Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Félag í eigu Jóns Hilmars Karlssonar, sonar Karls Emils Wernerssonar, hefur verið dæmt til að greiða tortólsku félagi í eigu þrotabús Karls Emils um 340 milljónir króna auk dráttarvaxta allt aftur til ársins 2018. Jón Hilmar hefur áður verið dæmdur til að greiða þrotabúinu fleiri milljarða króna. 21.10.2026 17:02
Lilja Dögg ráðin forstjóri Lilja Dögg Stefánsdóttir tekur við starfi forstjóra Icepharma 1. nóvember næstkomandi. Hörður Þórhallsson, sem gegnt hefur forstjórastarfi bæði hjá Icepharma og móðurfélaginu Ósum, einbeitir sér framvegis að forstjórastarfi Ósa og þeim verkefnum sem fylgja vexti samstæðunnar. 21.10.2026 13:31
Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku, með því að hafa ítrekað sent henni kynferðisleg skilaboð og mælt sér mót við hana í því skyni að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Dómurinn taldi ekki sannað að maðurinn hafi vitað að um barn væri að ræða. 21.10.2026 13:21
Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni á heimili þeirra í janúar árið 2022, með því að hafa samræði við hana á meðan hún var meðvitundarlaus. Þá er hann sagður hafa útbúið myndskeið af nauðguninni. 21.10.2026 11:02
Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Körfuboltagoðsögnin Kristófer Acox hefur sett íbúð sína í Urriðaholti í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á fyrstu hæð og henni fylgir heitur pottur og pallur. 20.10.2026 16:34
Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Karlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi í garð konunnar og einnig fyrir að nauðga barni. 20.10.2026 16:34
„Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist döpur að hafa misst Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og vonar að hann snúi til baka. Hún segir þingflokkinn og forystu flokksins taka gagnrýni hans til greina. 20.10.2026 15:58
Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar eftir að hafa játað 89 þjófnaðarbrot. Hann stal vörum úr verslunum fyrir um 3,5 milljónir króna. 20.10.2026 12:42
Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Fimmtán hafa sótt um starf framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og einn dregið umsókn sína til baka. Meðal umsækjenda eru fjórir hlaðvarpsstjórnendur sem bölsótast hafa opinberlega út í nefndina og kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Ætla má að umsóknir þeirra séu lagðar fram í hálfkæringi. 9.10.2026 16:37
Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Landsréttur hefur viðurkennt bótaskyldu VÍS vegna tjóns tveggja ungra kvenna og ungs karlmanns. Þau lentu í slysi árið 2021 þegar þau voru 13 og 14 ára og pilturinn ók breyttu léttu bifhjóli með stúlkurnar aftan á. Vátryggingafélagið vildi meina að létta bifhjólið hefði orðið skráningar- og vátryggingaskylt eftir að því var breytt þannig að það kæmist umtalsvert hraðar en óbreytt létt bifhjól og bótaskylda væri því ekki fyrir hendi. 9.10.2026 16:01