðina Röntgen og Húrra. 25.4.2021 17:01
„Íslensk stjórnvöld hafa engan skilning á þessu“ Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum ekki vera sannfærandi. Á sama tíma gefi ný stefna Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum tilefni til bjartsýni. 25.4.2021 15:59
Áætlar að nýja skiltið kosti tíu til tólf milljónir: „Við erum voðalega stolt af þessu“ Þeir sem leið hafa átt um Hellisheiði nýlega hafa eflaust orðið varir við nýtt gríðarstórt skilti sem þar hefur verið sett upp með nafni sveitarfélagsins Ölfus. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, kveðst afar stoltur af skiltinu og segist nær eingöngu hafa skynjað jákvæð viðbrögð. Hann áætlar að kostnaður vegna skiltisins nemi á bilinu tíu til tólf milljónum. 25.4.2021 14:28
Kafbáturinn fundinn, brotinn í að minnsta kosti þrjá búta Kafbátur indónesíska sjóhersins sem hvarf á miðvikudag með 53 manna áhöfn innanborðs er fundinn, brotinn í sundur í að minnsta kosti þrjá hluta. Indónesíski herinn greindi frá þessu á blaðamannafundi fyrr í dag en í gær hafði þegar fundist nokkuð brak úr kafbátnum auk persónulegra muna frá áhöfninni. 25.4.2021 13:32
Halla segir orðræðu Þorsteins um verkalýðshreyfinguna „ljótt áróðursbragð“ Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Hornsteins og fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sakar verkalýðshreyfinguna um að afneita staðreyndum um áhrif launahækkana á efnahagsþróun og samkeppnishæfni. Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, segir Þorstein beita ljótum áróðursbrögðum. 25.4.2021 12:56