Hafna beiðni Pompeo að fá áheyrn hjá páfa Páfagarður í Róm hefur hafnað beiðni frá Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess efnis að hann fái áheyrn hjá páfa. 1.10.2020 07:12
Bjóðast til að miðla málum í deilum Asera og Armena Rússar hafa boðist til að miðla málum í mögulegum friðarviðræðum Armena og Asera um héraðið Nagorno-Karabakh. 1.10.2020 07:06
Nýr emír sór embættiseið í Kúveit Búið er að lýsa yfir fjörutíu daga þjóðarsorg í Kúveit vegna fráfalls emírsins. 30.9.2020 13:54
Þverar Vesturlandsveg eftir að hafa oltið Flutningabíll þverar nú Vesturlandsveg, norðan við Grundartanga en sunnan Akrafjallsvegar, eftir að hafa oltið í morgun. 30.9.2020 12:38
Tvær hópuppsagnir bæst við síðan í gær Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að hópuppsagnirnar það sem af er mánuði nái til 181 manns. 30.9.2020 11:29
33 greindust innanlands og átta nú á sjúkrahúsi 33 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Nítján þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 30.9.2020 11:10
Ná saman um nýja stjórn um 500 dögum eftir kosningar Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar sjö flokka stjórnar í Belgíu, nærri fimm hundruð dögum eða sextán mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram í landinu. 30.9.2020 10:37
Sýknaðir vegna eyðileggingar Babri-moskunnar í Ayodhya Dómstóll í Indlandi hefur sýknað leiðtoga úr röðum stjórnarflokksins BJP af ákæru um að hafa átt þátt í eyðileggingu Babri-moskunnar í bænum Ayodhya árið 1992. Um tvö þúsund manns dóu í átökum í kjölfar eyðileggingarinnar. 30.9.2020 08:39
Tíu þúsund nú látnir af völdum Covid-19 í Belgíu Dauðsföllum hefur farið fjölgandi í landinu síðasta mánuðinn en fólk á öldrunarheimilum landsins hefur farið sérstaklega illa út úr faraldrinum. 30.9.2020 08:12
Mikil úrkoma fyrir austan og hætta á flóðum Gul viðvörun er í gildi á Austurlandi fram á kvöld. Um klukkan sjö höfðu tæpir 60 millimetrar mælst í Neskaupstað frá miðnætti. 30.9.2020 07:57