Guðni snýr aftur í sagnfræðina Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands mun snúa aftur til starfa við Háskóla Íslands í haust. Þetta kom fram í ræðu Jóns Atla, rektors HÍ, í brautskráningarathöfn skólans í dag. Innlent 15. júní 2024 11:14
Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Gerður Björt Pálmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise. Um er að ræða nýtt svið sem varð til eftir kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar. Viðskipti innlent 13. júní 2024 14:46
Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 13. júní 2024 11:28
Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Viðskipti innlent 12. júní 2024 21:24
Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er formaður hópsins. Innlent 11. júní 2024 15:33
Sigurður Tómasson til liðs við Origo Origo hefur ráðið Sigurð Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar (e. Chief Growth Officer), sem er ný staða innan félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu. Sigurður tekur til starfa að loknu sumri. Viðskipti innlent 11. júní 2024 12:52
Hrefna og Unnur til Novum Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Alls starfa nú sjö lögmenn undir merkjum Novum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 11. júní 2024 10:34
Kjartan Bjarni skipaður landsréttardómari Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Kjartan Bjarni Björgvinsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2024. Innlent 7. júní 2024 14:05
Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju. Innlent 7. júní 2024 11:40
Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur, sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins. Viðskipti innlent 6. júní 2024 14:28
Þrír nýir stjórnendur hjá Festi Festi hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á fjármála- og rekstrarsvið félagsins. Andri Kristinsson tók við starfi forstöðumanns innheimtu- og fjárstýringar, Gísli Heiðar Bjarnason tók við starfi forstöðumanns viðskiptagreindar og greininga, og Sandra Björk Björnsdóttir tók við starfi forstöðumanns reikningshalds og launavinnslu. Viðskipti innlent 6. júní 2024 13:06
Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Ingi Rúnar Kristinsson, Almar Daði Björnsson, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Henný Björk Birgirsdóttir hafa verið ráðin til starfa hjá íslenska heilbrigðistæknifyrirtækinu Helix. Viðskipti innlent 6. júní 2024 11:03
Daði stýrir markaðssamskiptum Íslandsstofu Daði Guðjónsson hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu. Á sama tíma hverfur Sveinn Birkir Björnsson, sem stýrt hefur sviðinu undanfarin ár, til annarra starfa hjá Íslandsstofu en hann er að flytja búferlum erlendis. Viðskipti innlent 6. júní 2024 10:42
Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Vilhjálmur Hilmarsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Visku – stéttarfélags. Um er að ræða nýtt stöðugildi en verkefni Vilhjálms verða meðal annars að sinna greiningum á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála, skrifa umsagnir um lagafrumvörp og leiða kjaraviðræður ásamt lögmanni og formanni Visku. Viðskipti innlent 6. júní 2024 08:07
Bæjarfulltrúi aðstoðar ráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Andra Stein Hilmarsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn í stað Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi. Innlent 5. júní 2024 11:24
Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Markús Kötterheinrich hefur verið ráðinn tækni- og þróunarstjóri hjá Defend Iceland og verður hann hluti af stofnteymi fyrirtækisins. Hann stundaði nám í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Viðskipti innlent 5. júní 2024 10:14
Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Jóhannes Þorleiksson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingagreindar og – tækni hjá Landsneti. Hann mun þar fara fyrir hópi sem ber ábyrgð á þróun gagnadrifinnar þjónustu, upplýsingaöryggi og rekstri upplýsingakerfa Landsnets. Viðskipti innlent 5. júní 2024 08:22
Kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands Lilja Magnúsdóttir, deildarstjóri auðlindastýringar hjá HS Orku, var í dag kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í Hörpu. Innlent 4. júní 2024 22:38
Skúli skipaður hæstaréttardómari Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt. Hann tekur við af Ingveldi Einarsdóttur, varaforseta réttarins, sem lætur af störfum sökum aldurs í ágúst. Innlent 4. júní 2024 11:40
Davíð Þór hættir og Eiríkur nýr varaforseti Á fundi Landsréttardómara þann 23. maí 2024 var Eiríkur Jónsson kjörinn varaforseti Landsréttar frá 1. september 2024 til 1. ágúst 2027. Hann tekur við sem varaforseti af Davíð Þór Björgvinssyni Landsréttardómara, sem lætur af störfum að eigin ósk. Innlent 4. júní 2024 10:13
Stefán Andrew tekur við formennsku af Sigurði Erni Ný stjórn Lögmannafélags Íslands var kjörin í liðinni viku. Stefán Andrew Svensson lögmaður á Juris var kjörinn formaður félagsins og tekur við af Sigurði Erni Hilmarssyni. Innlent 4. júní 2024 10:13
Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar. Hann tekur við af Dagbjarti Gunnari Lúðvíkssyni. Innlent 4. júní 2024 07:02
Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Stjórn Brunavarna Suðurnesja hefur ráðið Eyþór Rúnar Þórarinsson í starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja og mun hann hefja störf sem slíkur á næstu dögum. Hann hefur starfaði í liðinu frá árinu 1999. Innlent 1. júní 2024 18:48
Skipuð í embætti fiskistofustjóra Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Elínu Björgu Ragnarsdóttur sem fiskistofustjóra frá 1. júní næstkomandi. Innlent 1. júní 2024 18:25
Félagið ARMA fær til sín þrjá starfsmenn úr fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka Hið nýstofnaða fyrirtæki ARMA Advisory, sem er í eigu fyrrverandi stjórnenda Íslandsbanka og Kviku, hefur fengið til liðs við sig þrjá starfsmenn úr fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Atli Rafn Björnsson, framkvæmdastjóri ARMA, stýrði ráðgjöfinni um árabil áður en hann lét af störfum þar um mitt árið í fyrra. Innherji 30. maí 2024 17:22
Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Thelma Thorarensen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Keahótelum ehf. Thelma mun, sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, stýra starfsemi tíu hótela félagsins sem staðsett eru í Reykjavík og á landsbyggðinni. Viðskipti innlent 30. maí 2024 15:24
Wise og Þekking orðin eitt Wise og Þekking hafa nú sameinast, en á síðasta ári var tilkynnt um kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar. Sameiningin var háð samþykki Samkeppniseftirlitsins, sem lá fyrir síðasta haust. Viðskipti innlent 30. maí 2024 08:45
Soffía er nýr skólameistari FSu Soffía Sveinsdóttir er nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Soffíu í embætti skólameistara til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Innlent 27. maí 2024 18:58
Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Ingvi Örn Ingvason hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Bílabúð Benna. Hann starfaði áður hjá Bílaumboðinu Öskju sem markaðssérfræðingur fyrir Kia og Honda. Viðskipti innlent 23. maí 2024 12:37
Fjármálastjórinn orðinn sveitarstjóri Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps í gær lagði Haraldur Þór Jónsson, oddviti og sveitarstjóri, fram tillögu að nýju skipuriti fyrir sveitarfélagið og óskaði jafnframt eftir því að fjármálastjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sylvía Karen Heimisdóttir, tæki við starfi sveitarstjóra frá og með deginum í gær og út kjörtímabilið. Innlent 23. maí 2024 11:09