Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Áfengisgjöld verða til skoðunar við gerð næstu fjárlaga, að sögn fjármálaráðherra. Veitingamenn segja gjöldin íþyngjandi og benda á að ríkið innheimti tvöfalt meira með þeim en veiðigjöldum. Ráðherra segir hins vegar að erfið áfengissala geti sýnt að gjöldin þjóni tilgangi sínum. 11.7.2026 12:11
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna. 30.6.2026 16:22
Boðar frekari niðurskurð Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari niðurskurð í borginni til viðbótar við hópuppsagnir sem greint var frá í dag. Hún segist ekki fara í uppsagnir af léttúð en sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða. 25.6.2026 18:32
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27.5.2026 12:03
Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra. 6.3.2026 19:13
Verulega ólíklegt að af fullri afléttingu verði 18. nóvember Heilbrigðisráðherra telur verulega ólíklegt að sóttvarnatakmörkunum innanlands verði aflétt að fullu 18. nóvember líkt og stjórnvöld höfðu boðað. Ráðherra hefur verulega áhyggjur af stöðunni þó enn sé ekki hugað að hertum aðgerðum. 28.10.2021 18:31
Þeir sem ætla að halda stóra viðburði um helgina íhugi málið alvarlega Sóttvarnalæknir segir þjóðina nú þurfa að líta í eigin barm og reyna að takmarka eins og hún getur sína hegðun til að ná þessari bylgju niður. Þau fyrirtæki og aðilar sem stefna að því að halda stóra viðburði um komandi helgi ættu að íhuga málið alvarlega að mati sóttvarnalæknis. 28.10.2021 11:06
600 óbólusettir starfsmenn Landspítalans grafalvarlegt mál Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill vart trúa því að 600 starfsmenn Landspítalans séu óbólusettir og það hljóti að koma til álita hjá stjórnendum spítalans að breyta því hvaða afskipti þeir hafa af viðkvæmum sjúklingum. 27.10.2021 18:00
Þórólfur svartsýnn og segir ekki lengur samstöðu um aðgerðir Sóttvarnalæknir er afar svartsýnn vegna fjölda smitaðra síðustu daga. Hann óttast álag á spítalann og róðurinn sé þungur núna þegar sóttvarnaaðgerðir njóti minni stuðnings í samfélaginu, þar á meðal lítils stuðnings meðal ráðherra. 27.10.2021 12:02
Allt að ársbið eftir sálfræðingi Dæmi eru um að fólk þurfi að bíða í allt að ár eftir sálfræðiaðstoð hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Skortur er á sálfræðingum að sögn framkvæmdastjóra geðheilbrigðismála. 26.10.2021 22:00