Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Slökkviliðið slökkti eld í heimahúsi á sunnudagsmorgun við Grænásbraut í Ásbrú í Reykjanesbæ. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur grunur á um að maður hafi kveikt í húsinu. Íbúi í nágrenninu segir að maður á fimmtugsaldri hafi verið handtekinn á vettvangi. 17.7.2025 11:41
Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eru í útsýnisflugi um Ísland með þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar. 17.7.2025 10:29
Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, á í hörðum deilum í kommentakerfinu um strandveiðar. Hún segir við minnihlutann að sakast að strandveiðifrumvarpið hafi ekki fengið afgreiðslu fyrir þinglok en Fiskistofa hefur stöðvað strandveiðar í sumar. 16.7.2025 23:31
Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Mengun frá eldgosinu sem stendur yfir á Reykjanesskaga hefur náð alla leið til Vestfjarða og hugsanlega líka í Skagafjörð. Myndir þaðan sýna hvernig dökkblátt mengunarský vofir yfir landslaginu. 16.7.2025 22:47
Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Aðalsvið raftónlistarhátíðarinnar Tomorrowland í Belgíu varð eldi að bráð í dag aðeins tveimur dögum áður en hátíðin átti að hefjast. Hundruð þúsunda manns munu sækja hátíðina heim í bæinn Boom næstu tvær vikur. 16.7.2025 22:15
Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Fragtskipið Dettifoss er komið úr viðferð eftir að það varð vélarvana á Ballarhafi í síðustu viku og þurfti varðskip Landhelgisgæslunnar að koma því til bjargar. Því seinkar aðeins um tæpan sólarhring. 16.7.2025 21:50
Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Opnað hefur verið fyrir aðgang íbúa Grindavíkur að bænum. Gróðureldar eru nú mesta hættan í byggð. Unnið er að hækkun varnargarða. 16.7.2025 21:00
„Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Fagstjóri náttúruvár á Veðurstofu Íslands segir að stofnunin þurfi að fara vel yfir það hvers vegna eldgos hófst talsvert fyrr en Veðurstofan hafði gert ráð fyrir. 16.7.2025 19:44
Kort: Sprungan lengist til norðurs Sprungan á gossvæðinu við Grndavík hefur lengst til norður og hefur sprugna í raun aldrei náð eins langt í eldgosahrinunni sem hófst við Sundhnúk um lok árs 2023. Aftur á móti er tekið að draga úr virkni gossins. 16.7.2025 19:20
Strandveiðar bannaðar á morgun Strandveiðum er að óbreyttu lokið í ár. Fiskistofa mun stöðva strandveiðar á morgun þar sem ekki verður bætt við aflaheimildir strandveiðibáta í sumar. 16.7.2025 18:26