Spá ofsaveðri norðvestantil og viðvaranir í gildi á stærstum hluta landsins Spáð er norðvestanhríð norðan- og vestanlands í dag, en stórhríð á Ströndum og Vestfjörðum og rok eða jafnvel ofsaveður við Breiðafjörð. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra í dag og gilda fram á kvöld. Einnig er búið að gefa út gular viðvaranir víða annars staðar. 28.9.2021 06:27
Lét öllum illum látum á slysadeild Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um mjög æstan mann á slysadeild Landspítalans. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 28.9.2021 06:06
Íslendings leitað sem féll af sæþotu í Svíþjóð á laugardag Íslendings er leitað sem féll af sæþotu undan strönd sænsku borgarinnar Borgholm á Öland á laugardag. 27.9.2021 14:51
Atkvæði verða talin aftur í Suðurkjördæmi Ráðist verður í endurtalningu atkvæða í Suðurkjördæmi eftir að fjórir stjórnmálaflokkar fóru fram á slíkt. Þetta staðfestir Þórir Haraldsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi. 27.9.2021 14:08
Funda í vikunni um mögulega sameiningu fjögurra Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga á Suðurlandi mun funda um næstu skref síðar í vikunni eftir að tillaga um sameiningu Ásahrepps, Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra var felld í Ásahreppi. 27.9.2021 13:39
24 greindust innanlands 24 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átta þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 33 prósent. Sextán voru utan sóttkvíar, eða 66 prósent. 27.9.2021 10:46
Tekur við sem forstöðumaður stofnstýringar Friðrik Bragason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður innan stofnstýringar hjá Verði. 27.9.2021 09:22
Fjórir flokkar hafa nú farið fram á endurtalningu í Suðurkjördæmi Fjórir stjórnmálaflokkar hafa nú farið fram á endurtalningu atkvæða í Suðurkjördæmi. Umboðsmenn Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokksins hafa nú tekið undir kröfu Vinstri grænna um endurtalningu – kröfu sem Píratar tóku undir í gær. 27.9.2021 08:47
Ljóst að margir hafi ekki verið með hugann við sóttvarnir um helgina Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist vona að mannamót helgarinnar – bæði kosningavökur stjórnmálaflokka og fögnuðir tengdum fótbolta – komi ekki til með að skila sér í fjölgun kórónuveirusmita í samfélaginu. Hann segir ljóst að margir hafi ekki sérstaklega haft hugann við sóttvarnir um liðna helgi og að hann voni að það komi ekki í bakið á okkur. 27.9.2021 08:18
Öflugur skjálfti við Krít Öflugur skjálfti varð suður af grísku eyjunni Krít í morgun. Skjálftinn mælist 5,9 að stærð og voru upptök hans um tuttugu kílómetra suðaustur af borginni Heraklion og á um tíu kílómetra dýpi. Fyrstu fréttir hermdu að skjálftinn hafi verið 6,5 að stærð. 27.9.2021 07:29