Mæla með hettu yfir höfuðið á gosstöðvunum Þeir sem ætla að leggja leið sína á gosstöðvarnar í dag eru hvattir til að taka með sér auka peysu og úlpu. Ástæðan er sú að nokkur vindur er á svæðinu, 5-9 m/s og í kaldara lagi að því er fram kemur á Safetravel.is. 16.5.2021 10:13
Bein útsending: Meintur klíkuskapur og kynferðisbrot á Sprengisandi Staða þolenda í dómskerfinu, nýtt fyrirbrigði í hagfræðinni, meintur klíkuskapur á æðsta dómstigi og stefna í ferðamennsku til framtíðar verður á dagskrá Sprengisands á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti. 16.5.2021 09:09
Jóhanna Margrét til Skeljungs Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi. 14.5.2021 15:36
Sýknaður af bótakröfu fyrir gáleysi á Bitruhálsi Landsréttur hefur staðfest eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir 64 ára karlmanni sem sýndi af sér gáleysi þegar hann ók á gangandi vegfaranda á gangbraut á Bitruhálsi í Reykjavík þann 4. desember 2017. 14.5.2021 15:01
Lögreglumaður dæmdur fyrir meðferð á gesti á Irishman Landsréttur staðfesti í dag 45 daga fangelsisdóm yfir rúmlega þrítugum lögreglumanni fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi aðfaranótt mánudagsins 18. mars í fyrra. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. 14.5.2021 14:31
Björn Ingi dæmdur til að greiða áttatíu milljónir króna Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, sem í seinni tíð hefur verið kenndur við Viljann, hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Pressunnar ehf. áttatíu milljónir króna. 14.5.2021 14:12
Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum. 14.5.2021 13:23
Eldur kviknaði við höfnina á Akureyri Eldur kviknaði um eittleytið á útisvæði við höfnina á Akureyri. Slökkviliðið var fljótt á vettvang og segir varðstjóri að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. 14.5.2021 13:09
Landsbankinn sér annað en Íslandsbankinn í kristalskúlunni Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslandsi haldi meginvöxtum bankans óbreyttum í 0,75% við næstu vaxtaákvörðun þann 19. maí. Þó telur deildin að óðum styttist í vaxtahækkun. 14.5.2021 12:54
VG fordæmir meðferð Ísraela á Palestínumönnum Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir valdníðslu, margendurteknar landtökur og brottvísanir palestínskra heimamanna úr byggðum sem svo eru eyðilagðar og lagðar undir ísraelska landtökumenn. 14.5.2021 12:50