Kemst við þegar hann talar um KISS

Umhverfissálfræðinginn Pál Jakob Líndal þekkja margir úr almennri umræðu um samspil umhverfis og andans en færri vita að hann er einn harðasti aðdáandi hljómsveitarinnar KISS á landinu. KISS er ekki bara hljómsveit í hans huga heldur lífsspeki sem hann hefur tileinkað sér og lifað eftir. Reynir að gera hvern dag að meistarstykki. Hann er líka í KISS-saumaklúbbi, heldur úti hlaðvarpi um sveitina og er í KISS-ábreiðusveitinni LICKS.

29
16:54

Vinsælt í flokknum Ísland í dag