Selenskí kemur til Íslands á morgun Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti, er væntanlegur til Íslands á morgun. Hér mun hann meðal annars funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra, taka þátt í leiðtogafundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna og mun hann flytja sérstakt ávarp í tengslum við Norðurlandaráðsþing. 27.10.2024 15:00
Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verða kynntir eftir hádegi í dag og tíðinda er einnig að vænta frá Sósíalistum og Miðflokki um skipun lista. Flestir framboðslistar þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til Alþingis hafa verið kynntir að hluta eða í heild, en enn á eftir að birta endanlega lista hjá nokkrum flokkum. 27.10.2024 13:40
Óheppilegt en ekki óvenjulegt Stjórnmálafræðingur segir það óheppilegt fyrir formann Samfylkingarinnar að einkaskilaboð hennar um Dag B. Eggertsson hafi verið birt opinberlega. Hins vegar sé ekki óvenjulegt að hvatt sé til þess að umdeildir frambjóðendur séu strikaðir út. 27.10.2024 13:17
Götulokanir og mikil öryggisgæsla vegna heimsóknar þjóðarleiðtoga Mikill viðbúnaður og öryggisgæsla verður í höfuðborginni á morgun þegar von er á fjölda erlendra þjóðarleiðtoga í tengslum við Norðurlandaráðsþing i Reykjavík. Samvinna í öryggis- og varnarmálum og friður og öryggi á Norðurslóðum verða í brennidepli á þinginu í ár. 27.10.2024 12:40
Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins og Þorgrímur Sigmundsson, verktaki skipa efstu sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Næst á lista eru Ágústa Ágústsdóttir, verktaki og ferðaþjónustubóndi og Inga Dís Sigurðardóttir, kennari og meistaranemi í náms og starfsráðgjöf. 27.10.2024 09:21
Hvatti kjósanda til að strika yfir nafn Dags „Þetta eru skilaboð frá mér til stuðningsmanns, einkaskilaboð. Ég er oft í samskiptum við fólk sem er hrifið af Samfylkingunni og hefur alls konar skoðanir. Þarna var um að ræða einstakling sem hafði skoðanir á Degi B. Eggertssyni.“ 26.10.2024 18:39
Samfylkingin hafi fjarlægst gildin Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir Samfylkinguna hafa fjarlægst þau gildi sem hún brennur fyrir en hún er aftur gengin til liðs við Vinstri græn. Hún segist enn brenna fyrir þau málefni sem kjarnist í stefnu flokksins og hún sé tilbúin að snúa til baka nú þegar stjórnarsamstarfinu hafi verið slitið. 26.10.2024 13:39
Aldrei fleiri manndráp á einu ári: „Þetta er uggvænleg þróun“ Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Afbrotafræðingur segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. 25.10.2024 20:32
Vilja „epískt“ samfélag, minna væl og meiri jákvæðni Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og frambjóðandi Sósíalistaflokksins segist tilbúin að gera málamiðlanir og vinna með hverjum þeim flokki sem sé tilbúinn að setja hagsmuni vinnandi fólks í fyrsta sæti, meira að segja Sjálfstæðisflokki ef flokkurinn geti sýnt fram á að flokkurinn uppfylli það skilyrði. Ólafur Adolfsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir fullreynt með samstarf flokka lengst frá vinstri til hægri en fagnar því að fólk geti talað saman. 23.10.2024 18:26
Kosningapallborð: Nýliðar í landsmálapólitík mætast Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru jafnt og þétt að taka á sig mynd fyrir komandi alþingiskosningar. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa þegar stigið fram og lýst áhuga á að taka sæti á Alþingi og kosningamaskínur flokkanna komnar í fullan gang. 23.10.2024 10:56