

MMA
Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Tyron Woodley fær ekki að berjast við GSP
Þeir eru margir kapparnir í UFC sem vilja berjast við goðsögnina Georges St-Pierre eftir að hann tryggði sér millivigtarbeltið með því að vinna Michael Bisping um síðustu helgi.

Búin að fá nóg af þessu hatri og öllum stælunum
Nýi heimsmeistarinn í strávigt kvenna hjá UFC, Rose Namajunas, hefur fengið nóg af bardagafólki sem rífur bara kjaft og vill að þeir sem eru í UFC setji betra fordæmi með hegðun sinni.

Sögulegt kvöld í Madison Square Garden á UFC 217
UFC 217 fór fram í nótt og var bardagakvöldið sögulegt. Nokkuð var um óvænt úrslit og nýja meistara.

Nær Bisping að stöðva Hollywood-endurkomu Georges St. Pierre?
UFC 217 fer fram í nótt í Madison Square Garden, New York. Einn besti bardagamaður allra tíma snýr þá aftur eftir fjögurra ára hlé og reynir fyrir sér í nýjum þyngdarflokki.

Bisping lenti í harkalegu rifrildi við Masvidal | Myndband
Michael Bisping og Jorge Masvidal eru báðir að berjast á UFC 217 annað kvöld. Þeir eru samt ekki að berjast við hvorn annan og eru ekki í sama þyngdarflokki. Samt lentu þeir í svakalegu rifrildi.

Dana: Það verður ekkert mál að semja við Conor
Þó svo Conor McGregor vilji fá mikið fyrir að berjast aftur hjá UFC þá hefur forseti sambandsins, Dana White, engar áhyggjur af því að ná ekki samningum við Conor.

Synd að þurfa að lemja glæsimenni eins og GSP
Millivigtarmeistarinn Michael Bisping heldur áfram að skemmta andstæðingi sínum um helgina, Georges St-Pierre, með kostulegum ummælum.

Joanna kíkti í kirkju og fékk sér rautt naglalakk
Hann er mismunandi undirbúningurinn hjá bardagaköppunum fyrir stærsta kvöld ársins hjá UFC sem fer fram næsta laugardagskvöld.

Conor vill eignast hlut í UFC
Það verður ekki auðvelt fyrir UFC að fá Conor McGregor aftur í búrið því hann er kominn á þann stað á sínum ferli að hann þarf að fá vel greitt til þess að berjast.

Conor baðst afsökunar á óvönduðu orðavali
Conor McGregor mætti í írska sjónvarpið í gær til þess að útskýra af hverju hann notaði niðrandi orð um homma er hann var staddur á UFC-kvöldi í Póllandi á dögunum.

Ísland og Mjölnisfólk í aðalhlutverki í nýrri auglýsingu Reebok
Helstu stjörnur Mjölnis og íslensk náttúra eru í forgrunni í nýrri, glæsilegri auglýsingu íþróttavörurisans, Reebok.

Rose fékk sér meistaraklippingu
Allir bardagakapparnir á UFC 217 eru komnir til New York þar sem bardagakvöldið risastóra fer fram á laugardag.

Fyrsti upphitunarþátturinn fyrir UFC 217
Stærsta kvöld ársins hjá UFC er um næstu helgi og upphitun fyrir risakvöldið er hafið. Þá verða þrír titilbardagar á dagskránni plús fullt af öðrum áhugaverðum bardögum.

Covington flýgur upp styrkleikalista UFC
Ruslakjafturinn umdeildi, Colby Covington, getur farið fram á titilbardaga í veltivigt UFC fljótlega ef hann heldur áfram á sömu braut.

UFC ekki ánægt með Covington sem móðgaði heila þjóð
Colby Covington er orðinn maðurinn sem fólk elskar að hata hjá UFC enda gengur hann lengra en flestir í móðgunum sínum.

Maia tapaði aftur en neitar að gefast upp
Fyrir nokkrum mánuðum síðan var Brasilíumaðurinn Demian Maia einn sá heitasti hjá UFC en í dag velta menn því fyrir sér hvort hann eigi að hætta.

Segir að bardagi Conor og Mayweather hafi slegið öll met
Dana White, forseti UFC, segir að boxbardagi þeirra Conor McGregor og Floyd Mayweather hafi slegið öll met í sjónvarpsáskriftum.

Forseti UFC kallaði aðdáendur helvítis aumingja
Dana White, forseti UFC, er skrautlegur karakter og hefur alla tíð verið óhræddur við að láta menn heyra það.

Conor notaði niðrandi orð um homma
Það gustar aðeins um Írann Conor McGregor í dag eftir að hann var gripinn við að nota niðrandi orð um homma.

Bjarki Þór ver titilinn gegn fyrrum andstæðingi Conors
Bardagakapinn Bjarki Þór Pálsson mun verja Evrópumeistaratitil sinn hjá Fightstar-bardagasambandinu þann 9. desember næstkomandi.

Darren Till kláraði Donald Cerrone í Póllandi
Darren Till kom verulega á óvart fyrr í kvöld þegar hann sigraði Donald Cerrone í Póllandi í kvöld. Till hefur þar með tekið hástökk í átt að titilbaráttunni.

Cerrone hafði aldrei heyrt um andstæðinginn þegar bardaginn var staðfestur
Donald Cerrone mætir Darren Till í aðalbardaga kvöldsins á UFC bardagakvöldinu í Póllandi í kvöld. Cerrone hafði ekki hugmynd um hver Darren Till var þegar UFC setti saman þennan bardaga.

Myndin um Conor fer í bíó í einn dag | Sjáðu stikluna
Það er búið að gera heimildarmynd um Conor McGregor sem fer í bíóhúsin í Bandaríkjunum þann 8. nóvember næstkomandi.

Bjarki Evrópumeistari: Ungur og hungraður og langar að halda áfram
Bjarki Þór Pálsson varð um helgina Evrópumeistari í léttvigt hjá Fightstar bardagasambandinu. Hann bíður eftir því að komast að hjá stærri samböndum en ætlar að verja titil sinn í desember. Bjarki ræddi við Arnar Björnsson.

Drullaði yfir forseta UFC á Instagram
UFC-bardagakappinn Mark Hunt brjálaðist er hann var tekinn af UFC-kvöldi í Sydney. Hann drullaði yfir forseta UFC, Dana White, og hótar málsókn.

Ólympíumeistari tapaði Ólympíugullinu sínu þegar húsið hans brann
Henry Cejudo er einn af tuttugu þúsund íbúum í Norður-Kaliforníu sem hafa orðið fyrir barðinu á miklum skógareldum sem þar geysa.

Halldór Logi og Inga Birna meistarar á Grettismótinu í ár
Grettismót Mjölnis fór fram um síðustu helgi en þetta er fimmta árið í röð sem mótið er haldið.

Svona deyja menn í niðurskurði | Myndband
Það er allt gjörsamlega brjálað í MMA-heiminum eftir að bardagakappi hjá Pancrase-bardagasambandinu var dreginn upp á vigtina því hann gat ekki labbað. Það var ákaflega óhugnaleg sjón.

Demetrious Johnson með sögulegan sigur
UFC 216 fór fram í nótt í Las Vegas. Demetrious Johnson átti enn eina frábæru frammistöðuna og Tony Ferguson nældi sér í belti.

Kevin Lee og Tony Ferguson berjast um lottómiðann stóra
Á meðan Conor McGregor er fjarri góðu gamni þarf lífið að halda áfram í léttvigtinni. Í kvöld verður barist um bráðabirgðartitilinn í léttvigtinni og mun Conor McGregor fylgjast grannt með.