„Meira er meira“ Hljómsveitin Ultraflex var að senda frá sér glænýtt lag og tónlistarmyndband. Lagið ber nafnið Mi Vuoi og fá þær hér tónlistarkonuna Kuntessa til liðs við sig. 6.7.2022 12:31
„Mjög grimm örlög“ Hjónin Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fjölmiðlakona og Jón Þór Hauksson knattspyrnuþjálfari mættust í Ísskápastríði hjá Evu Laufeyju og Gumma Ben. Í þessum viðburðaríka þætti kom meðal annars í ljós að hjónin hafa ólíkan smekk á mat. 5.7.2022 16:30
Klara í The Kardashians Söngkonan Klara Elias hefur verið að gera öfluga hluti í tónlistarheiminum að undanförnu. Ásamt því að syngja Þjóðhátíðarlagið í ár og koma fram víða í sumar má heyra rödd Klöru syngja í nýjustu Kardashian raunveruleikaþáttunum. Blaðamaður fékk að taka púlsinn á Klöru og forvitnast um samstarfið við eina frægustu fjölskyldu í heimi. 5.7.2022 11:00
Hvetja áheyrendur til að snúa bökum saman og dansa dátt Hljómsveitin Hatari sendi frá sér nýtt lag síðastliðinn föstudag. Lagið ber titilinn Dansið eða deyið en áheyrendur eru þar úthrópaðir sem gengilbeinur ræningja en um leið hvattir til að snúa bökum saman og dansa dátt. 4.7.2022 12:31
„Klæðaburður er í raun tungumál, tjáning og samskiptakerfi án orða“ Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er búninga-, tísku-, textíl- og leikmyndahönnuður sem hefur gaman af litagleði og elskar fjölbreytileikann sem tískan býr yfir. Hún lýsir stílnum sínum sem mjög flæðandi en rauði þráðurinn í klæðaburði hjá henni hefur alltaf verið dass af húmor. Tanja er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 3.7.2022 07:01
Klara í fyrsta sæti íslenska listans Söngkonan Klara Elias situr í fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna með Þjóðhátíðarlagið Eyjanótt. Lagið kom út 7. júní síðastliðinn og hefur óðfluga hækkað sig upp listann að undanförnu. 2.7.2022 18:01
Finnst ekkert skemmtilegra en fáránlegar keppnir og áskoranir Glódís Guðgeirsdóttir er 28 ára gamall lífskúnstner, jarðfræðingur, fimleikastelpa, móðir, vinkona og ýmislegt annað og lýsir sjálfri sér sem ofsalegri stemningskonu. Hún elskar góðan kaffibolla og kvöldsund og passar sig að fara reglulega út fyrir þægindarammann. Glódís er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 2.7.2022 11:31
„Viljum fá fólk til að koma auga á það sem hér leynist“ Finnbogi Pétursson myndlistarmaður opnar sýningu í Hillebrandtshúsinu í gamla bænum á Blönduósi á morgun klukkan 16:00. Um er að ræða nýtt verk eftir listamanninn sem fengið hefur nafnið FLÓI. Hjónin Finnur Arnar og Áslaug Thorlacius standa fyrir sýningunni en blaðamaður tók púlsinn á Finni. 1.7.2022 13:31
Tónlist fyrir ókannaðar íslenskar eyðimerkur þar sem kynjaverur þrífast Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Melrakki eftir tónlistarmanninn Ara Árelíus. Myndbandinu er leikstýrt af Elínu Ramette, Inga Höskuldsdóttir sá um brúðugerð og hönnun og Sól Hansdóttir er listrænn stjórnandi. 30.6.2022 12:30
Halda afmælistónleika á Ingólfstorgi á laugardag Fyrirtækið Travelshift býður í tíu ára afmælistónleika á Ingólfstorgi næstkomandi laugardagskvöld. Tónleikarnir eru opnir öllum en Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör og nýstirnið Gugusar koma fram og skemmta viðstöddum. 29.6.2022 15:31