Óhapp á sýningu íslenska hestsins í Rússlandi Óhapp varð í sýningu hjá íslenska hópnum í Pétursborg í Rússlandi en þar féll hestur Páls Braga í lokaatriðinu. Hestur hans steig í aðra hófhlífina með þeim afleiðingum að hesturinn hrasaði með svakalegustu byltu sem sögur fara af. Sport 12. maí 2007 19:36
Stór dagur í Rússlandi fyrir íslenska hestinn Rétt í þessu var að ljúka sýnikennslu íslenska hópsins og blaðamannafundi þar sem Hafliði Halldórsson, Gunnar Arnarsson og fleiri úr íslensku nefndinni svöruðu spurningum blaðamanna frá öllum heimshornum. Eftir sýnikennsluna kom óvænt heimsmeistari í dressure reiðmennsku á íslenskum klár ríðandi inní höllina við mikinn fögnuð áhorfenda þar sem að flest allir gestir hússins könnuðust við þennan knapa. Sport 12. maí 2007 19:05
Sér eftir að hafa barið hestinn Í þættinum Kompás sem sýndur var nú í kvöld á Stöð 2 var sýnt átakanlegt myndband af manni sem lemur hest sinn ítrekað og sparkar undir kvið hans og lemur hann margoft í hausinn. Hestafréttir höfðu upp á manninum sem um ræðir og heitir hann Hilmar Hróason og heldur hann hesta á Vatnsenda í Kópavogi. Sport 29. apríl 2007 21:12
Viðar Ingólfsson er Meistarinn Viðar Ingólfsson sigraði Meistaradeild VÍS í gærkveldi með 50 stig í heildina. Í öðru sæti hafnaði Sigurður Sigurðarson með 48 stig og í því þriðja varð Sigurbjörn Bárðarson með 44 stig. Viðar hlaut farandbikar gefinn af Landsambandi Hestafélaga ásamt Hrímni hnakk gefnum af Icesaddles auk þess sem hann fékk 600 þúsund krónur í verðlaunafé frá VÍS. Sport 22. apríl 2007 10:32
Siggi stöðvaði sigurgöngu Þorvaldar á “Þeir allra sterkustu” Hrossabóndinn Sigurður Sigurðarson í Þjóðólfshaga sigraði töltkeppnina á “Þeir allra sterkustu” í Skautahöllinni í Laugardal í gærkveldi á Freyð frá Hafsteinsstöðum. Gríðarlega hörð keppni var á milli fimm efstu hestanna en Sævar Örn Sigurvinsson reið sig upp úr B-úrslitum á Þotu frá Neðra-Seli. Sport 15. apríl 2007 10:50
Diddi Bárðar sigraði tvöfalt í dag í Meistaradeild VÍS Sigurbjörn Bárðarson sigraði tvöfalt í dag þegar hann vann gæðingaskeiðið og 150 m skeiðið í Meistaradeild VÍS sem haldin var að þessu sinni á Gaddstaðaflötum á Hellu. Það var kalt í veðri og rigningin lét sig ekki vanta en það fékk ekkert á knapa og hesta og var keppnin hörð í báðum greinum. Sport 9. apríl 2007 19:49
Þorvaldur Árni sigraði Ístölt 2007 Þorvaldur Árni Þorvaldsson sigraði Ístöltið í gærkveldi á Rökkva frá Hárlaugsstöðum fyrir fullu húsi í Skautahöllinni í Laugardal. Það sem kom á óvart var að hestar á borð við Þórodd frá Þóroddsstöðum, Markús frá Langholtsparti og Leikni frá Vakurstöðum voru allir í B-úrslitum. Sport 1. apríl 2007 13:20
Hulda Gústafsdóttir sigraði fimmganginn í Meistaradeild VÍS Hulda Gústafsdóttir sigraði fimmganginn í Meistaradeild VÍS sem haldin var í gærkveldi á Galdri frá Flagbjarnarholti fyrir fullu húsi í Ölfushöll á Ingólfshvoli. Keppnin var gríðalega hörð og réðust úrslit í bráðabana á milli Huldu og Viðars Ingólfssonar á hestinum Riddara frá Krossi og varð honum að falli skeiðið í bráðabananum. Sport 30. mars 2007 11:15
Öllu tjaldað til í kvöld í Meistaradeild VÍS Í kvöld fer fram fimmta keppnisgreinin af níu og mun keppnin í kvöld væntanlega marka þau skil milli keppenda að fræðilega ómögulegt verður fyrir þorra þeirra að sigra eftir kvöldið. Það er ljóst að knapar tjalda öllu sem til er í kvöld. Þorvaldur Árni, Siggi Sig og Viðar Ingólfs skipuðu þrjú efstu sætin í fimmgangi í fyrra og munu þeir allir mæta með sömu hross í kvöld, en þau eru í sömu röð Þokki frá Kýrholti, Skugga-Baldur og Riddari frá Krossi. Sport 29. mars 2007 10:42
Tveir öflugir á Ístölt 2007 Mikil spenna ríkir fyrir að fá að sjá þá Daníel Jónsson á stóðhestinum fræga Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Hinrik Bragason á Skúmi frá Neðri-Svertingsstöðum næsta laugardag þann 31. mars 2007 á Ístöltinu í Skautahöllinni í Laugardal. Þóroddur er búinn að sanna sig á kynbóta-og keppnisbrautinni. Hann hefur unnið fjölda sigra og er með 8,28 fyrir sköpulag og einkunnina 9,04 fyrir hæfileika. Sport 29. mars 2007 08:20
Gæðingaveisla annað kvöld í Meistaradeild VÍS Gæðingar á borð við Þokka frá Kýrholti, Stakk frá Halldórsstöðum, Riddara frá Krossi, Skugga-Baldur frá Litla-Dal, Hrannar frá Þorlákshöfn, Eitil frá Vindási, Hrönn frá Hvammi, Þyt frá Kálfhóli, Leyni frá Erpsstöðum, Galdur frá Flagbjarnarholti, Díönu frá Heiði, Tjörva frá Ketilsstöðum svo einherjir séu nefndir, eiga eftir að gleðja augu áhorfenda á fimmtudagskvöld í Ölfushöll. Sport 28. mars 2007 20:40
Tóti á Ístölt Tvöfaldur Íslandsmeistari keppir á Ístölti 2007 Þórarinn Eymundsson og Kraftur frá Bringu munu mæta á Ístölt 2007. Þeir eru tvöfaldir Íslandsmeistarar frá því í fyrra. Tóti og Kraftur hömpuðu Íslandsmeistaratitli í tölti og fimmgangi. Sport 28. mars 2007 20:38
Heimsmeistarinn mætir á Ístölt 2007 Þá hefur Sigurður Sigurðarson staðfest komu sína á Ístölt 2007 og mun hann keppa á Hektori frá Dalsmynni. Hektor er stórglæsilegur gæðingur með mikið fas og mikla útgeislun. Sport 28. mars 2007 20:37
Meistarar á “Þeir allra sterkustu” Enn fleiri stjörnur hafa bæst í hóp keppenda á “Þeir allra sterkustu” 14. apríl. En það eru Hjalti Guðmundsson, Norðurlandameistari í tölti, Sigurbjörn Bárðarson, Landsmótssigurvegari 2006 í tölti, Sigurður Sigurðarsson, heimsmeistari í fjórgangi og Þórarinn Eymundsson, Íslandsmeistari í fimmgangi- og tölti. Sport 28. mars 2007 20:35
Töltmeistari í Meistaradeild VÍS mætir á Ístölt 2007 Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra Hofi mæta á Ístölt 2007 næstkomandi laugardag þann 31.3.2007. Þeir sigruðu í töltkeppninni í Meistaradeild VÍS fyrir stuttu og eru í frábæru formi. Sport 28. mars 2007 20:32
Fimmgangur Meistaradeildar VÍS á fimmtudaginn Á fimmtudaginn næstkomandi verður háð rimma í fimmgangi í Meistaradeild VÍS. Mikil eftirvænting ríkir fyrir þessa vinsælu grein og má ætla að keppendur mæti með sína allra bestu fáka. Í fyrra lauk fimmgangskeppninni með sigri Þorvaldar Árna og Þokka frá Kýrholti eftir bráðabana við Viðar Ingólfsson og Riddara frá Krossi. Sport 28. mars 2007 20:30
Úrslit úr Karlatölti Mána Mikil stemming var á karlatölti Mána í gærkveldi sem haldið var í reiðhöllinni á Mánagrund. Fjöldi glæstra tilþrifa sáust og er greinilegt að Mánamenn eru vel ríðandi sem fyrr. Á engan er hallað þó að sagt sé að hetja kvöldsins sé Jóhann Gunnar Jónsson en hann reykspólaði yfir b-úrslitin og valtaði síðan yfir A-úrslitin og vann þau við mikin fögnuð áhorfenda. Sport 17. mars 2007 11:54
Þorvaldur Árni sigraði Gæðingafimina í Meistaradeild VÍS Það var Þorvaldur Árni og Rökkvi sem sigruðu Gæðingafimina í Meistaradeild VÍS nú í kvöld eftir harða keppni við Sigurð Sigurðarson og Viðar Ingólfsson. Viðar var efstur eftir forkeppnina á honum Tuma sínum og bjóst fólk við því að hann myndi sigra eftir úrslitin en Þorvaldur kom sterkur inn í úrslitin á Rökkva frá Hálauksstöðum og afgreiddi þetta með stæl. Sport 16. mars 2007 14:27
Meistaradeild VÍS í kvöld Nú eru línur aðeins farnar að skýrast í Meistaradeild VÍS. Búnar eru 3 greinar af níu. Efstur í söfnun stiga til meistaratignar er Þorvaldur Árni eftir góðan árangur í öllum fyrstu þremur greinunum. Reikna má með að hann haldi áfram að ná góðum árangri a.m.k. í næstu tveimur greinum, gæðingafimi og fimmgangi og auki jafnvel forskot sitt í stigasöfnuninni. Sport 15. mars 2007 11:29
Fegursti gæðingur 20. aldarinnar á Íslandi Hrímnir frá Hrafnagili á Vef TV Hestafrétta. Í maí árið 2001 var haldin stórsýningin Sunnlenskir - Norðlenskir hestadagar í reiðhöllinni í Víðidal og var Hrímnir frá Hrafnagili heiðursgestur þar. Björn Sveinsson eigandi Hrímnis var fenginn til að fara með hann suður, þá orðinn 26 vetra, var hann heiðraður sem ókrýndur konungur klárhestana. Sport 10. mars 2007 13:51
Ístölt á morgun á Svínavatni Það má búast við hörku keppni á ístöltinu sem haldið verður á Svínavatni á morgun laugardag. Það stefnir í eitt af stærstu ísmótum sem haldin hafa verið hér á landi, en um 170 skráningar eru á mótið. Ráslitinn er prýddur bestu knöpum og hrossum landsins, má þar nefna Hans Kjerúlf sem mætir með Júpíter frá Egilsstaðabæ, Þórður Þorgeirsson er skráður til leiks með Tígul frá Gýgjarhóli í B flokk og Ás frá Ármóti í A flokk. Sport 9. mars 2007 11:25
Æskan og hesturinn um næstu helgi Hin frábæra sýning Æskan og Hesturinn verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal um næstu helgi. Sýningar eru á laugardag og sunnudag klukkan 13 og 16 og er ókeypis aðgangur fyrir alla fjölskylduna. Það eru hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að sýningunni en alls munu um 250 börn á aldrinum 3- 18 ára taka þátt. Sport 7. mars 2007 18:13
Opið mót í fjórgangi og smala í Ölfushöll næstkomandi laugardag Haldið verður opið mót í fjórgangi og smala í Ölfushöll næstkomandi laugardag, 10. mars. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, kvennaflokki og opnum flokki í báðum greinum. Sport 6. mars 2007 12:39
Úrslit ístöltkeppni á Húsatóftum Ístöltkeppni var haldin í dag á Húsatóftum hjá hestamannafélaginu Smára. Gunnlaugur Bjarnason og Tvistur 9v frá Blesastöðum sigruðu barnaflokk, Nanna Mikkelsen og Stalla 4v frá Vorsabæ sigruðu ungmennaflokkinn og Bjarni Birgisson og Stormur 7v frá Blesastöðum sigruðu fullorðinsflokkinn. Sport 4. mars 2007 19:38
Úrslit af öðrum vetrarleikum Gusts Aðrir vetrarleikar ársins hjá Gusti í Kópavogi fóru fram í dag í Glaðheimum. Þátttaka var nokkuð góð og var hörð keppni í ýmsum flokkum, t.d. í flokknum Karlar I þar sem margir góðir hestar og knapar öttu kappi. Sport 4. mars 2007 17:03
Úrslit vetrarmóts Mána Vetrarmót Mána var haldið í dag á Mánagrund í Keflavík. Gunnhildur Stella Haraldsdóttir og Vinur frá Sandhólaferju sigruðu pollaflokkinn, Jóhanna Margrét Snorradóttir og Djákni frá Feti sigruðu barnaflokk og Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Meiður frá Miðsitju sigruðu unglingaflokk. Sport 4. mars 2007 17:01
Úrslit á Mývatn open Mývatn Open var haldið í gær og var það stórknapinn Mette Manseth á Braga frá Hólum sem sigraði A flokk í tölti með 8,38, þá sigraði Nikolína Ósk Rúnarsdóttir B flokk í tölti á meistaranum Laufa frá Kollaleiru með 7,88 og svo var það Stefán Birgir Stefánsson og Blakkur frá Árgerði sem sigruðu skeiðið á 8,42 sek. Sport 4. mars 2007 16:59
Fyrstu vetrarleikar Sóta Það var góð þátttaka í karla-og kvennaflokki á fyrstu vetrarleikum Sóta sem fóru fram á Kasthúsatjörn í dag. Þótt tvísýnt hafi verið um ís á tjörninni fór mótið fram eins og best verður á kosið og skapaðist mikil stemning á ísilagði tjörninni þegar gæðingar félagsins runnu eftir brautinni. Sport 4. mars 2007 16:57
Úrslit úr Hraðafimi í Meistaradeildinni Smalinn (hraðafimi) er nýstárlegt grein í augum hestaíþrótta en það virtist ekki skipta máli í Meistaradeild VÍS þar sem Ölfushöllinn var full sem fyrr af áhugasömum áhorfendum. Það voru félagar úr Ölfusinu sem hrepptu þrjú efstu sætin í keppninni en þeir þjálfa allir á sama afleggjaranum, og spurning hvort hér sé um tilviljun að ræða eða leynilega herkænsku og/eða stífar æfingar fyrir mótið. Sport 2. mars 2007 07:38
Tölt og gæðingamót á Svínavatni Laugardaginn 10. mars verður haldið á Svínavatni í A-Hún. tölt og gæðingamót. Keppt verður í opnum flokki, áhugamannaflokki og unglingaflokki í tölti og A og B flokki gæðinga. Verðlaun verða þau veglegustu sem um getur á slíkum mótum, t.d. er ljóst að fyrir 1. sæti í opnum flokki í tölti, A og B flokki fást 100.000. kr. Sport 27. febrúar 2007 17:31