Íslenski boltinn

Íslenski boltinn

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Fréttamynd

„Mér finnst það bara al­gjört bull“

Stúkan ræddi risafréttir gærdagsins í Bestu deild karla í fótbolta þar sem Valsmenn létu Hermann Hreiðarsson fara eftir aðeins þrettán leiki og eftir að hafa vera nýkominn heima á Hlíðarenda með þrjú stig frá Akureyri. Albert Brynjar Ingason bað um að fá að segja algjörlega það sem honum finnst um þessa ákvörðun og fékk það líka.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: ÍA - Fram 0-2 | Öruggur sigur Fram á Skaganum

Fram vann öruggan 2-0 sigur á ÍA þegar liðin mættust á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara í fyrri hálfleik, annað þeirra af vítapunktinum. Með sigrinum styrkti Fram stöðu sína í þriðja sæti Bestu deildarinnar og er nú komið með 26 stig, tveimur stigum á eftir KR í öðru sæti. ÍA situr hins vegar í sjöunda sæti með 15 stig eftir annað tap sitt í röð.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við bara fundum ekki nægi­lega mikinn takt“

„Við ætluðum okkur alla leið og vinna bikarinn í ár, en það bara tókst ekki í dag og við vorum bara ekki nógu góðir. Ég vil óska þeim til hamingju með sigurinn í dag,“ sagði Helgi Guðjónsson, niðurlútur að leik loknum í Kópavoginum í dag. Breiðablik vann þá Víking 3-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Harka, hug­rekki og massífir“

„Tilfinningin er eins góð og hún getur verið. Þetta var bara ótrúlega góður sigur. Grunngildin voru í lagi, við mættum massífir og planið gekk upp á tíu,“ sagði Viktor Karl Einarsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á heimavelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026

Gleðin var við völd á Norðurálsmótinu á Akranesi um síðastliðna helgi þar sem að fótboltastjörnur framtíðarinnar léku listir sínar við frábærar aðstæður. Þáttur um mótið var sýndur á Sýn Sport í gær og má sjá hann í heild sinni hér. 

Íslenski boltinn