Norðmenn völdu framlagið og Subwoolfer felldi grímurnar Norðmenn völdu framlag sitt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld. Það var hin tvítuga Alessandra Mele sem bar sigur úr býtum í Melodi Grand Prix keppninni. Þá vakti athygli að tvíeykið Subwoolfer, sem kom fram fyrir hönd Noregs í Eurovision í fyrra, felldi gulu úlfagrímurnar frægu í beinni útsendingu. 4.2.2023 22:03
Óvissustigi lýst yfir Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna í fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem er framundan. 4.2.2023 20:55
Skutu niður njósnabelginn Bandaríkjaher hefur skotið niður loftbelg, sem talinn er vera njósnabelgur frá Kína, utan strönd Suður-Karólínu. 4.2.2023 19:59
Herflugvélar hringsóla um njósnabelginn Fjórar orrustuþotur hringsóla nú um kínverskan njósnabelg sem svífur skammt utan við Myrtle Beach í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Bandarísk yfirvöld íhuga nú að skjóta belginn niður. 4.2.2023 18:55
Annasamur sólarhringur hjá Landhelgisgæslunni Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt þremur útköllum síðastliðinn sólarhring. Slæmt veður hefur komið í veg fyrir að flugvélar hafi getað sinnt sjúkraflugi frá Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum. 4.2.2023 18:13
Aukin hætta á ofanflóðum á morgun Gert er ráð fyrir hlýindum um allt land á morgun, sunnudag, og Veðurstofa Íslands varar við aukinni hættu á votum snjóflóðum. krapaflóðum og skriðuföllum. Í tilkynningu segir að ekki sé hægt að útiloka að krapaflóð falli aftur á Patreksfirði, líkt og gerðist í síðustu viku. 4.2.2023 17:49
Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018. 3.2.2023 23:25
Stærðarinnar smíðaverkstæði brunnið í Fljótsdal Fjárhús við bæinn Víðivelli 1 í Fljótsdalshreppi stendur í ljósum logum eftir að eldur kom upp í því um klukkan 21 í kvöld. Slökkvistarf gengur vel og hvorki menn né málleysingjar voru í húsunum, enda hefur það um árabil verið notað sem smíðaverkstæði. 3.2.2023 22:42
Tveir handteknir fyrir að myrða sex úr sömu fjölskyldu Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morð sex einstaklinga úr sömu fjölskyldu í smábænum Goshen í Kaliforníu í janúar. Meðal þeirra myrtu voru tíu mánaða gamalt barn og sextán ára móðir þess. 3.2.2023 22:25
Þessir tveir keppendur gætu orðið næsta Idol-stjarna Íslands Fjórir keppendur mættu til leiks í æsispennandi Idol-þætti kvöldsins. Óvænt var tilkynnt um að tveir keppendur yrðu sendir heim eftir símakosningu og því er nú ljóst hvaða tveir keppendur mætast í úrslitum í næstu viku. 3.2.2023 21:16