Guðmundur Kristjánsson fyrir fyrsta leik í Evrópukeppni
Stjarnan hefur sitt Evrópuævintýri í kvöld þegar liðið tekur á móti Víkingi frá Færeyjum í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, er bjartsýnn fyrir leikinn og segir að það sé gott að fá smá pásu frá Bestu deildinni.