Sjaldgæf sjón í höfuðborginni Snjóleysið í janúar veldur skíðaáhugafólki á suðvesturhorninu áhyggjum en gefur um leið lögreglumönnum kost á að sinna umferðareftirliti á tveimur hjólum í stað fjögurra. 8.1.2019 13:57
Segist þreytt á strengjabrúðutali borgarstjóra Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist endurtekið sitja undir ásökunum frá Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að hún sé strengjabrúða innan Sjálfstæðisflokksins. 8.1.2019 10:30
Grunur um salmonellu í kjúklingaslátrun Í reglubundnu eftirliti með salmonellu í kjúklingaslátrun hjá Reykjagarði, sem selur kjúkling undir vörumerkjunum Holta og Kjörfugli, kom upp grunur um að salmonella hefði greinst í einum kjúklingahópnum. 7.1.2019 14:43
Andið eðlilega komin á Netflix Andið eðlilega, kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, er komin á Netlix veituna. 7.1.2019 13:11
Tilkynnti um bílveltu en stoppaði ekki Brunavarnir Árnessýslu brýna fyrir vegfarendum mikilvægi þess að stoppa og kanna málin komi það fyrst að slysavettvangi. 7.1.2019 12:11
Íbúum í Fossvogi blöskrar umgengni við grenndargáma Nokkur umræða hefur skapast í hverfahópnum 108 RVK- Hveragrúbba vegna umgengni við grenndargámana við verslunarmiðstöðina Grímsbæ við Bústaðarveg. 7.1.2019 11:24
Sendlinum krossbrá þegar fjöldi lögreglumanna beið hans Jóhann Axel Viðarsson, 21 árs karlmaður sem í janúar í fyrra tók við meintum fíkniefnum sem stíluð voru á Skáksamband Íslands, segist ekki hafa áttað sig á alvarleika málsins fyrr en hann var handtekinn af miklum fjölda lögreglumanna. 7.1.2019 10:54
Þurfti að innheimta milljóna króna lán frá Sigurði vegna Fullra vasa Hákon Örn sagðist hafa verið að fjármagna gerð kvikmyndar, Fullir Vasar, og í desember árið 2017 hefði hann vantað pening til baka frá Sigurði. 7.1.2019 10:28
Svona er staðan í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli í upphafi árs Vonir standa til að hægt verði að opna fyrir skíðaáhugafólk í Hlíðarfjalli hið fyrsta eftir smá bakslag eftir leiðinlegt veður upp úr áramótum. 7.1.2019 10:20
Sigurður kýs að tjá sig ekkert frekar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning á fimm kílóum af amfetamíni hingað til lands frá Spáni, neitaði að tjá sig þegar aðalmeðferð í málinu hófst við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. 7.1.2019 09:34