Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Laugardagur er runninn í garð og það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar. Tímatökur eru alltaf skemmtilegar í Mónakó-kappakstrinum ásamt því að æfingaleikur Englands og Nýja-Sjálands verður sýndur. Nóg verður af golfi og uppgjörsþáttur af ensku úrvalsdeildinni verður sýndur. 6.6.2026 06:02
Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Lennart Karl, leikmaður Bayern Munchen, meiddist á æfingu þýska landsliðsins í dag og var sendur upp á spítala. Ekki er vitað hvað gerðist eða hversu alvarlega meiddur hann er að svo stöddu. 5.6.2026 23:18
Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands ætlar ekki að láta völlinn hafa áhrif á liðaval sitt í upphitunarleikjum fyrir HM. Völlurinn er aðeins tímabundinn og eru einhverjir hræddir um auknar líkur á að leikmenn meiðist á vellinum. 5.6.2026 22:32
Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Sara Björk Gunnarsdóttir er að snúa heim til Hauka úr atvinnumennsku. Hún mun verða leikmaður Hauka sem og sinna afreksþjálfun félagsins. Haldinn var blaðamannafundur í knatthúsi Hauka þar sem okkar maður Vilhelm Gunnarsson var með myndavélina á lofti. 5.6.2026 22:03
Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Martin O‘Neill hefur verið ráðinn þjálfari Celtic. Hann skrifar undir eins árs samning við félagið eftir að hafa þjálfað liðið á síðasta tímabili eftir brottför bæði Brendan Rodgers og Wilfried Nancy. 5.6.2026 22:03
Markaveisla í Lengjudeildinni Þrír leikir voru spilaðir í Lengjudeild karla í kvöld og fengum við vægast sagt markaveislu. Í þremur leikjum voru skoruð samtals tólf mörk og þar af sex í einum leik. 5.6.2026 21:58
Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Ríkjandi heimsmeistarar Spánar og ríkjandi Evrópumeistarar Englands áttust við í kvöld en þessi lið eru í sama riðli og Ísland í undankeppni HM. Leikurinn var ekki jafn og unnu Spánverjar stórsigur 4-0. 5.6.2026 21:20
Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta fagnaði góðum sigri á Lúxemborg í kvöld. Þetta var vægast sagt stórsigur þar sem Belgía vann leikinn 6-0. 5.6.2026 20:50
Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tenniskappinn Matteo Arnaldi hefur dregið sig úr undanúrslitum Opna franska mótsins. Þetta er besti árangur hans á stórmóti. 5.6.2026 19:45
Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Tryggvi Snær Hlinason er dottinn úr leik í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Félagar hans í Bilbao Basket steinlágu fyrir Valencia í öðrum leik liðanna en það þarf að vinna tvo leiki í viðureigninni til að komast áfram í úrslitakeppninni. 5.6.2026 19:17