Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins fer fram í Hörpu milli klukkan 15 og 17 í dag þar sem sjónum verður sérstaklega beint að grænni orku. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. 19.9.2024 14:31
Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Hjalti Már Einarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Datera. Hann tekur við keflinu af Hreiðari Þór Jónssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 2020. 19.9.2024 13:11
Reyndist ekki faðir stúlknanna Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa ætlað sér að hagnýta tvær stúlkur sem komu til landsins í mansali. Annar mannanna var skráður faðir stúlknanna í kerfum íslenskra stjórnvalda en rannsókn á lífsýnum leiddi í ljós að það var ekki rétt. 19.9.2024 12:52
Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Fjórum skipverjum var bjargað eftir að skip sökk nærri Nanortalik við suðurströnd Grænlands í nótt. Um 20 þúsund lítrar af dísilolíu eru í skipinu og er nú unnið að því að koma í veg fyrir að umhverfisslys verði. 19.9.2024 11:30
Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mun í dag skrifa undir viljayfirlýsingu við fulltrúa fimm fyrirtækja vegna uppbyggingar á Hólmsheiði. Fyrirtækin sem um ræðir í fyrsta fasa uppbyggingarinnar eru Ölgerðin, Alvotech, Parlogis, Veritas og Safari. 19.9.2024 11:07
Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Valencia næsta sumar. Fyrsta flugið verður 24. maí 2025 og verður flogið á þriðjudögum og laugardögum fram til 29. september. 19.9.2024 09:57
Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Heildareignir einstaklinga á Íslandi árið 2023 námu 12.284 milljörðum króna og jukust um 14,5 prósent eða úr 10.728 milljörðum króna árið 2022. Sé leiðrétt miðað við verðlag ársins 2023 var aukningin 5,3 prósent. 19.9.2024 08:50
Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Fasteignamarkaðurinn ber nú merki um aukið jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar samhliða minni áhrifum vegna Grindavíkur, þrátt fyrir að eftirspurn sé enn mikil. Merki eru um að fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sé enn á valdi seljenda og á leigumarkaði virðast fleiri nú leigja hjá ættingjum eða vinum. 19.9.2024 07:36
Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Hæðarhryggur er nú yfir landinu sem þokast norðaustur og má yfirleitt reikna með hægum suðvestanvindum, en kalda og sums staðar strekkingi á Vestfjörðum. 19.9.2024 07:05
Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Mannanafnanefnd hefur samþykkt beiðnir um karlkynseiginnöfnin Ekkó og Milan og kvenkynseiginnöfnin Dúrra, Hafsól, Imba, Melía, Marselín og Sisa. 18.9.2024 14:32