Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þurrasti júlí­mánuður á Akur­eyri í níu­tíu og sjö ár

Júlímánuður var óvenju úrkomusamur á suðvestur- og vesturhluta landsins, sérstaklega um miðjan mánuð, en óvenju þurr á Norðaustur- og Austurlandi. Í ár var blautasti júlímánuður í rúm 40 ár í Reykjavík en einn sá hlýjasti á Austfjörðum. 

Bjart­viðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til

Í dag má búast við hægri breytilegri átt og bjartviðri sunnan heiða og sums staðar norðanlands. Skýjað verður með köflum annars staðar og líkur eru á stöku skúrum vestan til og inn til landsins. Hiti verður á bilinu níu til tuttugu stig.

Enn eitt inn­brotið í mið­bænum

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrotsþjóf í heimahúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þjófurinn var staðinn að verki við að brjótast inn í mannlausa íbúð en nágrannar yfirbuguðu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.

„Ég er svo­lítið svífandi á bleiku skýi“

Tónlistarmaðurinn Ágúst Brynjarsson leiddi brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær, á lokadegi hátíðarinnar. Hann segir frumraun sína í að stýra söngnum hafa gengið eins og í sögu og vel hafi tekist að blanda saman gömlu hefðunum við ný lög. 

Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju

Tuttugu og átta er enn saknað eftir að kviknaði í ferju undan ströndum Indónesíu í gær. Tala látinna er komin í fimm en um borð voru 232 farþegar og 39 manna áhöfn samkvæmt farþegalista ferjunnar. 

Vopnin reyndust vera „ná­kvæmar eftir­líkingar“

Fimmmenningarnir sem voru handteknir í gær í aðgerðum lögreglu og sérsveitarinnar á Akureyri reyndust ekki vera með alvöru skotvopn í fórum sínum heldur „nákvæma eftirlíkingu af skotvopni“ að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síð­degis­skúrum

Í dag má búast við hægri breytilegri átt og björtu að mestu, en skýjuðu með köflum við ströndina. Inn til landsins verður bjart að mestu en líkur eru á stöku síðdegisskúrum. Hiti verður á bilinu átta til tuttugu stig, svalast á við norður- og austurströnd landsins en hlýjast sunnantil.

Sjá meira