Tekur mál Magnúsar til umfjöllunar Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fallist á að taka kæru Magnúsar Guðmundssonar, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, til efnislegrar meðferðar. Snýr kæran að hæfi dómara í Markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. 30.6.2020 07:31
Svíar og Danir setja um 180 milljarða í SAS Stjórnvöld í Svíþjóð og Danmörku hafa aukið eignarhlut sinn í norræna flugfélaginu SAS eftir að þau settu samtals um 180 milljarða króna inn í félagið til að bjarga frá þroti. 30.6.2020 07:13
Þórólfur: Ekki rétt að hækka viðmið úr 500 í 2.000 um sinn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki sé hægt að mæla með að opnunartíma skemmtistaða verði rýmkaðir enn um sinn. 29.6.2020 14:21
Eldvarnagalla slökkviliðsmanns stolið Sérsaumuðum eldvarnagalla slökkviliðsmanns sjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var stolið í nótt eftir að brotist hafi verið inn í bíl hans. 29.6.2020 13:37
Kaflinn hálli en ella vegna mikils hita og úrhellis Vegagerðin segir að unnið hafði verið að yfirlögn á kaflanum á Vesturlandsvegi norðan Grundarhverfis, þar sem banaslysið varð á sunnudaginn, á fimmtudagskvöld. Eftirlitsmaður hafði metið aðstæður að lokinni yfirlögn þannig að hætta væri á hálku og tók ákvörðun um að vara við hálku með merkingum. 29.6.2020 13:16
Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands sakfelldur Francois Fillon hefur verið sakfelldur fyrir að hafa greitt eiginkonu sinni og barni háar upphæðir í laun úr opinberum sjóðum fyrir uppdiktuð störf. 29.6.2020 12:32
Hvalur hf kaupir helming hlutafjár í Íslenska gámafélaginu Jón Þórir Frantzson og Ólafur Thordersen starfa áfram sem forstjóri og aðstoðarforstjóri félagsins. 29.6.2020 11:27
Um 6.700 hafa nýtt sér ferðagjöfina Alls hafa 6.698 manns nýtt sér ferðagjöf stjórnvalda sem varð aðgengileg landsmönnum fyrir um tíu dögum. 29.6.2020 11:19
Boðað til upplýsafundar klukkan 14 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14. 29.6.2020 10:57
Ólöf fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar Ólöf Breiðfjörð hefur hafið störf sem menningarfulltrúi Garðabæjar. 29.6.2020 10:17