Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann
Chelsea hefur unnið fyrstu tvo leiki tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Um helgina vann liðið Brighton 4-3 en liðið var aðeins með boltann 26% í leiknum á heimavelli. Þau Halldór Árnason og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ræddu leikstíl liðsins undir stjórn Xabi Alonso, sem tók við liðinu í sumar, í síðasta þætti af Sunnudagsmessunni á Sýn Sport.